Good-Templar - 01.04.1898, Blaðsíða 13

Good-Templar - 01.04.1898, Blaðsíða 13
61 sumri. Til þessa fundar boða fjögur helztu bindiudisfé- lögin í Svíþjóð, sænzka stórstúkan í 0. R. tí. T., Templ- arareglan, Bláabandsdeildirnar og sænska G-T. reglan. Fundurinn á að byrja föstudaginn 1. júlí kl. 3 e. h. og standa yíir það sem eptir er dagsins og allan næsta dag. Sunnudaginn 3. júlí er ætlazt til að íluttar veiði bindind- isræður af hinum helztu og beztu mælskumönnum, sem fundinn sækja, i svo mörgum kirkjum og stórhýsum, sem hægt er að fá. Daginn eptir, mánudag 4. júlí hefjast ársþing hinna nefndu bindindisfélaga þar í borginni, og er ráðgjört, að þau muni standa yfir það sem eptir er vikunnar. Hin helztu umtalsefni, er forstöðunefnd fundarins hefir ákveðið, eru þessi: 1. Hverja stefnu á áfengislöggjöfin nú að taka? For- mælandi þess er ætlazt til að verði æðsti maður tí- T-reglunnar, Joseph Malins í'rá Birmingham. 2. »Gautaborgarsýstemið«. 3. Ahrif norsku brennivínslaganna nýju. Formælandi ritstjóri Sveu Aarrestad frá Kristjaniu. 4. Ahrif áfengisins á taugakerfið. Formælandi er ætl- azt til að verði annarhvor prófessoranna Bunge eða Forel frá Sveiss. 5. Um áfengið og unglingana er ætlazttiiað tali finnsk kona, frú Alli Trygg. 6. Er ætlazt til að einhver fulltrúi frá Danmörku hefji umræður um maltdrykkjalöggjöfina. 7. Drykkjumannahæli; formælandi dr. Henrik Berg frá Stokkhólmi. Fjöldamörg önnur umræðuefni hefir forstöðunefndin á prjónunum, en ekkert fastákveðið um þau enn. Að sjálfsögðu verður fundur þessi mjög fjölsóttur enda búizt við talsverðum áhrifum af honum. Borgar- ráðið i Gautaborg veitti, með 44 atkv. gegn 9, 3000 kr. styrk til fundarhaldsins.

x

Good-Templar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.