Muninn

Volume

Muninn - 01.01.1964, Page 7

Muninn - 01.01.1964, Page 7
Pvt skalt ÚTI fyrir glugganum grær hrísla. Hún vakti strax athygli mína í haust og olli því, að ég settist liér við þennan glugga. Síðan hefur hún hjálpað mér að þreyja a£ marga stund. Eg festi augu mín á hríslunni, bind sjónir mínar við kræklóttan stofn og greinar, einskorða hugsun mína við þessa hríslu og læt dýrmæta vizkuna streyma óskerta framhjá hlustum mínum. Stundum detta mér í hug fakírarnir, sem festa augnaráð sitt og hugsun vikum saman, og öðlast að launum sannleikann um áhuga- mál sitt. Að vissu marki er tilgangur minn hinn sami. En augnaráð mitt er flöktandi og hugsun mín reikul, en engu að síður hef ég öðlast sannleika af samskiptum mín- um við hrísfuna. Hríslan hefur tekið eðlilegum breyting- um síðan í haust. Slíkt er eðli allra lífrænna hluta. Fyrst þegar hríslan vakti athygli mína, voru greinar hennar alsettar dökk- grænum, tenntum smáblöðum, eins og allra hinna hríslanna úti fyrir glugganum. Smám saman öðlaðist þessi eina hrísla meira gildi fyrir mig fremur öllum hinum. Ef til vill var það vegna þess, að hún var næst glugg- anum, eða et' til vill vegna þess, að síðar hlutum við bæði sömu örlög. Ég kynntist henni, útliti hennar, eiginfeikum og þeim hugsunum, sem hún vakti þá hjá mér síðar, og það var aðalástæðan fyrir því, hvernig fór. Þá hafði hún ekki glatað dýrð sumarsins. En fljólega vöfðust rendur blaðanna upp í þurra, stökka sívalinga, og gulri slikju brá á sumarlitinn. Fljótlega tók mér að gremjast útlit henn- ar. Mér varð illa við að sjá hana íklædda fölnuðu skrtiðinu, og hugsaði til þess tím- um saman með illgjarnri vissu, að innan n'i hafct hugfast. skamms léki haustnæðingurinn unr greinar hennar, laufið visnaði, blaðstilkarnir veikt- ust og að lokum brystu í hamremmi ís- lenzka vetrarstormsins. Þá myndu lrlöðin feykjast brott, eitt af öðru, og hverfa sjón- um í óendanlegan hringdans annarra blaða a£ öðrum lrríslum, sem að loknum leik vindanna munu safnast saman í skjólgóðum og hlésælum göturennum og bíða strætis- sóparans. Ég gældi við þessa hugsun og hlakkaði til þeirrar stundar, þegar þessar óskir mín- ar rættust. Um þær mundir fundust mér þessar hugsanir nrínar ofur eðlilegar, enda hafði ég ekki grennslazt fyrir um, hvað lægi að baki jreim. Seinna fór ég að líta niður á þetta tímabil úr hásæti þess, sem hefur þekkingu til að bera, eins og við lítum öll niður á barnæsku okkar, sökurn þess hve fávís við höfum þá verið samanborið við vizku okkar nú. Þannig var mér háttað fram til fyrsta haustkuldans í síðustu viku sumars. Loks kom hann um nótt. Gegnurn grá- leita móðu á glugganum mínum fylgdist ég með baráttunni milli hríslunnar og hausts- ins, sem lauk með ósigri hennar. Haustið skildi við gulnuð og tætt klæði utan um krokinn líkama. Ég gladdist yfir breyting- unni, en vissi, að hún var enn ekki alger, og innan skamms kæmi stormurinn og fylgdi eftir sigrinum. Og stormurinn kom þrem dögum síðar, og úr glugganum varð ég vitni að harmleik, sem fyllti mig illviljaðri gleði, án þess að ég vissi hvert rætur liennar lægju. Hann tætti burt laufin eins og verið væri að rýja tötr- ana af varnarlausri konu. Óskir mínar voru að rætast. Innan skamms stæði nakinn líkaminn einn eftir MUNINN 35

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.