Muninn

Volume

Muninn - 01.02.1946, Page 7

Muninn - 01.02.1946, Page 7
MUNINN 7 334 reglulegir nemendur. Auk þess ! voru nokkrir óreglulegir nemendur við nám í skólanum. Er þetta meiri íjöldi nemenda en nokkru sinni liefir áður verið. Þessir nemendur skiptust þannig milli deilda, að í gagnfræða- deild innrituðust 183, en í mennta- tleild 1A1. I>ar af voru í máladeild 85 nemendur, en ()(i í stærðfræðideild. Fyrsti bekkur \ ar að þessu sinni alger- lega tvískiptur og heíir aldrei verið svo fjölmennur sem nú. IV. bekkur máladeildar var einnig tvískiptur eins og árið áður. Gagnfræðanámskeið var, með sam- þykki menntamálaráðuneytisins, hald- ið í marz og apríl nteð santa sniði og síðastliðið ár. Er það fyrirkomulag til mikils hagræðis fyrir nemendur, er koma utan af landi eða frá öðrum skólum til að þreyta gagnfræðanám bér. Svo sem að líkum lætur, var þröngt unt þennan mikla fjölda nemenda í húsakyilnum skólans. Bættist skólan- um þó ein ný kennslustofa, er útbúin var á risiiæðinni í „Beitarhúsunum". \'ar IV. bekkur S. þar til húsa. Til aukningar á húsakosti skólans má telja það, að lokið var umbótum og breytingum á leikfimihúsi skólans, skömmu eltir að kennsla hófst í skól- anum. Var þá brátt tekin upp kennsla í leikfimi við hin ákjósanlegustu skil- yrði, en hún hafði legið niðri um nokkurra ára skeið. Eftir þessa endur- srníð leikfimihússins er það iiið full- komnasta og þægilegasta hús. Hefir í suðurenda hússins verið komið fyrir rúmgóðu anddyri, skrifstofu kennara, tveimur þægilegum búningsklefum, baðklefa með átta steypibaðstækjum og loks tveimur salernum. Aðalbygg- ingunni var breytt í einn rúmgóðan leikfimisal. Til að fagna hinum miklu hlunn- indum, er öllu íþróttalífi skólans hefir hlotnazt með tilkomu þessa húss, gekkst íþróttafélag Menntaskólans fyrir vígsluhátíð, er haldin var að kvöldi hins 23. október. Hófst hún með ræðuhöldum í hinum nýja leik- fimisal. Þar flutti Hermann Jónasson, fyrrv. forsætisráðherra, mjög athyglis- verða og skemmtilega ræðu um íþróttamál og íþróttamenningu. Einn- ig töluðu þar Hermann Stefánsson, leikfimikennari, og Sigurður Guð- mundsson, skólameistari. Var síðan j setzt að kaffidrykkju í hátíðasal skól- ans. Undir borðum voru nokkrar ræð- ur fluttar. Töluðu þar meðal annarra Hennann Jónasson, Sigurður Eggerz, bæjarfógeti, og Sigurður Guðmunds- son. skólameistari. A eftlr var stiginn dans. Vígsluhátíð þessari stýrði Tómas Arnason í VI. bekk S., formaður 1. M. A. Hátíðir og samkomur. Aður hefir verið sagt frá vígsluhátíð leikfimihússins, er var fyrsta samkom- an, sem lialdin var á skólaárinu. Fjórði bekkur hélt að þessu sinni kaffikvöld sitt að kvöldi 2. des. Sanr- komtina setti Kristján Róbertsson, IV. bekk M„ með ræðu og minnríst dags- ‘ ins 1. desember sem lullveldisdags og fánadags oK.kar íslendinga. Er hann hafði lokið máli sínu, var setzt að kafli- drykkju, en nteðan á henni stóð, skemmti Heimir Bjarnason, IV. bekk M„ með upplestri, las upp kvæðið „Fákar* ‘eftir Einar Benediktsson, Örn Friðriksson, lVr. bekk M„ lék! einleik á píanó við mikinn fögnuð áheyrenda, og nokkrir piltar í gervi Færeyinga sungu Grettisrímu hins sterka, en svo heitir Ijóð eitt, er ort hefir verið á færeyska tungu. Vakti söngur þessi hlátur mikinn. Að lokum var-svo stig- inn dans, eins og lög gera ráð fyrir. Kaffikvöld þriðja bekkjar fór fram að kvöldi hins 13. febrúar, er var sprengidagskvöld. Einar Arnason setti samkomuna og stýrði henni. ‘Ræðu flutti Bragi Eriðriksson ,en Hafsteinn Bakhinsson las upp annál, ér hafði inni að halda grín eitt og meinlaust gaman. Einnig sungu þarna tólf pilt- ar, er ælt höfðu með aðstoð Her- manns Stefánssonar, leikfimikennara. A kaffikvöldi þessu afhenti 3. bekkur skólanum til eignar gluggatjöld fyrir gluggana á hátíðasal skólans, hina ágætustu gripi og gefendum til rnikils sóma. Kaffikvöld þetta fór vel fram, en það, sem sérstaklega setti svip sinn á það, var skreytingin, er var með ágæturn og Jóhannes Geir Jónsson hafði annazt um. Hafði liann komið fyrir tveimur myndum, er þöktu vegg- ina, sín í hvorum enda salarins. Var sú að sunnan frá suðrænum skógar- lundum, en hin af norrænum frera- slóðum. Var á þeim listamannshand- hragð greinilegt. Skólahátíðin fór að þessu sinni fram 21. marz. Var.hún haldin i Samkomu- lnisinu, svo sem undanfarin ár, og fór fram með líku sniði og venjulega. Skólameistari var um þessar mundir staddur í Reykjavík, og gegndi Þórar- inn Björnsson störlum fyrir hann á meðan. Setti hann hátíðina og bauð gesti velkomna. Voru þá bornar fram veitingar og setzt að sameiginlegri kaffidrykkju. Skólakórinn, er að þessu sinni var blandaður kór, söng nokkur lög undir stjórn Björgvins Guðmunds- sonar. Ræður fluttu Gunnar Sigurðs- son, VI. bekk S., er mælti lyrir minni íslands, Elosi Sigurðsson, VI. bekk M„ er mælti fyrir minni skólans, Guð- mundur Benediktsson, VI. bekk M„ er mælti fyrir minni kvenna, og Þór- unn Rafnar, VI. bekk M„ er flutti minni karía. Aður en stigið væri upp frá borðuni, rnælti Þórarinn Björns- son nokkur orð og þakkaði ræðu- mönnum og fór auk þess nokkrum hlýjum orðunr um skólameistara, er var Ijarverandi. Er stigið hafði verið upp frá borðum og salurinn ruddur, var dans stiginn langt fram eftir nóttu. Hátíðin var hin skemmtilegasta og fór fram með prýði. Áttu ræðumenn- irnir mikinn þátt í að gela henni há- tíðablæ sinn, og tókst það með ágæt- um. A hátíðinni kom út Carmina, er sjötti-bekkur gaf út samkvæmt venju. Hinn 21. apríl héldu fimmtubekk- ingar dimittendum kveðjuhátíð, lúð svokallaða dimittendakvöld. Fór það fram með líkum hætti og að undan- förnu. Steingrímur Pálsson, V. bekk S„ setti samkomuna og stýrði henni. Gat hann þess, að við þetta tækifæri væru vígð 300 bollapör, er fimmtu- bekkingar hefðu keypt og gefið skól- anum. Er það mikið hagræði fyrir skólann að eiga sín eigin bollapör til þess að nota við ýmis hátíðleg tæki- færi, J>ví að tafsamt og þreytandi verk hefir verið að fá slíkt lánað úr bæn- um, stundum víða að, þótf skólinn hafi raunar hvarvetna mætt hinni mestu greiðasemi. Á kaffikvöldi þessu gerðist það með- al annars, að Ólafur Halldórsson, V. bekk M„ kvaddi dimittenda með ræðu. Þriðjubekkinga kvaddi Sverrir Svavarsson, II. bekk, en Ólöf Guðna- dóttir þakkaði fyrir Jreirra hönd. Þá flutti Gísli Jónsson í V. bekk M. dimittendaþátt, er var gamansamur mjög og skothendur á köflum. Skól-

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.