Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1916, Qupperneq 13

Heimilisblaðið - 01.07.1916, Qupperneq 13
HEIMILISBL AÐIÐ 109 „Að líta eftir hestunum okkar og borga frænda yðar, Arabanum", spurði Wulf. „Nei, er það satt! Mér virtist ég sjá ykkur gera hið fyrra fyrir góðri stundu, en hvað snertir hið síðara, þá er það árangurslaust, sonur eyði- merkurinnar er farinn". „Farinn! og með hestana?" „Nei, þá skildi hann eftir“. „Borguðuð þér honum þá, frú?“ spurði Godvin. Það var auðséð að Masonda gladdist við þetta kurteisa ávarp, því rödd hennar, sem oftast var nokkuð kuldaleg og hörð, varð mild- ari þegar hún svaraði, og í fyrsta sinn nefndi hún hann fullu nafni. „Sir Godvin d’Arcy, hversvegna nefnið þér mig frú, sem er aðeins léleg gistihússtýra, sem öðru hverju verð að gera mér að góðu að vera kölluð ýmsum auknefnum. Já, máske hefi ég einusinni verið frú, áður en ég varð matselja, en nú er ég ekkjan Masonda, eins og þið eruð pílagrímarnir Jón og Pétur. Þó þakka eg yður fyrir þetta orð“. Um leið og hún gekk eitt eða tvö skref til baka, hneigði hún sig svo tignarlega og yndis- lega, að hver sem sá, hlaut að ganga úr skugga um, að hvað svo sem hún var, var hún ekki fædd og uppalin i veitingahúsi. Godvin galt henni í sömu mynt, og tók um leið hatt sinn ofan. Augu þeirra mættust, og hann gat lesið það í augum hennar, að hann þurfti engin svik að óttast frá hennar hendi, hvað svo sem fyrir kynni að koma. Hversu skuggaleg sem leið hans kynni að verða, mundi hann þó frá þessu augnabliki geta vogað lífi sinu í hennar hendur. Slíkan boðskap fanst honum hann geta lesið í augum hennar, og einmitt honum ætlað að lesa. Þó fanst honum hann vera óttasleginn inst í hjarta sínu, og Wulf sem sá nokkuð af þessu, og gat sér til um meira, varð líka hálfkvíðandi. Honum kom til hugar, hvað Rósamunda hefði sagt, hefði hún séð slíkt augnaráð hjá konu, sem verið hafði frú, en nú var matselja, og sem kölluð var spæjari, Satans barn og Al-je-bals dóttir. Fyrir hugskotssjónum hans var þetta augnaráð sem leiftur um niðdimma nótt, sem eitt augna- blik lýsir upp töfrandi, óþekt Iandssvæði, en nóttin verður enn dimmari eftir en áður. „Síðan sagði Masonda með sinni venjulegu kuldalegu rödd: „Nei, eg borgaði honum ekki. Loks vildi hann ekki taka við peningum, en þar sem hann hafði gefið loforð sitt, þá vildi hann ekki rjúfa það við riddara sem sætu eins vel hest eins og þið. Þess vegna gerði ég samning við hann i ykkar stað, sem ég vona að þið samþykkið báðir, því ég gaf honum orð mitt að veði, og Arabi þessi er höfðingi og frændi minn. Takið nú eftir: Ef þið og þess- ir hestar halda lífi, og sá tími kemur, að þið þarfnist þeirra ekki frekar, þá annist þið um, að opinberi vörðurinn á torginu í þeirn bæ er þið verðið í þegar þar að kemur, lýsi því yfir opinberlega, að þeir verði innan sex daga af- hentir þeim aftur er hafi léð þá. Komi eig- andinn ekki á þeim tíma má selja þá. Sam- þykkið þið það?“ „Já“, svöruðu báðir, en Wulf bætti við: „Við vildum aðeins gjarnan fá að vita, hvers- vegna Arabinn, frændi yðar, fær oss í hendur þessa ágætu hesta með svo góðum kjörum11. „Morgunverðurinn er tilbúinn“, svaraði Ma- sonda og rödd hennar var hörð sem málmur. Wulf hristi höfuðið og fylgdist með henni inn í borðstofuna, sem nú var eins tóm og þegar þeir kornu þar fyrst. Frh. I. í dalnum. Hvergi finst mér hjarta landsins nær en hérna upp i smádal milli fjalla. Og mannlífssolli sálin hvergi fjær, né sorg, en upp við bera hamrastalla. Við fossins óma finnur hjartað frið, i fögru blómaskrúði er sælt að dreyma. Og hversu er gott við ljúfan lækjar nið, að láta um’ dulda geima hugann sveima. Hér finn eg bezt að ættjörð á eg til, með óðul helg og merk í fangi sínu.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.