Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1927, Side 15

Heimilisblaðið - 01.11.1927, Side 15
II EIMILISBLAÐIÐ 135 sálarangist Guðssonar handa þeim. Naómí hafði aldrei komið í þennan garð frá því er hún tók kristna trú, trúna á hann, er hafði svo oft helgað þennan stað með návist sinni og leitaði þar hvíldar og friðarskjóls að loknu starfi dags og mæðu. Þarna hafði hann talað við hina útvöldu postula sína og þarna hafði hann verið stundum saman á bæn fyrii- þeim, er taka mundu síðar trúna á hann fyrir þeirra orð. Ó, hve minningin um þessar bænir var dýrmæt fyrir Naómí. Þó að hún væri ung í trúnni, þá var hún þó farin að þola ilt vegna hans, og hún hafði á- stæðu til að vænta nýrra þrenginga í framtíðinni. En hún vissi, að hún mátti tileinka sér þessi oro Drottins til Péturs: „Eg hefi beðið fyrir þér, að trú þín þrjóti ekki“. Hún huggaði sig við þessa fyrirbæn og treysti því, að henni mundi veitast kraftur til að taka upp sinn kross og fylgja lambi Guðs, hvaða stigu sem það kynni að leiða hana. Hún var svo sokkin niður í þessar alvarlegu, en enganveginn niðurbeygjandi hugleiðingar, að hún tók engan þátt í samræðunum sem spunnust milli Þeófílusar og Kládíu, það sem eftir var vegarins til Betaníu. Eins og eðlilegt var, þá töluðu þau um síð- ustu æfidaga Drottins hér á jörðu og þeim var ekki lokið, er þau bar að dyrunum á húsi Maríu. Kládía settist á stól við rúm Maríu, er lá þar sjúk, og mælti: „María, við höfum komið í garðinn á 01- ífufjallinu; þú varst búin að lofa að fylgja mér og Naómí þangað og segja mér frá síðustu dögum Jesú frá Nazaret. Verið getur, að þér veitist eigi þróttur til að fara til þess heilaga staðar. En viltu ekki segja mér alt, sem þú manst frá því að segja, er frelsar- inn kom síðast í þetta hús og frá öllum hinum sorg- legu atburðum, sem gerðust á síðustu dögum hans“. María svaraði: „Barnið mitt! Nú er það einka- huggun mín og gleði að lifa í endurminningunni um þá daga, þótt eg héldi þá, að hjarta mitt mundi springa af sorg. Nú, er eg skal bráðlega fara héðan. leitar sál mín huggunar í hugsuninni um það, að Drottinn minn og frelsari hefir afmáð allar syndi1' mínar með sinni heilögu pínu og dauða; annars mundi eg hníga undir þeim. Eg hefi ekki gleymt einu oi’ði af hinum dýrmætu orðum meistark míns né nokkru augnatilliti hans. Ó, ásjóna hans var björt eins og ljósið og raust hans færði þeim öllum frið og fögnuð, sem elskuðu hann. Og þá varð sá dagur að koma yfir mig, að eg heyrði hann hefja uþp raust trúarbrögðum, kenna þá síðan í skól- um og láta þá svo berast niður lil fáfróðrar alþýðu. I þessari sögu voru þessir útúrdúrar eða sérvizkulegu skýringar á veldi og vélabrögðum djöfuls og mannlegum ráðstöfunum til að verjast þeim ófögnuði. Þetta verður svo loks að svo magnaðri hjá- trú, að hún má heita sannnefnd and- leg þjóðarplága. (')ll skynsamleg guðs- dýrkun verður að vikja fyrir þessari heimsku. — Ln sagan sýnir líka, hverju einbeitt og vituileg varnaðarorð f;i til vegar komið til að leiða fáráðar og auðtriia manneskjur á rétta leið. Bjargad úr einstigi lýsir því, hvern- ig b'fið í ástamálum gat farið á þeim tíma, er ástirnar voru í heiðnum höndum, og foreldrar og framdur töldu sig liafa allan rétt til að láta ástir kvenna og karla fara og koma eftir eigin vild. — Það er konan í Skor, sem bjargar manni sínurn og húskonunni þeirra úr þessu voðalega einstigi, eða ógöng- urn, sem þau voru rötuð í. En þess verður jafnframt að gæta, að það er Guð, sem fyrst bjargar henni úr þvi einstigi, sem lnin sjálf hafði ratað í út af falli liinna. Enginn getur bjargað öðrum úr andlegum ógöngum, nema Guð haíi fyrst bjargað honum sjálfum og síðan gert hann að verkfæri í hendi sinni til að bjarga öðrum. Þessi saga er lang veigamest af þessum þremur sögum. og má heita snildarverk. Allar eru sögurnar af íslenzku bergi brotnar, sönn og ótakanleg dæmi úr þjóölífinu. Allar fara þær vel — hiö góða ber sigurinn úr býtum. — Þær eru enginn eymdaróður, eins og því miður alt of oft er sunginn nú á dögum í ritum hins nýja skáldakyns. Frásagnahátturinn er þróttmikill osr 1 ö

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.