Good-Templar - 01.04.1898, Síða 14

Good-Templar - 01.04.1898, Síða 14
62 Tildrög til stofnunar st. >Akurliljan«. I »jœfingafélaginu« í Ytri-Akraneshreppi kom þa'ö til um- ræðu 1895, að fólagsmenn stofnuðu með sér bindindi, en því máli var þá hrundið af meiri hluta meðlima félagsins. lt. Þ. Jónssyni á Grund, sem þá var fórseti félagsins, þótti þó nauðsyn bera til að halda biudindishreyfingu þessari áfram, og fyrir forgöngu hans bundust ymsir menn á Akranesskaga samtökum um að stofna bindindisfélag. Yar hinn fyrsti fuudur þess haldinn 17. febrúar 1895 í barnaskólahúsinu og fólagið nefnt »Vetrarlaukurinn«, afþví að það var stofnað um hávetur. Fólagsmenn skuldbundu sigskrif- lega til þess að neyta engra áfengra drykkja og veita þá ekki öðrum, fyrst um sinn til 17. febrúar 1898, og gat cuginn á þessu tímabili löglega sagt sig úr félaginu. Mjög lítið kvað að fram- kvæmdum félagsins fyrsta árið, enda voru lög þess næsta ófull- komin og tillag ekkert; var það því cins og vopnlaus maður í bar- daga. En 20. febrúar 1896 eru lög fjelagsins endurbætt og aukin og meðlimum fjölgar, meðal annars á þann hátt, að 8—10 með- limir úr st. Vorblómið gengu inn í félagið, en voru þó eptir sem áður í stúkunni. Var fólaginu að þessum meðlimum hinn mesti styrkur, enda voru þeir hinir ötulustu og hafði þvl fólagið talsverð áhrif á bindindismálið. Hinn 15. janúar síðastl. var á fundi tekin til meðferðar á- skorun frá Bjarna Magnússyni um að allir fólagsmenn gjörðust Good-Tcmplarar. Meðal annara Templara, er leyfi fengu til að sitja á þessum fundi, voru þeir Sveinn Guðmundsson í Mörk og Guðm. Guðmundsson í Doild. Studdu þeir þessa áskorun af alefli og eggjuðu fólagsmenn fastlegaáað gjörast G-T., annaðhvort á þann hátt, að stofna stúku út af fyrir sig eða ganga inn í stúkuna Vorblómið. Var rnálefni þetta ítarlega rætt á þessum fundi en niðurstaðan engin í það skipti. Hinn 17. febrúar þ. á. var fólagið orðið þriggja ára gamalt. Hafði það á þessum 3 árum haldið 24 fundi og að auki einn fund sameiginlegan með st. Vorblómið, 19. apríl 1896. Til jafnaðar hafa setið á fundurn fólagsins 22 meðlimir; 3 fyrirlestra hefir hr. R. Þ. Jónsson á Grund haldið i fólaginu. Alls voru fólagsmenn um þessi tímamót 40, auk nokkurra, er heima sátu utanhóraðs. A fundi félagsins hinn 17. febrúar síðastl. var lesið upp bróf frá stúkunni Vorblómið, þar sem hún gaf félagsmönnum kost á að ganga inn í stúkuna fyrir hálft upptökugjald, ef 20 fólagsmenn að minnsta kosti vildu þiggja boðið, eða að öðrum kosti að greiða

x

Good-Templar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.