Muninn - 01.11.1967, Síða 24
í lok september tóku nemendur að ílykkj-
ast að. Sunnudaginn fyrsta okt. fór skóla-
setningin fram á Sal. I setningarræðu sinni
þakkaði skólameistari þeim, sem haft höfðu
stjórn skólans með höndum í fjarveru hans
síðastl iðíð skólaár. Einnig flutti hann
kveðjur og fréttir af kennurum, sem farnir
eru frá skólanum, og kynnti nýja kennara.
Hann gat að síðnstu nýjunga í starfsemi
skólans, og að nemendur væru nú fleiri en
nokkru sinni fyrr eða milli fimm hundruð
og tíu og tuttugu.
Klukkan níu næsta dag var svo hringt á
Sal og nemendum raðað í stofur sínar og
sagt fyrir um bókakaup. Kennsla hófst síð-
an í öðrum tíma á þriðjudag.
Fimmtudaginn 5. okt. var hin árlega nátt-
úruskoðunarferð sjötta bekkjar fyrirhuguð,
en sakir ónógrar þátttöku var henni aflýst í
það skiptið. Hún var svo farin síðar í mán-
uðinum.
Laugardaginn 7. okt. var enn kallað á
Sal. Þar brýndi skólameistari skólareglurn-
ar fyrir mönnum og þá sérstaklega þeint, er
nýir voru. Hann hvatti nemendur til prúðr-
ar framkomu og skýrði frá viðurlögum við
þeim freistingum, sem nemendur vilja eink-
um lalla fyrir. Um kvöldið héldu fimmtu-
bekkingar dansleik á Sal. Þar voru það
Geislar, sent sáu um fjörið, og var samkoma
þessi fjölsótt og fór vel fram.
Miðvikudaginn 11. okt. sungu rnenn á
söngsal, og virtist sá söngur ætla að bera ár-
angur, jrví að í Jrriðja tírna var hringt á Sal.
Tilefnið var þó annað. Á Sal var kominn
Gunnar Steindórsson brunaeftirlitsmaður,
og skýrði hann frá því, hvernig nemendur
ættu að bregða við, ef eldur kæmi upp í
skólanum. Við þetta tækifæri kom til
snarprar orðasennu milli Þóris Sigurðsson-
ar og Gunnars, því að Þórir vildi, að jreir,
sem fengju Jrví við komið, stykkju út um
glugga í slíku tilfelli. Á eftir var haldin æf-
ing, og fóru allir út um dyrnar.
Leið nú tíðindalaust að helgi, en þá var
haldið Setustofuball á sunnudaoskvöld, oar
sá þar bráðfjörugur plötuspilari um undir-
leikinn.
Annalis
Tóku menn nú að kunna ófrelsinu illa
og sungu ákaft á mánaðarfrí, og í fjórða
tíma þriðjudaginn 17. okt. var hringt á Sal.
Þar var gengið til kosninga af mikilli
hörku, og varð föstudagurinn 20. okt. fyrir
valinu.
Um kvöldið hóf Huginn starfsemi sína
með málfundi í Setnstofunni. Þar voru
rædd efnin Ræðumennska og Millibekkja-
próf. Lhnræður urðu fjörugar, og tóku
margir til máls.
24 MUNINN