Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1926, Blaðsíða 10

Heimilisblaðið - 01.11.1926, Blaðsíða 10
126 HEIMILISBLAÐIÐ Björg-unartáknið. Ilér sést mynd af ungri stúlku. Hún lag'ði af stað á bátnum sínuin í sólskini og sumarblíðu. Báturinn barst áfrain fyrir hafgolunni eftir spegilsléttum haffletinum. »Himn- eskt er að lifa«, söng hún þá. En fyr en varði dró upp ský. Stormur skall á, og sjórinn varð allur í uppnámi. Unga stúlkan sá forlög sín, því að alt í kringum sig sá hún samferðamenn sína hníga í dauðadjúpið. Holskeflurnar gengu yflr bátinn hennar og færðu hann í kaf. Hún hrópar til Guðs um hjálp. En j)á sér hún krossmarkið fram undan, gnæfandi upp úr sjón- um. Ilún grípur dauðahaldi um krossinn og fær örugga fótfestu. llún bjargast. Hér er skýr mynd af mannlífrnu. Æskumaðurinn leggur af stað með »brjóstið veikt og býrt og lilýtt, og hyggur að líflð sé svo blitt«. En svo skellur óveðrið á: freist- ingar, efi, sorg og neyð. — Pá dugar ekkert, nema Drottins náð, ekkert neina frelsarinn. Engfnn hjálpar nema hánn. Yerkin reynast ónýt, ónýt trúin á sjálfs síns mátt og megin. Petta fann íslenzka sálmaskáldið séra Ei- ríkur Hallsson á Ilöfða. Myndin hér að ofan er eins og gerð eftir hugsun hans, eins og hún kemur fram í þessurn fjórum versum (Sálmab. 282): »Til fjallanna upp eg' augum lít, pví ofan paðan hjálpar nýt, minn Jesú, blíði bróðir; ei ómaklegan af pér slít, ó Jesú, Jesú góði. Pví vötnin æða voðalig, og vilja í djúpið svelgja mig, minn Jesú, bliði bróðir; eg alla von á einn set pig, Ó Jesú, Jesú góði. 1 hörmungunum, herra minn, upp horfa’ eg vil á krossinn pinn, minn Jesú, blíði bróðir; par Guðs míns elsku eg alla finn, ó Jesú, Jesú góði. Mín sál er hungruð, hrygg og pjáð og hjartað pyrstir eftir náð, minn Jesú, blíði bróðir, en einn ert pú mitt athvarf práð, ó Jesú, Jesú góði«. Sarna liugsiin felst í þessu versi: »Blessunardaggir lát drjúpa, Drottinn, ó send oss pær nú, faðmandi kenn oss að krjúpa kross pinn með lifandi trú«.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.