Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1927, Síða 13

Heimilisblaðið - 01.11.1927, Síða 13
HEIMILISBLAÐIÐ 133 að tala við hana um þetta efni. Og Naómí var það hin mesta gleði að taka þátt í þeirn hugljúfu sam- ræðum, sem þau áttu með sér oft og einatt. En Na- ómí var heitari í anda og brann af áhuga og Þeófíus, sem var svo miklu rólyndari, fjekk frá henni þann eld og kraft í orð sín, sem hann hafði skort alt tii þessa. Þau Naómí og Þeófílus urðu nú brátt eins og samborin systkini, þar sem þau höfðu verið frænd- systkin áður, þar sem þau voru nú bæði orðin sömu trúar og leituðust nú sameiginlega við að fá hina hjartkæru vinu sína til að taka kristna trú. — Þegar þau Amazía og kona hans dvöldu í húsi Za- dóks, þá tóku þau eftir, að þau sonur þeirra og hin unga heiðna rómverska mey voru farin að hneygja hug hvort til annars og olli það þeim nokkurrar á- hyggju. En Kládía dró að sér hjörtu þeirra með yndisleik sínum; og er Þeófílus sagði þeim, að hún hefði opn- að hjarta sitt fyrir kristindóminum, þá samþyktu þau með gleði að taka á móti henni sem tengdadótt- ur sinni. Þau leituðust nú við, eins og þeim var unt, að hafa hana hjá sér og fastréðu með sér, að fá samþykki föður hennar til ráðahagsins, jafnskjótt, sem hún væri undir skírnina búin og verða þeim svo samferða til Efesus. Naómí gladdist innilega af hamingju vinu sinnar; en hún hugsaði til þess með hrygð, að þær yrðu nú að skiija, og nú nálgaðist óðum sá tími, er allir kristnir vinir hennar yfirgæfu hana; yrði hún þá ein eftir og ætti engan trúnaðarvin að. Hún vissi að sönnu, að meðan María í Betaníu væri á lífi, þá skildi hún hana og mundi leiðbeina henni; en hún sá, að hún mundi eiga skamt eftir ólifað, Drottinn mundi bráðlega frelsa hana úr heimi þeim, sem var fullur stríðs og mæðu í augum Naómí. En samt sem áður gat hvorki Kládía né frændfólk Naómí fengið hana til að fara landflótta með þeim. Foreldrar hennar mundu fúslega hafa gefið samþykki sitt til þess, því að Zadók var farinn að efast um, að hún mundi nokkurntíma hverfa aftur til trúar feðra sinna; og hann óaði mjög við þeirri smán, er það- yrði heyr- inkunnugt, að hún hefði kastað trúnni. Þess vegna fanst honum það óskaráð og hinn mesti léttir og fró, ef hún færi úr föðurhúsum. Og þó að Salóme hefði að sjálfsögðu saknað hennar beisklega, þá sárbændi hún hana næstum samt að fara. burt. Hún kvaðsr ekki mundu þola alla þá sorg og stríð, sem hún, John var nú injög áhyggjufullur út áf því, að hann væri nú fjarri mönn- um sínum, er þeir voru staddir í mestum háska. Samt þorði hann ekki að snúa til borgarinnar, með því að liann var lieldur eigi gangfær fyrir sárum sínutn. Pókahontas hjúkraði honum sem bezt hún gat, safnaði lækningajurtum til að leggja við sár lians, og súrum aldinum til svölunar í sárasóttinni. Ekki vissi hún, hveruig bardaganum hafði lokið, og þorði því aldrei að koma nærri borginni til að njósna um það, og forðaðist að láta sjást nokkur spor eða merki þess, hvar hún gekk. Powhatan hafði geíið því gaum, að höfðingi nýlendumanna féll í bardag- anuin, en vissi, að liann var ckki á valdi sinna manna. Hann saknaði líka dóttur sinnar. Eftir nokkra daga komu íriðmenn frá borginni, er kaupa vildu höfðingja sínum lausn, því að þeir ætluðu, að hann væri í höndum Irida. Pá grunaði Powhatan, aö höfuðs- maður væri á lííi, og mundi dóttir sín vera hjá honum, vænti því, að sér mætti enn auðnast að ná honum og hefna þess griinmilega á lionum, að liknn tók af lííi hinn tignasta mann ættarinnar, Júkka, fósturson hans, og ná aftur barni sínu, sem iiann unni svo lieitt. llann kallaði því til sín alla beztu menn ættarinn- ar og skipaði þeim að leita liöfuðs- mannsins og dóttur sinnar sem vand- legast alla vega. Peir fóru þegar í leitir, og könn- uðu alla skóga og fylgsni þar um- hverfis, en fundu alls ekki. Gekk svo marga daga. Pá varð Powhatan afarreiður, stapp- aði niður fótunum og sagði að það væri mikil höfuðskömm, að þeir sæi eigi við brögðum einnar konu, því

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.