Fróði - 01.01.1912, Blaðsíða 26
220
FRÓÐI
þeim varö ekki aö því. Temuchin var bæöi vitur og haröfengur.
Hann snerist öndverður móti þeim og baröist ár eftir ár í rúm
20 ár, eða þangaö til áriö 1206. Þá var veldi hans orðið svo
mikið, að hann tók sér keisara tign. Vildu þá vinir hans að
hann tæki sér nafn annað og nefndu hann Jenghis-Khan, en þaö
þýðir “fullhuginn”.
Ekki linti hann hernaði fyrir þetta, þvf nú fór hann fýrgt
móti Polo Naimaina höfðingja. Vann hvern sigurinn eftir annan
og hrakti þá lengst noröur í Síberíu. Síöan réðst hann móti
Kin Tartörum. En þeir voru mestir hermenn þar eystra og
höfðu lagt undir sig suðurhluta Manchúríu og norðausturhluta
Kínaveldis.
Það fór sem vant var, hann vann hvern sig'urinn eftir ann-
an, braust yfir kínverska múrinn og lagði landið undir sig.
Þá var hann kominn í land miklu betra og frjórra, en hann
hafði áður. Þarna settist hann að og næsta ár, 1213, sendi
hann hersveitir sínar út um Kínaveldi og stóð ekkert fyrir þeim.
Naimanahöfðinginn Kushlek, sem Jenghis-Khan hafði unniö
sigur á fyrir nokkrum árum hafði fiúið til höfðingja Khitaþjóð-
anna og var þar í góðum fögnuði. En meðan Jenghis Khan var
að leggja undir sig eitt ríkið eftir annað í Kínaveldi fékk Kush-
lek leyfi hjá velgerðamanni sínum Iíhitan-Khan að safna saman
herflokkum sínum sem tvístrast höfðu og flúið norður um Síberíu
eftir ósigurinn fyrir Jenghis Khan.
Til þessa gekk nokkur tími, en þegar Kushlek var búinn að
ná mestu af þeim saman, þá fór hann á fund Mahómetsshah eða
höfðingja í Khuaresm og fékk hann í félag með sér að ráðast
móti Khitan Khan, sem þó hafði reynst honum best þegar mest
lá á. Þeir fóru svo með her rnikinn á hendur honum, unnu sig-
ur og neyddu hann til að selja af höndum lönd og veldi, settist
svo Kushlek í ríki hans og þóttí mikill höfðingi aftur.
En jafn skjótt og hann kom því við, fór hann að búast móti
Mongólum og Jenghis-Khan. Jenghis-Khan brá við skjótlega,
er hann frétti þetta, og sneri móti honum, og undir eins og fund-
ir urðu varð þar tnikil orusta. Jenghis-Khan fékk sigur, sem
vant var, og tók Kushlek höndum. Voru honum véittur skjótar