Muninn

Árgangur

Muninn - 01.01.1964, Blaðsíða 23

Muninn - 01.01.1964, Blaðsíða 23
Vrkja raenn hér um ólyfjan og illan sálarfrið. Segðu mér annars — meðan és, man — manstu nýyrðið? Jóhannes ber sig þunglega: Auður pappír á mig starir, ekkert gerist, þvi er ver. Fæðist ekki fyrr en varir fyrripartur þessi hér? Andans sól er lágt á lofti, liggur í bóli skrópandi. Friðrik er staðinn upp og kominn í úlp- una sína. Mælir hann um leið og hann skýst út: Tregur fólinn tómnm hvofti tyggur njólann hrópandi. Gengur hann svo af fundi. Har. Bl. flyt- ur sig í sæti hans og verður það Hjálmari tilefni einnar stökn: Yngissveinninn illa gefni áfrarn mikið tranar sér, hlægilegra yrkisefni ekki finnst á landi hér. Ragnar er öllu hógværari: Haraldur er höfuð sinnar ættar, Haraldur er skólans rímsnillingur, Haraldur er virði heillar vættar og veit það upp á sína tíu fingur. Fer nú mönnum að verða stirt um stef, og enda Ragnar og Hjálmar fundinn. — Ragnar kveður: Karlarómi kváðumst á, kváðum frómar stökur. Létum óma óðarstrá, átum rjómakökur. Og Hjálmar: Er nú þrotið efnið þurrt, andargiftin flúin. Rekkar allir rjúka á burt, rjómatertan búin. Kkki verður meira kveðið að sinni. BRIDGE ('Framhald af bls. 49.) Suður: Spaði: k. Hjarta: á, d, g, 10, 9, 7, 6, 5. Tígull: k. Lauf: k, g, 6. Austur: Spaði: d, g, 8, 7, 4. Hjarta: 0. Tígull: d, g, 10, 9, 8, 7, 3. Lauf: 4. Suður gaf og sagði 4 lauf (ásaspurning). Vestur dobblaði. Norður sagði 4 hjörtu (einn ás). Ég sat í austur og sagði 5 tígla eftir drykklanga stund. Suður sagði 5 hjörtu. Vestur og norður passa, austur seg- ir .5 spaða, sem suður passar. Nú hugsaði vestur, Jón Hilmar, sig lengi um, en segir svo 6 tígla, sem allir passa. Suður þorir ekki að dobbla með sína grandopnun, enda fær hann ekki rönd við reist. Lýkur svo þessu spjalli. p. AÐ GEFNU TILEFNI Að gefnu tilefni skal það tekið fram, að Jóhanna S. Bogadóttir teiknaði forsíðu þá, er prýðir Muninn í vetur. Jóhanna velur einnig liti á forsíðuna. MUNINN 51

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.