Heimilisblaðið - 01.10.1915, Qupperneq 10
80
HEIMILJSBLAÐIÐ
— 3 })ingmannaleiðir svo hart, sem hún gat
farið. Daginn eftir var hún svo aum, að hún
stóð ekki upp, en lá altaf og var mjög daufleg.
Hún var rekin á fœtur, en hún átti bágt með
að standa upp. Ekki fékkst hún tii að bíta eitt
strá. Svona var hún í 3 daga. Urþvífórhún
að kroppa. En upp frá þessu var hún skökk
og hálf dróg annað lærið. Fjörið og tápið var
farið. Þetta var síðasti spretlurinn hennar.
Gr. Sigurðsson.
lldhúsrdð.
„Kartöflupönnukakau.
1 fuliur djúpur diskur soðnar rifnar kartöfl-
ur, 2 egg, 1 —2 matsk. mjóik, 1 matsk. brætt
smjör, ofurlítið salt og pipar. Þetta alt hrært
vel saman, smjör er því næst brúnað á pönnu
og deigið breitt á pönnuna og bakað við mjög
vægan hita. 375 gr. vínar- eða medisterpylsur
eru skornar í dálitið þykkar sneiðar og raðir
ofan á kökuna og þrýst hægt niður í deigið, ef
pylsan er ekki til má hafa vel soðið kjöt eða
kjötbollur skorið i bita, þegar kakan er bökuð
öðru megin, skal láta hana renna á lok af
pönnunni, láta smjör aftur á hana og baka svo
kökuna hinu megin. Framreidd á kringlóttu
fati og ef til vill skorin fyrir frá miðju og út í
brúnina í hæfilega mörg stykki. Með skal bera
vanalega brúna kjötsoðssósu með rifnum lauk
í eða þá hrært smjör.
I ýmsum bæjum i Ameríku hafa menn tekið
rögg á sig og myndað samtök um að útrýma
öllum skaðlegum flugum. Þar sem þetta hefi
hepnast vel, hefir reynzlan sýnt, að sótttnæmum
sjúkdómum hefir fækkað mjög og sumir alveg
horfið.
Nýlega keypti stúlka ein í Jóhannesarborg í
Suður-Ameríku stól á uppboði og gaf fyrir hann
15 krónur. Svo fór hún með hann til hús-
gagnasmiðs að láta gera eitthvað við hann. Hús
gagnasmiðurinn bauð henni 100 krónur fyrir
stólinn, ef hún vildi selja sér hann. En slúlkan
vildi ekki láta hann, datt strax í hug að hór
væri um minnisgrip að ræða, sem og var því stóll-
inn tilheyrði gömlum merkilegum húsgögnum, sem
bundnar voru við mjög merkilegar söguminning-
ar og svo lauk, að hún fékk 16000 kr. fyrir
hann.
Börnin í Zululandi eru hvít er þau fæðast,
en eftir 6 mánuði eru þau orðin svört.
Þjóðverji einn hefir búið til úr, sem hann
segir að geti gengið viðstöðulaust í mörg hundr-
uð ár án þess það sé nokkurntíma dregið upp.
Brezka biblíufélagið í Lundúnaborg gefur
biblíuna út á 450 tungum.
I hinní fornu borg Pompeje hafa fundist
beinagrindur með gulltönnum í. Það er því
ekki alveg nýr siður að láta setja í sig gull-
tennur.
„Dýjraverndarinn" talar máli dýranna.
Kemur . út 4 sinnum á ári, 16 síður í hvert
sinn. Arg. kostar 50 aura. Er með myndum.
Gerist kaupendur i dag. Afgreiðsla hjá
jóh. öym. Oddssyni Laugaveg 63.
FANNEY,
barnabók með myndum, 5 hefti alls, kostar50a.
hvert. Agæt barnabók. Fæst hjá öllum bóksölum.
Barnahlaðið „Æskan“ kemur út i Reykja-
vik mánaðarlega, 12 blöð á ári, og auk þess
sérstakt jólablað. Árg. kostar aðeins kr. 1,20.
Utg.: Aðalhjörn Stefánsson og Sigurj. Jónsson.
SKINFAXI, 16 siður á mánnuði. Flytur
myndir. Verð 2 krónur. Gefur skilvís-
um kaupendum „Þjóðfélagsfræðiu, eftir
Einar Arnórsson prófessor. Ritstjóri: Jónas
Jónsson frá Hriflu.
Utgefandi og ábyrgðarmaður:
Jón Helgason prentari.
Félagsprentamiðjan.