Fjallkonutíðindi - 01.12.1915, Side 8

Fjallkonutíðindi - 01.12.1915, Side 8
6 Fjallkonulíðindi. dönsku, því er nefnist »Historisk Tidskrift«. Næst kom út í »Safni til sögu íslands«, 1896, löng og ítarleg ritgerð um Skúla Magnússon, landfógeta. 1897 kom út í »Hist- orisk Tidskrift« ritgerð um einokunarverslunina á íslandi, »Den danske regering og den islandske monopolhandel«. Árið 1902 kemur út »Oddur Sigurðsson lögmaður«. 1903 »íslenzkt þjóðerni«. 1906 »Gullöld íslendinga«. 1910 »Dag- renning«. 1911 mikið rit um Skúla Magnússon, landfógeta, og er þar hin fyrri ritgerð um sama efni aukin mjög. Auk þessara rita komu og ýmsar ritgerðir út eftir Jón í tímaritunum, Eimreiðinni og Skírni, ýmislegs efnis, og víðar. Fram að þessu ári, hafði Jón sint ýmsum störfum. Hann hafði verið tvo vetur kennari við lýðháskóla í Valle- kilde (veturna 1892—93 og 1895—96). Þingstyrk fekk hann til sagnaritunar 1897 og hélt þeim styrk oftast síðan til 1911. 1897 flutlist Jón heim hingað og hefir dvalist hér oftast síðan. Um aldamótin hafði Jón ritstjórn blaðs þess, er »Elding« liét, en eigi var það lengi. Um það leyti lék hann fyrir »Leikfélag Reykjavíkur« og þótti frábærlega góður leikari, enda var hann á yngri árum sínum orðlagð- ur söngmaður. Alþýðlega fyrirlestra flutti hann þá hér í Reykjavík oft, og var jafnan liúsfyllir hjá Jóni, svo að eigi munu fyrirlestrar annara manna hafa verið jafnvel sóttir sem lians. Einn vetur hafði hann og á hendi kenslu í sögu í lærða skólanum, og var kensla hans mjög vel rómuð. 1906 varð hann bókavörður i Landsbókasafninu og hélt því starfi til 1911 um haustið, er liann varð dósent við háskóla íslands. Það ár varð hann og þingmaður fyrir Reykvíkinga og sat á þingi 1912 og 1913 og var þá skrifari í neðri deild. í fánanefndinni átti Jón sæti og hefir ritað sögu fánamálsins í skjTslu nefndarinnar, »ís- lenzki fáninn«, sem út kom 1914. Af þessu,- sem nú hefir verið talið má sjá það, að Jón leggur margt á gerva liönd. Enda er hann starfs- maður mikill og leysir verk sín af hendi með meiri alúð og prýði en flestir menn aðrir. Dósent varð Jón, sem áður er sagl, við háskóla ís-

x

Fjallkonutíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonutíðindi
https://timarit.is/publication/417

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.