Muninn - 01.11.1967, Síða 6
Muninn 1927-37
Fyrsta tölublað Munins var geiið út 29.
október 1927. Að útgáfunni stóð Málfunda-
félagið Huginn, Gagnfræðaskólanum á Ak-
ureyri. Blaðið liefst á „Reglugjörð fyrir
skólamálfundafélagsblaðið Munin.“ Þar er
kveðið á um stjórn þess, stærð og útkomu-
tíma. Tveir menn sátu í stjórn: ritstjóri og
gjaldkeri. Fyrsti ritstjóri skólablaðsins var
Karl ísfeld, er síðar varð rithöfundur og
kunnur ljóðaþýðandi. Blaðið var fjölritað,
sex blaðsíður að lengd og í stóru broti.
Ritstjóri fylgir blaðinu úr hlaði með
myndarlegri grein, þar sem hann hvetur
alla nemendur til að leggja sitt af mörkum
til félagslífs í skólanum. Hann skrifar m. a.:
„Einn þátturinn í félagslífi skólans er
þetta blað. Það á að vera brú yfir tor-
tryggnislindir þær, sem líða kunna milli
bekkja og einstaklinga. Skólasystkini, leggið
livert ykkar sinn stein í brúna.“
Efni fyrsta lrlaðsins er að öðru leyti létt
smásaga, tvær ritgerðir og fréttir. Menn
rita gjarnan undir dulnefni, og kennir þar
margra grasa. Tyrfingur, Gestur eineygði,
Örninn ungi og Angurgapi eru á meðal
greinahöfunda.
Að viku liðinni kom annað tölublað
Munins út. Ber þar hæst frásögn af þeim
merkisatburði, er skólinn hlaut rétt sinn til
að brautskrá stúdenta.
Frásögn blaðsins er þannig:
Menntaskóli Norðurlands.
Morguninn 29/10, áður en kennsla hófst
í Gagnfræðaskólanum, kom dórns- og kirkju-
málaráðherra til vor í skólann og las upp
bréf það, er hér fer á eftir, að öllum kenn-
urum og nemendum viðstöddum.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið 25/10 1927.
Á fundi 22. okt. sl. hefur ráðuneytið
ákveðið, að Gagnfræðaskólinn á Akureyri
skuli hér eftir hafa heimild til þess að halda
uppi lærdómsdeild menntaskólans skv.
reglugjörð frá 1908 með tveim minniháttar
breytingum viðvíkjandi aldurstakmarki og
sumarleyfi. Skal þessi deild hafa rétt til að
útskrifa stúdenta, og fari próf þeirra, þar til
öðruvísi hefur verið ákveðið með lögum, að
öllu fram eftir ákvæðum gildandi prófreglu-
gerða máladeildar menntaskólans, enda
veiti allan sama rétt.
Áður en kemur að prófi næsta vor, mun
ráðuneytið gefa út reglugerð til handa
Gagnfræðaskólanum vegna þessara áður-
nefndu breytinga á lengd og starfsháttum
skólans.
Jónas Jónsson. Sigfús M. Johnsen.
I næsta blaði rifjar Muninn upp ýmislegt,
er gerðist í hinu mikla kaffisamsæti, sem
haldið var til heiðurs hinum norðlenzka
menntaskóla og brautryðjendum hans.
Hvergi var húsrúrn nægjanlegt til hátíða-
halds nema í leiklimisal skólans, 02: var
hann allur skreyttur fánum og dúkum.
Hófið sátu allir nemendur og margt göf-
ugra gesta, alls um tvö hundruð manns.
Jónas ráðherra talaði um skólamálið, af-
stöðu sína til þess og væntanlegt fyrirkomu-
lag menntaskólans. Margir aðrir tóku til
máls, og var einlæg gleði meðal veizlugesta
yfir hinum norðlenzka sigri.
Þetta ár ríkti mikill áhugi um útgáfu
Munins. Tölublöð urðu átta alls. Efni virð-
ist æði misjafnt að gæðum. Smásögur eru í
heild bragðlitlar. Ritdeilur eru engar, og
veldur því líklega bernska Munins frernur
en algjör eining meðal nemenda. Margar
greinar og ritgerðir eru þó bæði merkilegar
6 MUNINN