Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1916, Síða 9

Heimilisblaðið - 01.07.1916, Síða 9
HEIMILISBLAÐIÐ. 105 1 i j|roeðurnir. Eftir Eider Haggard. la^jir^a [Frh.] Þriðja morguninn spurði Masonda húsfreyja þá, þar eð þeir höfðu ekkert ráðfært sig við hana frekar, hvort þeir hefðu ekki minst á, að þeir vildu kaupa hesta, og þegar þeir játuðu því, bætti hún við, að hún hefði gert manni boð að færa sér tvo hesta, sem þeir gætu nú litið á, þvi þeir væru nú í hesthúsinu bak við garðinn. Þeir gengu þangað ásamt Masondu og fundu þar alvarlegan Araba er hafði sveipað um sig kápu af úlfaldahári, með spjót í hendi. Hann stóð við hellisdyr sem svo víða í Austurlönd- um eru notaðir fyrir hesta, þar sem hitinn er svo geisimikill. Þegar þau nálguðust hann, sagði Masonda. „Ef ykkur lízt vel á hestana, skuluð þið láta mig annast kaupin, og láta sem þið skiljið mig ekki“. Arabinn, sem gaf bræðrunum engan gaum, heilsaði Masondu og sagði við hana á arabisku: „Er það vegna þessara Franka, að mér er skipað að færa þér þessa dýrmætu hesta?“ „Hvað kemur það þér við frændi, sonur eyðimerkurinnar?" spurði hún. „Láttu þá koma út, svo ég geti séð hvort það eru þeir, sem ég hefi gert boð eftir“. Maðurinn sneri sér við og kallaði inn í hell- inn: „Eldur, komdu hingað!“ Það heyrðist hófatak, og út um lágu boga- göngin hljóp hestur, fegri en þeir höfðu nokk- urntíma fyr séð. Hann var grár að lit með svarta stjörnu i enni. Hesturinn var ekki mjög hár en sterklega bygður. Hann hljóp hneggj- andi út, en þegar hann kom auga á Arabann, húsbónda sinn, nam hann staðar við hlið hans, og stóð þar„kyr sem steingerfingur. „Heykur, komdu út!“ kallaði Arabinn aftur, og kom þá annar hestur, og nam sá staðar við hlið hins. Að stærð og byggingarlagi voru þeir alveg eins. en þessi var hrafnsvartur að lit,. með hvíta stjörnu i enni. Augu beggja voru mjög fjörleg. „Arabinn segir að þetta séu hestarnir“,, sagði Masonda, og vék sér að bræörunum. Þeir eru tvíburar, sjö vetra gamlir, og var al- drei kovnið á bak þeim fyr en þeir voru sex vetra. Þeir eru komnir af hinni fjörugustu hryssu á öllu Sýrlandi, og ættartölu þeirra má rekja langt fram í tímann“. „Það eru gullfallegir hestar“, sagði Wulf, „en hvað eiga þeir að kosta?“ Masonda endurtók spurninguna á arabisku, en maðurinn ypti öxlum og svaraði á sama máli: „Þú veizt að um verðið er ekki að tala, því þeir verða aldrei of borgaðir. Segðu til hvað þú vilt borga“. „Hann segir“ sagði Masonda við bræðurna, „að þeir kosti hundrað gullpeninga báðir. Get- ið þið borgað svo mikið?“ Bræðurnir litu hvor á annan. Upphæðin var mikil. „Slíkir hestar hafa bjargað mannslífum fyr“, sagði Masonda, „og ég get varla boðið honunr minna, því ég veit að i Jerúsalem væri hægt að fá fyrir þá þrefalt meira. £f þið óskið þess, skaf ég lána ykkur peningana, því þið hafið óefað einhverja dýrgripi til þess að leggja fram að veði, til dæmis hringinn sem Pétur bará brjóstinu“. „Við höfum peninga sjálfir“, svaraði Wulf, sem gjarnan hefði viljað borga sinn síðasta eyri til þess að fá þessa hesta. „Þeir vilja kaupa þá“, sagði Masonda. „Þeir vilja kaupa þá, en geta þeir riðið þeim?“ spurði Arabinn. „Það er ekki fyrir börn né pílagrima að ríða slíkum hestum. Kunni þeir ekki að ríða, fá þeir ekki hestana, nei, — alls ekki, og það þó þú biðjir mig um þá“. Godvin svaraði, að hann héldi að þeir gætu það, að minsta kosti vildu þeir reyna. Arab- inn yfirgaf þau og gekk inn í hellinn, og með aðstoð tveggja hestasveina kom hann með beisli og söðla gagnólika þeim er bræðurnir höfðu áður séð. Það voru aðeins þykk, stoppuð teppi sem náðu langt aftur á lend, gyrt með sterkri söðulgjörð,

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.