Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1916, Blaðsíða 3

Heimilisblaðið - 01.07.1916, Blaðsíða 3
arg. Reykjavík í júlí 1916. 7. tbl. Jfugskeij ti til framliðins vinar. II. EMert skil ég í, að þú aldrei skulir „síma“, úr því hafinn ertu nú yfir r ú m og t í m a. Þekkist víst „sá þráðlausi“ þarnu hinnmeginn. Send' með honum hugskeyti frá hjarta þinu eigin! Segðu alt, er segja mátt, frá sœlustaðnum góða! Er þar eilíf ást og sátt allra meðal þjóða? Veizlu hvernig umhorfs er i okkar heimi núna, og sigur hver úr hýtum her hlóðs á völlum Húna? Veiztu hvaða verkahring vinir dánir hafa? Eruð þið hjá oss alt í kring englamál að skrafa? Vertu sœll, — ég sakna þín, en sé þig, vinur, aflur, þegar sumarsólin skín og sálar þroskast kraftur. §. §. í §. ttarnöfnin. Einstaka menn eru nú að taka upp eettar- nafn, hrista af sér þúsundára venjuna íslenzku. Helzt eru það „fínu“ mennirnir, en bændur og búalið hafa vist um alvarlegri málefni að hugsa. Ekki er blærinn íslenzkur yfir þessum ætt- arnöfnum, allflestum, enda mun það og vera einn aðalkosturinn í augum eigendanna. Engar sögur fara af því, að Jón Sigurðsson, Tómas Sæmundsson, Baldvin Einarsson, Jónas Hallgrímsson og aðrir ágætismenn íslenzku þjóð- arinnarhafi oiðið sér til ininkunar utan lands eða innan, þótt þeir væru synir feðra sinna að forníslenzkum sið. Þeir fylgdu „gömlu kenningunni", sem hafði að orðtæki: Þjóðerni mettu þitt mest, er menta þú leitar, því undir yfirhöfn útlendri dylst oftlega biturlegt sverð, Sverð það er banasár bjó því bezt og fegrust þú áttir: innlendum ágætum sið, innlendum fornaldar keim. Bjarni Thórarensen, amtmaður, sá í anda ýmislegt slæðast með hingað til lands í útlend- um skipsförmum, í fylgd með rottunum, ýmis- legt sem hann ekki taldi bráðnauðsynlegt að flyttist hingað, Og hann sá líka að það, — eins og rotturnar — mundi taka sér bólfestu í kaup- stöðunum. Það sést á vfsunni þeirri arna. Þó vellyst í skipsförmum völskunum meður vafri að landi eg skaða ei tel, því út fyrir kaupstaði íslenzkt í veður ef hún sér vogar, þá frýs hún í hel. Og sennilega fer það svo með ættarnafna- sendinguna, því hún er útlend að ætt og upp- runa, hefir slæðst hingað í aðfluttum „menta“- mjölpokum, Hún verður úti á íslenzku fjall- görðunum þegar haustar að. Og það e? vel farið.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.