Good-Templar - 01.01.1898, Síða 10

Good-Templar - 01.01.1898, Síða 10
6 6. Hefirðu gjört þitt til að gjöra stúkufundina skernmti- lega og gagnlega? 7. Hefirðu sagt nokkurt orð eða gjört nokkurt viðvik til að efla unglingaregluna? 8. Hefirðu jafnan talað vel um meðlimi stúku þinnar og um Regluna yfir höfuð við utanreglumenn? 9. Hefirðu gjört allt sem í þinu valdi stendur, til að styrkja hag Reglunnar og efla vöxt og viðgang bind- indismálsins? Ef þú getur svarað þessum spurningum játandi, þá hefirðu þá ánægju, að vera þér þess meðvitandi, að hafa gjört skyldu þina og haldið skuldbindinguna. En ef þú getur ekki svarað spurningunum játandi, viltu þá ekki taka til óspilltra málanna á þessuin nýbyrjaða ársfjórðungi og starfa af svo mikilli elju og alvöru, að þú getir af- dráttarlaust svarað þeim játandi um næstu ársfjórðunga- mót? Bindindisfréttir. »Glaðir fregna væntum vér, vort livað eflist bræðralag«. Laugardaginn 27. nóvember síðastl. stofnaði br 01- afur N. Möller, meðlimur stúkunnar »Hlín« nr. 33 hér 1 Reykjavfk, nýja stúku á Blönduósi i Húnavatnssýslu, er nefnist » Vinabandid« og er nr. 37. Um stofnun stúku þessarar hefir oss borizt svo- hljóðandi skýrsla f'rá br. Stef'áni Eírikssyni á Gunnsteins stöðum. »Laugardaginn 27. nóvember (’97) var eg samkvæmt ósk br. Ólafs N. Möller staddur á Blönduósi í þeim til- gangi að halda uppi svörum af hendi Good-Templara og hjálpa til að stofna þar stúku ásamt áðurnefndum br. Ólafi Möller og br. sira Jóni Pálssyni á Höskuldsstöð um. Til þessa fundar hafði verið allrækilega boðað af br. Ólafi, enda sáust þess ljós inerki, að ekki eru allir sofandi fyrir málefni voru og að nú gerast margir ótrygg-

x

Good-Templar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.