Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.02.1916, Blaðsíða 10

Heimilisblaðið - 01.02.1916, Blaðsíða 10
36 HEIMILISBLAÐIÐ vígði ])au í skyndi, og þá var líka þrek hans á förum og hann misti meðvitundina. Skömmu síðar skýrði læknirinn Marion frá þvi, að Feuton væri fyrir dauðans dyrum, og það væri aðeins einn möguleiki til að bjarga honum, og það væri að flytja nýtt og heilbrygt blóð inn í æðar hans. Hann hafði naumast slept orðinu, fyr en hún reif frá sér upphlutinn og beið hm'fsins, og úr hverri hreyfingu hennar og drætti, mátti lesa þann staðfasta ásetning að leggja alt í sölurnar fyrir manninn sem hún unni, að ofifra honum sínu egin blóði, nú hafði hún rétt til þess og engin önnur. Við vorum neyddir til að taka þessu boði hennar. Það var auðvitað stór áhætta fyrir hana, en hún hefði vafalaust framið sjálfsmorð, ef Feuton hefði dáið. — Feuton var meðvitundarlaus og nær dauða en lífi, þegar læknirinn tengdi saman æðar þeirra, en þegar hið hugrakka hjarta Marions Irafði dælt heilbrigðu blóði inn í æðar hans um stund, og á hana var síginn höfgi, fór að sjást lífsmark með honum smátt og smátt, fyrst ör- litill lífsvottur, en siðan meir og meir, eins og nýjir kraftar færðust um hann allan, og innan skams hafði hann fengið þann þrótt, að hann gat snúið við höfðinu til að sjá, hversvegna hann lá á horði en ekki í rúminu sínu. Þá varð honum litið á höfuð Marions við hlið sér, og hann leit spurnar augum á mig. „Eg varð að segja hon- um alt“, sagði Dixon í hrærðum róm. „En aldrei á æfi minni hefi eg yðrast meira eftir annað, því hann féll óðara í ómegin er hann fékk hið sanna að vita, og ætlaði að deyja i höndunum á okkur. Hann vissi betur en við hvað Marion átti á hættu. Þegar skurðinum var lokið þorði læknirinn hvorugt þeirra að flytja, og stundum saman lágu [þau þarna á borðinu og andardráttur þeirra var mjög veikur. Um siðir raknaði Feu- ton við, og sá hið föla andlit hennar við hlið sér“. „Marion11, hvíslaði hann, „ó, Marion ! “ Hún opnaði augun þreylulega, eins og hún kæmi frá landi draumanna, og brosti, veikt en hughreystandi ’og svaraði: „Já“. — Svo er nú i raun og veru ekki frá meiru að segja“, sagði Dixon og horfði upp í gulbleikan rnánann sem skein yfir okkur. „Feuton hrestist vonum fljótar, en Marion lá lengi eins og bliknað blóm, þangað til sjö mánuðum síðar að hún fæddi son. Hin unga móðir rétti við smátt og smátt, og það var ein- göngu því að þakka, að hún fann að ást Feu- tons var henni sönnun þess, að nú væri hún orðin virðingarverð og heiðarleg kona“. Konsúllinn stóð á fætur og gaf i skyn, að okkur mundi nú ráðlegast að fara að halda heimleiðis. Það var orðið framorðið, og við stóðum nokkra stund þögulir, áður en við skild- umst. „Litli drengurinn hefir þá víst dáið, ímynda eg mér“, sagði Lister um leið og við fórum. „Dáið“! hrópaði Dixon, og hló ánægjulega. „Nei svei mér þá alla daga. Eg skal fylgja ykkur út eftir til Feutons á morgun og sýna ykkur snáðann. Hann er frískur og eldfjörugur, ærslabelgur, með líkama föður síns, en sál móður sinnar. Feuton á plantekru hér nálægt og er hinn hamingjusamasti, eg vildi óska að fyrir mér ætti að liggja að verða jafn sæll og hann er“. K. þýddi. ipakmæli í ljóðum. „Ekki’ er undir einum skjól, annan stein má finna.“ Iljar og lýsir aftansól ársal vona minna. „Ekki dugar ófreistað.“ Ef í hugann kemur eiturfluga utan að, yfirbuga verður það. „Einhverntíma batnar byr,“ þó blási nú á móti. Verum ætíð vongóðir, vonin aldrei þrjóti! Guðm.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.