Good-Templar - 01.03.1901, Síða 2
30
mestu leyti .þakka því, hve vandlega þeir ræktu uppeldi barna
sinna. „Hraust sál í hraustum líkamá" vaí' takmark uppeidis-
ins hjá þeim. En það töldu þeir sjálfsagða og mjög svö þýð-
ingarmikla skyldu að vara unglingana við ofdrykkjunni og inn-
ræta þeim viðbjóð við henni. Kensluaðferðin í þessari grein
var dálítið einkenuilog og eftirtektaiverð. Þeir létu þræia
diækka sig út úr drukna, til þess að sýna ungiingunum, hve
viðurstyggileg ofdrykkjan var. Petta er efrirtektarvert meðal
annars vegna þess, að af þessu geta menn séð, hve mikiu
framar vér stöndum heldur en Forn-Grikkir. Nú telja feðurnir
ekki eftir sér að drekka sjálflr.
II.
Á miðöldunum, þegar kristin trú tók að útbreiðast, varð
uppeldisstefnan alt önnur en vorið hafði með Spartverjum hin-
um fornu. Alt fram á 18. öld var sú stefna ríkjandi víðsveg-
ar um hiun kristna heim, að hið eina þýðingarmilda takmark
uppeldisins væri að menta mannsandann, hefja hann svo hát.t,
sem kostur væi'i á. Þar á nióti var næsta lítið lnigsað um
uppeldi likamans, því að eftir skoðun kirkjunnar var líkarninn
saurugt og syndum spilt aðsetur gimdanna og verkfæri alls
konar lasta. Var þvi iögð sérstök áherzla á að „deyða holdið",
og þessi orð stundum tekin nokkuð bókstaflega. Að sjálísögðu
var nú drykkjufýsnin taiin með sem ein af girndum holdsins
og var því víða reynt a.ð deyða hana. Bindindishugmyndin
lifði og ýmsir af hinum merkustu mönnurn kirkjunnar prédik-
uðu gegn áfengisnautuinni og reyndu að stemma stigu fyiir
henni. En árangurinn var iítill. Drykkjuskapur og alls konar
óregia færðist í vöxt, og það einkum eftir að breunivinið kom
til sögunnai' (á 16. öld). Þá varð ofdrykkjan margfalt ai-
mennari en áður hafði verið, á meðan áfengir drykkir (vín)
voru miklu dýrari.
III.
Á seinni hluta 18. aldarinnar fer smátt og.-smátt að rofa
til. Þjóðirnar fara að vakna af mentunarleysis- og hjátrúar-
dvalanum og neyta krafta sinna til að beijast fyrir æðri hug-
sjórrum, og þá íer jafnframt að vakna rneðvitundiu mn það,
að uppeldi og uppfræðsla á ekki að vera innifalin eingöngu í