Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.01.1986, Síða 6
6
ALÞYÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
Valgerður Guðmundsdótt-
ir snyrtifræðingur, Tún-
hvammi 11, er fædd 14. júlí
1947. Hún er dóttir Guð-
mundar Ólafssonar inn-
heimtustjóra og konu hans
Amfríðar Amórsdóttur. Eft-
ir að Valgerður hafði lokið
gagnfræðaprófi frá Flens-
borgarskóla var hún einn vet-
ur við nám í Húsmæðraskól-
anum í Löngumýri í Skaga-
firði. Þaðan lagði hún leið
sína til Svíþjóðar í lýðháskóla
í Uppsölum. Síðar lærði hún
til snyrtifræðings og hefur
unnið við ýmis störf tengd
þeirri menntun í 15 ár og
kennir nú snyrtingu á vegum
æskulýðsráðs. Fyrir nokkmm
árum lauk Valgerður námi
við verslunardeild í Náms-
flokkum Hafnarfjarðar og frá
árinu 1982 hefur hún starfað
á skrifstofu Alþýðuflokksins.
Valgerður er fædd og upp-
alin í Hafnarfirði og hefur
starfað þar að margvíslegum
félagsmálum. Hún átti sæti í
stjóm Bandalags kvenna í
Hafnarfirði 1982 til 1985, erí
stjórn Sambands Alþýðu-
flokkskvenna og hefur verið
formaður Kvenfélags Al-
þýðuflokksins í Hafnarfirði
frá 1985.
Valgerður er gift Ásgeiri
Sumarliðasyni og eiga þau
þrjú börn.
Sigrún Jonný Sigurðardótt-
ir, er fædd 14. september
1936 í Hafnarfirði. Foreldrar
hennar vom hjónin Þómnn
Sigurðardóttir og Sigurður
Gíslason, loftskeytamaður.
Sigrún stundaði fyrst nám í
Barnaskóla Hafnarfjarðar og
síðar við Flensborgarskól-
ann. Síðan lá leið hennar í
Húsmæðraskóla Reykjavík-
ur og þaðan lauk hún prófi
vorið 1954. Auk þess hefur
Sigrún aflað sér margvís-
legrar menntunar t.d. sótt
ýmis námskeið um margvís-
leg efni.
Sigrún hefur aðallega unnið
að verslunarstörfum og var
t.d. mörg ár í Blómabúðinni
Burkna. Þá rak hún eigið fyr-
irtæki í Reykjavík um tveggja
ára skeið.
Sigrún hefur tekið þátt í
ýmsum félagsstörfum og
vinnur nú með stjórn Banda-
lags kvenna í Hafnarfiðri
sem fulltrúi Kvenfélags Al-
þýðuflokksins.
Sigrún giftist Guðmundi
Halldórssyni vélstjóra árið
1955 og eiga þau hjónin tvö
böm.
Auk húsmóðurstarfa hefur
Sigrún einnig unnið að upp-
eldis- og barnavemdarstörf-
um í samstarfi við aðra aðila.
María Ásgeirsdóttir, hús-
móðir, Langeyrarvegi 11 A er
fædd 29. okt. 1946 í Stykkis-
hólmi. Foreldrar hennar em
hjónin Guðrún L. Krist-
mannsdóttir og Ásgeir P.
Ágústsson.
María lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akyreyri
árið 1966. Sama haust innrit-
aðist hún í Háskóla íslands
og lagði þar stund á lyfja-
fræði. Hún lauk exam. pharm
prófi vorið 1969.
Á skólaárum sínum vann
María við ýmis störf svo
sem: Fiskvinnu, verslunar-
og skrifstofustörf, og þjón-
ustustörf. Að námi loknu hóf
María störf hjá Reykjavíkur
apóteki í sumarafieysingum.
Hún vann síðan hjá Heild-
verslun Stefáns Thoraren-
sen (1969-1975), í lyfjabúri
ríkisspítalanna 1976, í Háa-
Ieitisapóteki 1976-1977 og
loks í Apóteki Norðurbæjar í
Hafnarfirði 1977-1985. María
starfar nú sem heimavinn-
andi húsmóðir.
María sat í 4 ár í stjóm Kven-
réttindafélags íslands, en er
nú í varastjórn. Hún er ritari í
Kvenfélagi Alþýðuflokksins í
Hafnarfirði og hefur setið í
stjórn Bæjarbókasafns
Hafnarfjarðar sl. 4. ár. María
er gift Ágústi Breiðfjörð og
eiga þau 3 börn.
Erlingur Kristensson,
form. Félags ungra jafnaðar-
manna í Hafnarfirði, er 32
ára skrifstofumaður til heim-
ilis að Hnotubergi 27. Hann
er fæddur 15. maí 1953, bor-
inn og barnfæddur Hafnfirð-
ingur, sonur hjónanna Krist-
ens Sigurðssonar skipstjóra
og síðar kaupmanns og Sól-
veigar Hjálmarsdóttur starfs-
konu á Vífilstöðum.
Erlingur lauk gagnfræða-
prófi frá verslunardeild
Flensborgarskóla 1970 og
verslunarprófi frá Verslun-
arskóla Islands 1972. Hann
hefur síðan starfað við skrif-
stofu og stjórnunarstörf við
fyrirtæki í Reykjavík. Hann
vinnur nú hjá ABC hf. heild-
verslun auk annarra hluta-
starfa við bókhald og tölvu-
vinnslu.
Erlingur hefur allt frá
unglingsárum starfað mikið
að félagsmálum og er vara-
maður Alþýðuflokksins í
íþróttaráði Hafnarfjarðar.
Hann gerðist félagi í FUJ
1973 og Alþýðuflokksfélagi
Hafnarfjarðar 1985. Hann er
nú formaður FUJ og á sæti í
fulltrúaráði flokksfélaganna í
Hafnarfirði.
Kona Erlings er Gyða Ulf-
arsdóttir bankastarfsmaður
og eiga þau tvo syni Úlfar og
Elvar.
Guðmundur Árni Stefáns-
son, bæjarfulltrúi, er fæddur
í Hafnarfirði 31. október
1955, sonur hjónanna Mar-
grétar Guðmundsdóttur og
Stefáns Gunnlaugssonar við-
skiptafulltrúa í Lundúnum.
Guðmundur Ámi lauk
stúdentsprófi frá Flensborg-
arskóla vorið 1975 og stund-
aði síðan nám í stjórnmála-
fræði við Háskóla Islands.
Með skóla vann Guðmundur
Árni margháttuð störf, s.s. al-
menn verkamannastörf og
sem lögreglumaður.
Eftir nám hefur Guðmund-
ur Árni einkum stundað
margháttuð fjölmiðlastörf.
Hann var blaðamaður við
Helgarpóstinn 1978—1981.
Varð þá ristjómarfulltrúi Al-
þýðublaðsins og síðan rit-
stjóri þess 1982—1985. Nú
rekur Guðmundur Ámi eigin
fjölmiðlunarskrifstofu, Tákn
sf., sem sér um almennings-
tengsl, kynningarstarfsemi
og fleira fyrir félög og fyrir-
tæki.
Hann hefur auk þess verið
ritstjóri blaðs fangahjálpar-
innar Verndar frá 1980 og í
aðalstjórn þeirra samtaka,
séð um fjölda þátta í útvarpi
og sjónvarpi, þ.á.m. morgun-
útvarpið sl. sumar. Hann hef-
ur um árabil leikið hand-
knattleik með FH, en síðustu
ár hefur hann stundað þjálf-
un suður með sjó.
Guðmundur Ámi hefur
verið virkur í starfi Alþýðu-
flokksins um árabil og gegnt
ýmsum trúnaðarstörfum.
Hann var 2. á lista flokksins
fyrir bæjarstjómarkosning-
arnar 1982 og var kjörinn
bæjarfulltrúi í þeim kosning-
um. Hann hefur og verið kos-
inn í stjórn Sparisjóðs Hafn-
arfjarðar frá 1982, var rit-
stjóri Alþýðublaðs Hafnar-
fjarðar um skeið og formaður
Félags ungra jafnaðarmanna
um þriggja ára tímabil. Hann
hefur setið í flokksstjóm Al-
þýðuflokksins frá 1980.
Guðmundur Ámi Stefáns-
son hefur skrifað fjölda
greina í blöð og tímarit, auk
þess sem hann hefur skrifað
tvær bækur; „Horfst í augu
við dauðann“ (83) og „Ég vil
lifa“ (85).
Eiginkona Guðmundar
Árna er Jóna Dóra Karlsdótt-
ir. Börn þeirra hjóna vom
fjögur, tvö em á lífi: Margrét
Hildur og Heimir Snær, en
látnir eru Fannar Karl og
Brynjar Freyr.
SPARISJOÐUR
HAFNARFJARÐAR
vill vekja athygli
á fjölþættri
þjónustu:
5PARI5JÚÐL1R
HAFNARFJARÐAR
Hagur heimamanna
jp HEIMILISLÁN = sparnaður + lán
LAUNALÁN = engin bið eftir sparisjóðsstjóra
GEYMSLUHÓLF - NÆTURHÓLF
@ GJALDEYRIR til ferðamanna og námsfólks
© INNLENDIR gjaldeyrisreikningar
© VISA eitt kort alls staðar
© ÚTIBÚIÐ REYKJAVÍKURVEGI
sparar ykkur sporin
© NÝTÍSKU AFGREIÐSLUTÆKI tryggja hámarks
öryggi
© PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA við alla okkar
viðskiptavini