Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1927, Side 9

Heimilisblaðið - 01.11.1927, Side 9
HEIMILISBLAÐIÐ 129 hafði svo oft og innilega óskað þess, að hún væri orðin Gyðingastúlka, svo að það hefði verið skylda sín eins og það væri nú hjartans ósk sín, að taka þátt í sorg og þrengingu með þeim. Hún hafði sín- ar björtu framtíðarvonir, og skal frá þeim sagt síð- ar; en hún var hrædd um að óskir sínar mundu koma í bága við óskir föður hennar, og hann mundi þá krefjast meira af sér, en hún væri fær um að inna af hendi. embættis síns, og nýlendumenn vildu engan veginn missa liann. Pó að Júkka væri lengi fjarri ætt- mennum sínum, svo að enginn þeirra vissi um hann, þá var hann ekki að- gerðalaus, og gleymdi eigi hatrinu til nýlendumanna. Ilann srnaug um alla skógana kringum Jameston, og sat um að veiða einhvern bofgarmanna, ef færi gæflst á, og allra helzt höf- uðsmanninn. En hann komst aldrei í Óðara en hún þekti Javan í aldingarðinum, liug'ði hún, að faðir sinn hefði sent hann eftir sér og ætti hann að vera förunautur hennar og verndari á leið- inni; hlustaði hún því með. öndina í hálsinum á þau orð, er þeim Naómí fóru í milli, þangað til henni skildist, að hann hefði flúið úr rómversku herbúðun- um og hygði sízt af öllu á það, að hverfa þangað aft- ur. En er hún hlustaði á söguna af flækingi hans og kornst að raun um, hve langt var síðan hann strauk úr herbúðunum, þá vaknaði órósemin hjá henni út af því, að bróðir hennar hafði ekki svo lengi látið til sín heyra; var hún hrædd um, að bréfið hefði glat- ast eða bréfberinn reynst óáreiðanlegur. Hún spurði því Javan spjörunum úr um ættmenn sína.Og meðan þau áttust nú við um þetta, þá brá Zadók meistar- anum á eintal og leitaðist við að fá hann til að sam- þykkja þá ákvörðun sína, að láta son sinn fyrst um sinn vera þess dulinn, að systir hans hefði tekið kristna trú. Zadók gat með naumindum fengið meistarann til að þegja um þá staðreynd fyrir Javan og sýna Na- ómí í návist hans sömu blíðu og áður, því að hinn ofstækisfulli meistari brann af löngun til að segja sínum vandláta lærisveini frá allri vonzku hennar, þar sem hann var sannfærður um, að hann mundi leggja sér lið um það að fá Zadók til að beita hörðu, því að með því einu mundi hann geta kornið vitinu fyrir syndarann. Það bar því brýna nauðsyn til að hann veitti henni ennþá langan frest. Og þungur var hann á svipinn, er hann kom aftur í hópinn; en ekki leið þó á löngu, áður en hann og Zadók væru aftur komnir í fjörugar samræður við Javan um lands- málin. Javan sagði þeim nú svo mikið frá áformum Sím- onar, sem honum þótti ráðlegt; hann hélt miklar lof- ræður urn hreysti höfðingja síns og vandlæting hans færi við þá um veturinn eða sumarið, og beið því haustveiðanna. Þá fóni borgarmenn jafnan á veiðar, til að safna sér sem mestum vetrarforða. Fundu þeir oft Inda, og bannaði þeim enginn veiðarnar. Einn dag fór höfuðsmaður sjálfur á hjartaveiðar og hinir beztu veiði- menn með honum. Þeim iiepnaðist yfrið vel og feldu mörg dýr; voru þeir allir glaðir. Pá sá einn veiði- maður fagurt rádýr. I’eir hlupu allir eftir því, en höfuðsmaður og Þornton voru síðastir. Pá fló ör úr skógimun í síðu höfuðsmanni og særði liann, svo að hann hné í faðm Porntoni. Pegar veiðimenn sáu höfðingja sinn hníga niður, æstust þeir til hefnda og hlupu víðsvegar út um skóginn lil að ná þessum fláráða morðingja og svala sér á honum. Leituðu þeir eins og þeir gátu, en fundu hann ckki, og sneru svo aftur til Porntons. Ilonum gramdist þetta og sagði: »Pekkiö þér ekki kænsku Inda? Mað- urinn er skamt.heðan; þaðan kom örin, og mun svikarinn felast þar«. Veiðimenn hlupu þangað í skóginn, er Pornton benti, og litlu síðar heyrði hann kall veiðimanns, svo að hann skildi, að þeir höfðu fundið inanninn. »Já, nú hafa þeir fundið hann«, sagði hann og glaðnaði yfir honum. Pá heyrði hann aftur óp þeirra og skot. »Eg vona, að þeir láti hann eigi sleppa«, sagði Pornton. Og nú

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.