Fróði - 01.01.1912, Blaðsíða 28
222
FRÓÐI.
Á leið þeirra voru margar borgir víggirtar en þær féllú allar í
hendur þeirra. Þegar til Bokhara kom settust þeir um borgina
og sátu um hana um hríð, en unnu hana bráðlega. Þegar þeir
komu inn í borgina stefndi Jenghis að musteri einu miklu, þeirra
Mahómetsmanna, og er hann gekk upp tröppurnar er sagt, að
hann hafi kallað til manna sinna: “Heyjið er slegið piltar, farið
og gefið hestum yðar”. En þeir þurftu ekki meira, þeir tóku
til að ræna borgina. Hefir það verið ófagur aðgangur, því hver
maður var drepinn sem náðist en konur svívirtar. Og er þetta
hafði gengið í nokkra daga slógu þeir eldi í borgina og brann hún
öll upp neina fáein musteri og hallir nokkrar. Þar hafði verið
inentun mikil og var Bokhara kölluð: “borg vísindanna”, en
þetta var nú eftir af henni, þegar Mongólar voru búnir að fara
höndum um hana.
Frá rústum Bokhara hélt Jenghis-Khan til Samarkand, sem
vér höfum kanske lesið um í þúsund og einni nótt,. og þaðan til
Balkh. Þær gáfust báðar á vald hans. En alt fyrir það voru
íbúar þeirra höggnir niður og borgirnar rændar. Dvaldist Jeng-
his-Khan þar nokkra hríð og beið eftir liði. En hélt svo suður
til móts við Jalaluddin, höfðingja Tyrkja- Mætti hann honum
á bökkum Indusfljótsins. Sló þeim þar saman og varð hin
grimmasta orusta. Vörðust Tyrkir af hinni mestu hreysti. En
þeir voru liðfærri og rofnuðu fylkingar þeirra. Stóð orustan á
vesturbakka fljótsins, en það er eitt af stórfijótum heimsins og
rennur þar í þunguin straumi milli tuttugu feta hárra bakka.
Jalaluddin hafði barist af mikilli hreysti, en þegar hann sá, að
alt var tapað og liðsmenn hans allir flúnir, þá fær hann sér hest
óþreyttan og hleypti af bakkanuin í fljótið. Var það dirfskuverk,
en ekki um gott að velja og komst hann yfir.
Sendi Jenghis sveitir miklar á eftir honum, en þær náðu
honum ekki og flúði hann til Delhi á Indlandi. En þeir sneru
aftur. Eyddu þá Mongolar hin auðsælu héröð Lahore, Peshaw-
ur og Melikpur. En svo frétti Jenghis, að íbúar borgarinnar
Herat hefðu rekið af sér jarl þann, sem Túlí sonur hans hafði
sett yfir borgina. Vai borg sú í Afghanistan. Borgarbúar settu
annan í staðinn. Þessu reiddist Jenghis, og sendi 80 þúsundir