Muninn

Årgang

Muninn - 01.01.1964, Side 3

Muninn - 01.01.1964, Side 3
B L A Ð M A K U R E Y R I m u n i n n ENNT ASKÓLANS Á Jan. MCMLXIV 36. ár. 2. tbl. IiRuNaDaN s 8. maí 1941 streymdu brezkar hersveitir inn í landið. í kjölfar þeirrar innrásar fylgdi algjör bylting í atvinnu- og efnahags- málum íslenzkrar alþýðu. Bretarnir réðu fjölda manna í vinnu og greiddu vel fyrir. Svartamarkaðsbrask þróaðist óðfluga. Þjóð- in óð í peningum. Almennt rótleysi og ó- róleiki fylgdi þessati skyndilegu aukningu á lausafé alþýðunnar. Þessi óróleiki, sem lýsti sér helzt í aukinni skemmtanafíkn og útsláttarsemi almennings, kom að sjálf- sögðu harðast niður á yngstu kynslóðinni, þeirri kynslóð, sem nú byggir landið. Þessi kynslóð hlaut að erfðum frá óróatímum stríðsáranna eyrðarleysi og takmarkalausa fjárþörf. í átökunum um að bera sem mest úr býtum í amstri dægranna hefir heimilið orðið afskipt, og sú kynslóð, sem nú er að alast upp, nýtur ekki heimilis nema að sára- ]itlu leyti. Kveður svo rammt að þessu, að í Reykjavík mun vera allstór hópur ung- linga á fermingaraldri, sem aldrei hafa lát- ið gaffal koma sér í munn. En á hverju lifa þeir þá? Spurniugu þessari er auðvelt að svara: Kók og vínarbrauði, eða öðrum slík- um kræsingum. Foreldrarnir mega ekki vera að því að skapa þessum unglingum heim- ili. Þeir þurfa að vinna fyrir meiri lífsþæg- indum og meira af kók og vínarbrauði handa börnum sínum. Þessi vínarbrauðs- æskulýður þyrpist svo inn í frystihúsin og á bátana, þegar hann hefur aldur til, og jafnvel á barnaskólaaldri eru unglingarnir farnir að stunda erfiðisvinntt, enda hafa atvinnumöguleikar vaxið gífurlega undan- farin ár. En það er yfirleitt ekki því að heilsa, að kaupinu sé varið á skynsamlegan hátt. í hinu brjálæðislega kapphlaupi eldri kynslóðarinnar eftir lífsgæðum, svífst hún einskis í gróðaskyni. Sjoppur rjúka upp eins og gorkúlur á mykjuhaug. Kvikmyndahús blómstra, félagsheimili rísa í sveitum með fárra kílómetra millibili o. s. frv„ og allt er þetta rekið með fjármagni, sem tekið er beint úr höndum unglinganna. En við get- um ekki gengið þegjandi fram hjá þeirri staðreynd, að stór hópur æskufólks notar fé það, sem það vinnur sér inn, til að kaupa sér menntun, og sá hópur virðist fara ört vaxandi, því að menntaskólar eru að springa utan af nemendaf jöldanum, og kom ast þó færri að en vilja. En þrátt fyrir þessa auknu aðsókn að æðri skólum, virðist sem svo, að siðt’erðisleg afturför hafi ekki síður cjrðið lijá þessu unga fólki, en æskulýðnum almennt. Má orsakar þeirrar afturfarar efa- laust leita hjá þeirri staðreynd, að þetta unga fólk eyðir talsverðu fé í skemmtanir í stað þess að leita gleðinnar í þeim við- fangsefnum, sem námið býður þeim. Því mun siðgæði menntlinga vart standa ofar siðgæði vínarbrauðsæskunnar, sem götuna byggir. Þessi æskulýður hefur almennt ekk- ert stefnumark. Hugsun hans nær ekki lengra en til næstu helgar, enda rekst mað- ur vart svo inn á dansleik, að fulltrúar þessa hóps rangli ekki meira og minna drukknir milli borða. Hann lifir fyrir líðandi stund og gerir allt til að lifa hana sem hæsta, enda eru Þórsmörk og Þjórsárdalur orðnir lands- MIJNINN 31

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.