Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1916, Page 11

Heimilisblaðið - 01.07.1916, Page 11
HEIMILISBLAÐIÐ 107 milli og hann hugsaði með sér, aS hefðu þau hleypt yfir Iækinn íramar, hefði það verið feigð- arreið. Hinu megin við lækinn var sléttlendi, svolítinn spotta, en svo tók við brattlendi á ný, enn þá brattara en áður, og riðu þau þar millum skógarrunna, þangað til þau komu upp á fjallsbrúnina, og litu þaðan yfir sléttuna er þau komu frá, er lá tvær mílur eða meir fyrir neðan þau. „Þessir hestar klifra eins og geitur“, sagði Wulf, ,.en eitt er vist, að við verðum að teyma þá ofan“. Uppi á fjallinu var grjótlaus og greiðfær blettur, er þeir riðu um áfram með vaxandi hraða, eftir þvi sem hestarnir jöfnuðu sig eftir brekkuna. Alt í einu risu hestarnir upp á aft- urfæturnar og stönsuðu, enda höfðu þeir fulla ástæðu til þess, því þeir voru kornnir á barm- inn á afardjúpu gljúfri, með freyðandi fljóti í botni. Þeir stönsuðu eitt augnablik, en er Ar- abinn yrti á þá snéru þeir við og hlupu til baka yfir fjallið að brúninni, þar sem bræðurnir héldu að þeir mundu stansa. En Masonda hrópaði til Arabans og Arabinn til hestanna, og Wulf til Godvins á ensku: „Sýndu engan ótta, bróðir. Það sem þau ríða, getum við líka riðið“. „Bið til Guðs, að söðulgjarðirnar haldi“, svaraði Godvin, og hallaði sér aftur á bak, að brjósti Masondu. Meðan hann mælti þetta, lögðu þau af stað niður brattann, fyrst hægt og svo hraðar og hraðar, þangað til þau þutu áfram niður á við sem hvirfilvindur. Hvernig gátu þessir hestar haft fótfestu? Það vissu þeir ekki, og áreiðanlega hefði eng- inn enskur hestur getað það. Þó án þess að hrasa eða detta hentust þeir yfir stórar kletta- snasir, þangað til þau loks náðu sléttunni fyrii ofan lækinn, eða réttara sagt gljúfrið, sem læk- urinn rann í gegn um. Godvin sá það og föln- aði. Voru þessir menn vitskertir, er vildu neyða hestana til þess að stökkva þetta með tvöfalda byrði. Hvað sem að kynni að verða, hestarnir töpuðu fótfestu, hlypu of stutt eða því um líkt, yrði það bráður bani. En gamli Arabinn fyrir aftan Wulf hrópaði eitthvað til hestanna, og Masonda hélt enn þá fastar yfir um Godvin og hló í eyra hans. Hestarnir heyrðu kallið, og virtust sjá hvað til stæði. Þeir teygðu úr sér og þutu áfram yfir sléttuna. Nú voru þeir komnir á hinn hræði- lega stað, og Godvin sá sem í draumi, kletta- brúnirnar, gjána milli þeirra og freyðandi læk- inn á botni hennar fyrir neðan sig. Hann fann hvernig hesturinn safnaði öllum kröftum sínum, til þess á næsta augnabliki að fljúga út i loft- ið eins og fugl. Og var það draumur eða veru- leiki — meðan þau svifu yfir hinni voðalegu gjá fanst honum kvenmannsvarir snerta kinn sína. Hann var þó ekki viss um það. Hver gat það verið á sliku augnabliki, þar sem dauð- inn gein undir fótuni þeirra. Máske var það vindurinn sem lék um hann. En á þessu augna- bliki hugsaði hann áreiðanlega um annað frek- ar en kvennavarir. Þau svifu gegn um loftið. Ilvítan niður í djúpinu var horfin og þeim var borgið. Nei, honum fanst Eldur missa fótfestu á afturfæti, svo þau féllu og voru glötuð. En hvað þessir handleggir vöfðust fast utan um hann, og and- lit hennar þrýstist fast að hans! Nú var alt búið. Þau þeystu niður fjallshlíðina, og við hlið Elds hljóp hinn svarti Reykur með Wulf á baki, er hrópaði: „Mætið d’Arcy! Mætið d’Ar- cy!“ og fyrir aftan hann sat gamli Arabinn, án vefjarhötts með hvitu kápuna flögrandi fyrir vindinum, sem einnig hrópaði hátt: „Hraðar og hraðar. Hafa hestar nokkurntíma hlaupið eins hratt?“ Hraðar og ennþá hraðar, þangað tií vindurinn hvein um eyru þeirra, og þeim virt- ist jörðin svífa burt undir fótum þeirra. Þau þutu áfram yfir hallann, sléttuna og akrana fyr- ir neðan, og loks námu þeir Eldur og Reykur staðar hvor við annars hlið, og stóðu eins og þúfur á veginum löðrandi af svita, en geislar kvöldsólarinnar slóu á þá dökkum roða. Takið um mitti Godvins losnaði. Það hafði auðsjáanlega verið fast, því á hinum sívölu, beru handleggjum Masondu sáust förin eftir stál- brynju Godvins er hann bar undir serk sinum. Hún rendi sér af baki og horfði á þá með einu af sínum töfrandi brosum. „Þið sitjið vel, pílagrímar, Pétur og Jón, og

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.