Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1926, Side 19

Heimilisblaðið - 01.11.1926, Side 19
HEIMILI3BLAÐIÐ 135 Biðjum um kraft til að geta verið nálægc honum, þrátt fyrir ailar freistingar og minnumst orðanna hans: „Sælir eru þeir, sem ekki sjá, en trúa þó!“ Marcellus dvaldi langa stund í forsælunni. Áður en hann fór frá Rómaborg, þá hafði kennari hans gefið honum afrit af guðspjalli Mattheusar. Þennan dýr- grip 'bar hann altaf á sér og greip hvert tækifæri til að lesa í guðspjallinu, sem hann var einn síns liðs. Nú tó'k hann það upp. Það var ritað á bókfellslengju, sem hann óf upp á kefli. Það var ritað á hebresku, en hann gat samt lesið það; var það að þakka sam- vistum hans við Zadok og fjölskyldu hans og aðra Jórsalabúa. Hann sökti sér niður í að lesa, þangað til kvöldskuggarnir mintu hann á, að nú væri kominn tími til fyrir hann að hverfa aftur heim í tjald föð- ur síns. „Ó, að þær Naómi og Kládía væru komnar hingað, þar sem Drottinn var á gangi og orðin hans hljóm- uðu, þá skyldi eg lesa fyrir þær orðin af munni hans; eg skyldi þá taka upp alt það, sem Klemens hefir sagt mér um hann; þá skyldi eg hræra hjörtu þeirra með þeim frásögum, ræðum og bænum, sem hann talaði til að dreifa skýjum fáfræðinnar og hleypi- dómanna, sem umhverfis hann voru. Naómi tilbiður þó hinn eina, sanna Guð, þó í vanþekkingu sé, en veslings systir mín er því miður heiðingi enn sem komið er. Guð gefi vitnisburði Naómí þann kraft og annara vina hennar, að hún megi verða undirbúin til að taka við sannleika kristindómsins. — Guð láti það eigi verða, að faðir minn deyi eins og heiðingi? Æ, elsku mamma mín er nú farin þangað, sem eng- in mannleg orð geta framar náð til hennar. Nú er hún þar, sem enginn efi né óvissa er framar til. Hún dó í vantrú og vanþekkingu, en það var áreiðanlega af því, að henni hafði aldrei verið boðaður sannleik- urinn. Hún var guðrækin og auðmjúk í anda. Hún leitaði Guðs en fann hann ekki, af því að myrkur heiðindómsins var yfir henni. En nú hefir hann, sem dó fyrir alla, ef til vill tekið burtu syndir hennar og endurleyst sálu hennar, þó að henni gæfist eigi færi á að þekkja hann hév í lífi. Marcellus unni móður sinni hugástum, og þegar hún dó, var honum sárast að hugsa til þess, að hún hefði dáið ókristnuð. Nú leitaðist hann við að hugga sig við hina óendanlegu miskunnsemi frelsara síns og vænti þess, að af henni, sem var trúað fyrir nokknnn árum felt gainalt eikitré, liolt að innan. Innan í trénu fundu þeir þá 150 leðurblökur, sem lágu þar í vetrardvala. lljá Rússum var það vsnja, að ungur maður var ekki talinn fjár síns ráðandi, fyr en hann væri 2G ára gamall. Alt til þess tíma máttu for- eldrarnir taka fjóra fimtuparta af afláfé hans. Eitt af undrunum í Japan er tré, sem rýkur. Sköinmu fyrir sólsetur á kvöldi hverju tekur tréð að rjúka; leggur þá þétta gufu upp af stofnin- um ofanverðum. Fyrir skemstu mátti sjá merkilega sjón í Kalkútta á Indlandi. Yagni var ekið um göturnar, og upp úr botn- inuin á honum stóðu 150 járngaddar hvassir; á vagninum lá Indverji endi- langur á bakinu. Ilann liafði mittis- skýlu eina á berum sér, og gadd- arnir stungust djúpt inn í líkaina hans, sein var allur sundurtættur og blóðugur. Fjöldi manna liorfði á þennan vagn, en enginn hreyfði sig til að stöðva hann, ekki einu sinni lögregluþjónarnir, sem viðstaddir voru, því allir •vissu, að hann var að fara til liofs guðsins Kali, til þess að bæta fyrir syndir sínar. Þar gera mennirnir sjálfir alt, en guðirnir gera ekki annað en heimta. Þeir eru ekki að hjálpa mönnum í þeim sökum. 1 mörgum fylkjum í. Sviss eru allir jarðaöir á alþjóðlegan kostnað, jafnt ríkir sem fátækir. Það er dýrt, að skjóta af fallbyss- um. Eitt skot kostar um 3000 kr. Pálminn hefir frá fyrstu öldum ver-

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.