Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1927, Page 16

Heimilisblaðið - 01.11.1927, Page 16
136 HEIMILISBL AÐ IÐ sína í sálarangist og sá ásjónu hans blikna í dauðan- um. En fyrst ætla eg, að segja yður frá hinum þungu stundum, er á undan fóru. Það var síðasta hvíldardagskvöldið fyrir páska, að Jesús kom til okkar. Við höfðum ekki hugboð um, hvað fram við hann mundi koma, áður en hin mikla hátíð væri um garð gengin. En við sáum, að læri- sveinar hans voru fullir sorgar og órósemi, og þeir sög'ðu oss í trúnaði, hvað hann hefði sagt, að fyrir sér lægi, og þá urðum vér líka hugdaprar. Drottinn þá það Ijúflega, er vér buðum honum til kvöldverðar hjá manni, sem honum var velviljaður; hét hann Símon og átti heima í Betaníu og við Marta gengum honum fyrir beina með gleði“. „Og það var þá, að því er Judit hefir sagt mér, sem þú smurðir fætur hans, og þerraðir þær með hári þínu“, tók Naómí fram í, „og þá var það, sem hann tók svo ástúðlega hollustu þinni og lofaði þig fyrir það“. — „Já, kæra Naómí. IJinn náðugi frelsari vor tók á móti hinni lítilfjörlegu þjónustu, til þess að allir vinir hans geti lært af því, að hann tekur ástúðlega á móti lítilfjörlegustu fórn, sem honum er færð af einlægu og þakklátu hjarta. Það var Júdas, svikar- inn, sem ámælti mér, fyrir það að eg eyddi svona smyrslunum, því að þau hefði mátt selja fyrir mik- ið fé, er hefði mátt skifta meðal fátæklinga. En þá þaggaði meistarinn niður í honum með þessum orð- um: Lát hana í friði, hún er 'komin til að smyrja mig til greftrunar. Æ, þá skildum við, að ástæða var til að búast við hinu versta; hinn elskaði meistari vor mundi innan skamms fara frá okkur. Þá varð hver samverustund- in því dýrmætari okkur öllum, sem eftir var. Daginn eftir dvaldi hann hjá okkur, og er það barst til Jórsala, að hann væri hérna, þá komu heilir hópar af Gyðingum hingað til að sjá hann og bróð- ur minn, sem Jesús hafði lífgað. Undir páskahátíð- ina kom fjöldi Gyðinga til Jörsala að vanda úr öll- um áttum; þar á meðal voru margir, sem aldrei höfðu sjeð Jesúm, þó að fregnir hefðu borist af hon- um um alt landið og þeir hefðu heyrt getið krafta- verka hans. Nú þráðu þeir að sjá með eigin augum, að Lazar- us væri endurlífgaður. En hvað það gladdi okkur, að bróðir okkar elskulegur, skyldi vera sem órækui vitnisburður um guðdómsmátt Drottins vofs og eðlilegur, neina ef vera skyldi í nátt- úrulýsingum höfundarins. Þar virðist mér honum nokkuð kippa í kyn hinna yngri skálda. Þar er liann sízt hvers- dagslegur og frumlegur. Annars þykir mér orðfærið hið snjallasta, og víða kennir þar ýmsra orða, sem vera munu smíði höf. sjálfs og eru vel til fundin. Eg las þessar »minningar« hans með óblandinni ánægju. Og það er hjartanleg ósk mín, að þær megi berast inn á sem flest heimili; þess er ekki sízt þörf nú á dögum, þar sem unga fólkið okkar virðist hneigj- ast um of að því, að gleyma fortíð þjóðar sinnar. 1 fari hennar eru svo mörg göfug og góð dæmi fólgin, að með sönnu má segja: »Þennan vér mætan eigum arf: minningu fræga, fegurst dæmi, svo niðjum liraustra í liuga kæmi aö iirfa hug' og efla starf«. B. ./. Biblían. Þess mun mig aldrei iðra, að eg fyrir nokkrum árum ásetti mér að lesa biblíuna að staðaldri. Það mun engum undarlegt þykja, sem fletta vilja upp tilgreindum ritningarstöðum. Iíyrláta stund skulum vér nú athuga fáeinar ástæður, sem í ritningunni eru fyrir því færðar, að trúaður mað- ur skyldi jafnan hugleiða orð Guðs. 1. Oss er boðið að kenna það og tala. V. Mós. 6, 5—7. 1 Beröu rann- sökuðu menn daglega ritningarnaf. Post. 17, 11. Tímóteus pekti ritning- arnar. II. Tím. 3, 15. Og Páll hvetur hann til að halda sér stöduglega við pað, sem hann hafði unnið. II. Tím. 3, 14. 2. Guð lætur þeim umbunað, er hans leita. ITebr. 11, 6. Heilagar ritn-

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.