Muninn

Volume

Muninn - 01.01.1964, Page 16

Muninn - 01.01.1964, Page 16
— Telur þú tímabært að breyta námsefni að einhverju leyti? — Um stærðfræðideildina er það að segja, að málakennslan verður að teljast fullmik- il. Mér finnst varla rúm fyrir latínuna, og bezt. teldi ég, að hægt væri að velja á milli frönsku og þýzku. — Hvað heldur þú um náttúrufræði- deild? — Hún hlýtur að koma fyrr eða síðar. Þá færumst við um leið í áttina til sérhæf- ingarinnar, sem við vorum að tala um áðan. Annars er ég svo íhaldssanrur, að ég er ekki hlynntur mikilli sérhæfingu eða rnikl- um breytingum. Sumir prófessorarnir úti ráðlögðu okkur t. d. ekki að einblína um of á sérhæfingu. Þeir sögðu að við skyldum hlusta á sem flest, því sérhæfingin kæmi hvort eð væri, þegar komið væri út í at- vinnulífið. Þetta var í stóru iðnaðarþjóðfé- lagi. Hérna ætti þetta að gilda í enn ríkari mæli. — Svo er hér ein samvizkuspurning. Heldur þú að mannkynið sé á réttri braut eða að troða einhverja refilstigu? — Ég hef engan brennandi áhuga á að bæta heiminn, því ef maður ætlar að gera það, verður maður að byrja á sjálfum sér. Mér finnst hann nokkuð góður eins og hann er, svo fremi að ekki verði kjarnorku- styrjöld. — Nú tökum við eftir, að Helgi er farinn að ókyrrast og renna augum í átt til eld- hússins. Loks segir hann okkur, að hann þurfi að fara að taka til kvöldmatinn. Við skiljum aðstöðu hans og spyrjum að blaða- mannasið, hvort það sé ekki eitthvað, sem hann vilji segja að lokum. — Ekkert nema það, að ég þakka ykkur fyrir komuna og myndi ráðleggja ykkur að fara heim að lesa stærðfræði, því að stærð- fræðinám er nefnilega engin sérhæfing, heldur undirbúningur undir lífið (!). Bergþóra Gísladóttir og Gunnar Eydal. Því skalt þú hafa hugfast. .. (Tramhald af bls. 36.) gat aldrei notið þess, sem hvert augnablik hafði upp á að bjóða, heldur beið einatt eftir því sem næst tæki við eða syrgði það, sem liðið var. Lífið er eitt slíkt kyrrstöðu- tímabil, sem þjónar jreim tilgangi einum að bíða dauðans. Séurn við veik fyrir, myrð- um við okkur sjálf eins og ég myrti hrísl- una, ti! þess að binda endi á kyrrstöðuna, og leiða í ljós jrað, sem koma skal. Þessi vissa átti luig minn allan, og ég fjarlægðist æ meir umhverfið. Ég gerðist rekald fyrir straumi hugsunarinnar, vakti ugg og ótta rneðal félaga minna, en leið sjálfum eins og nakinni hríslu í vetrar- stormi, sem tætir af henni allt, sem hún hefur til skjóls, unz nakinn sannleikurinn er einn eftir. En ég var einn hinna veiku og ákvað að stytta þessa bið. A frostbitru janúarkveldi fór ég niður á yzta bryggjusporðinn og tók á móti örlögunum í köldum viðjum vatns- ins. Daginn eftir fannst ég rekinn litlu sunnar uppi í fjörunni. Ég var klæddur hvítum líkblæjum og lagður í kistu á kostnað ríkisins. Presturinn fór um jiað varfærnum orð- um, að á ævikvöldinu hefði ég orðið öðru- vísi en fólk er ílest og hefði nú öðlazt frið að lokum. En ég var aðeins einn hinna veiku, sem ekki þoldu biðina. Loks var kistunni stungið ofan í ný- tekna gröfina, eins og vindbörðum stofni og svívirtum greinum væri fleygt í ösku- tunnuna. Því þú skalt hafa hugfast „að i)ll vor sæla er annað hvort óséð eða liðin“. íón. Aukatími í latínu, 6. m. Jón Árni: Hvaða orð eftir 3. beyg. enda ekki á -um? Jón Kristjánsson: Þau, sem enda á -ium. 44 MIJNINN

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.