Heimilisblaðið - 01.11.1918, Síða 18
Skuggsjá.
176 HEIMILISBLAÐIÍ)
Nokkur orð til kaupendanna.
Hörmungar þær, sem dunið hafa yfir
Reykjavík í þessum svo mörgum minnisslæða
nóvembermánuði, hafa valdið truflun á ílest-
um sviðum viðskiftanna, og þá einnig komið
óreglu á prentun blaða og útsendingu þeirra.
Eg bið kaupendur Heimilisblaðsins að
fyrirgefa þann drált, sem orðið hefir á með
prentun þess og útsendingu. Veikindi voru
mikil á heimili mínu og nokkuð langvinn og
þar ofan á bættist það, að Guði þóknaðist
að kalla heim til sín ástkæru konuna mína,
Önnu Kristínu Sigurðardóttnr, 35 ára garnla,
frá 5 ungum börnum. Hún bafði annast beim-
ili sitt og hlúð að því í full 11 ár, með
rneira ástríki og umönnun en Iýst verður í
fáum pennadrátlum. Sama var hugprýðin og
sálarþrekið í stríðu sem blíðu; hagsýni og
hirðusemi héldust þar í hendur, ogHeimilis-
hlaðið hefir mikið mist, því einnig þar stóð
hún sem styrk stoð við hlið mína. Harmur
er því kveðinn að þeim er skynja, live mikið
er mist. En-------—
»Ó, Drottinn minn Guð! æ, verði þinn vilji,
þú veizt hvað cr bezt, þólt enginn þig skilji«.
Blessuð er minning ástríkrar konu og um-
hyggjusamrar móður.
Eg þakka svo að síðustu öllum þeim
mörgu, sem reynst hafa blaðinu mínu vel
og bjóða það velkomið inn á heimili sín
framvegis. Vona eg, að ekkert verði það í
blaðinu, er
»setur blett á blessuð hjörtun ungu«.
Eg bið vini blaðsins að leiða athygli ná-
granna sinna að Heimilisblaðinu og reyna
að afla því nýrra kaupenda. Hver slík við-
bót gleður mig og örvar og eykur starfsþrek
mitt í þágu blaðsins.
Reykjavík 30. nóvember 1918.
Jón Helgason.
Englandskonungnr hefir ýms sérréttindi.
Hann þarf t. d. ekki að hafa tölur á bifreið-
um sínum og eklci má kæra ökumann hans,
þótt hann aki of hart.
Kínverjar líta á það sem liina mestu
hneysu að geta ekki eignast barn. Enda fólks-
fjölgun rneiri í Kína en i nokkru öðru landi.
7000 kúbikmetrar af vatni fara í gegnuni
Niagarafossinn á einni sekundu. Vatnsmagn
þetta geymir um 5 milj. hestöíl, en af þeim
er tekinn til notkunar að eins sjötti hlutinn.
Til rafframieiðslu eru notuð um 120,000 hesl-
öfl, 60 þús. hestöfl til að knýja með járn-
brautir, 40 þús. hestöfl til raflýsingar og 60
þús. heslöfl til ýmislegrar iðnaðarfranileiðslu.
Hægur vindblær fer 8 km. á klukkustund,
en stormur 48—72 km. á sama tíma. Felli-
byljir fara 130—160 km. á klukkustund og
hljóðið flýgur með rúmlega 18 m. hraða í
gegnum loftið á sek. Rafbylgjan fer yfir 63,000
km. á sek. og Ijósið fer 300,000 km. á sek.
Eitthvað í kring um 80,000 pund er þyngd
bréfa þeirra, sem afhent eru á aðalpóslhúsi
Lundúnaborgar dag hvern.
Stærsti járnbrautarvagn í heimi er talinn
að vera í suðurhluta Kyrrahafsbrautarinnar í
Ameríku; hann er 28 metra langur.
Barnabókin „Fanney“
fæst bjá öllum bóksölum víðsvegar um land
alt. í lienni er fjöldi af ágætum sögum,
kvæðum, myndum og skrítlum. Fimm befli
á 50 au. hvert. — '
Bezti skemtilestur fyrir unglingft í vetur.
Útgefandi: Jón Helgason, prentari.
Prentsmiðjan Gutenberg.