Good-Templar - 01.01.1898, Qupperneq 9
5
8. Bind.fél. »Sameiningin« í Mýrdalnum.
9. á Hvalsnesi í Gullbringusýslu.
10. á Blönduósi.
11. á Skeiðum í Arnessýslu.
Sjálfsagt hafa fleiri bindindisfélög verið stofnuð, en
af því að engin skýrsla hefir frá þeim komið, þá er eigi
unnt að geta þeirra hér i þetta sinn. Sama er að segja
um meðlimi hinna eldri bindindisfélaga, að enginn veit
ura fjölgun þeirra eða fækkun. Meðlimatala í félögum
þeim, sem stof'nuð hafa verið á siðastliðnu ári mun vera
nú um áramótin 350; ætti þá að hafa bætzt við bindind-
isliðið á liðnu ári ekki minna en 650 manns, auk þeirra,
sem gengið hafa í hin eldri bindindisfélög, sem eru mjög
mörg og mjög víða. Má til dæmis geta þess, að »Stefnir«
(V, 16, 25. okt. þ. á.) getur um 14 yngri og eldri bind-
indisfélög að eins í kringum Eyjafjörð. Mun því varla
of mikið í lagt, ef allt- er talið, þó áætlað sé, að bindind-
isliðið hafi fjölgað um framundir 1000 manus árið sem
leið. Og þá ættu framfarirnar og fjölgunin ekki að verða
minni á þessu nýbyrjaða ári.
Það er því ekki að ástæðulausu, að vér höfum þakk-
að bindindisliðinu fyrir liðna áiið og óskað þvd gleðilegs
nýárs.
I. O. G. T.
Hver.ju svararðu?
1. Hehrðu reglulega sótt fundi í stúku þinni siðastliðinn
ársfjórðung?
2. Ilefirðu gjört nokkuð til þess að fá þá til að sækja
fundi, sem ekki hafa gjört það?
3. Hefirðu tekið nokkurn þátt í útbreiðslu Reglunnar síð-
astliðinn ársfjórðung?
4. Hefirðu gjörzt áskrifandi að »Good-Templar« eða hef-
irðu lesið hann?
5. Hefirðu beðið nokkurn af vinum þínum eða kunningj-
um að ganga í Regluna?