Heimilisblaðið - 01.06.1921, Blaðsíða 7
HEIMÍLÍSBLAÍHÖ
47
sagði hversu mikla sorg presturinn hefði
af syni sinum, og að hún hefði lofað presti
að fara þess á leit við hann, hvort hann
gæti ekki útvegað Emil atvinnu á skrifstofu,
eða það stæði yfirleitt á sama, hvað það
væri, fengi hann aðeins eitthvað að starfa.
Og svo bætti hún því við, að presturinn
hetði á jóladaginn litið svo til, að Möller
væri dugnaðarmaður og þótt leitt, að hann
dvaldi þar svo skamma stund; annars hefði
hann máske snúið sér til hans sjálfur.
Möller sat og var alt af annars hugar;
en þegar hann mintist jóladagsins og hinn-
ar skyndilegu brottfarar, þá komst hann
bráðlega á réttan kjöl.
»Eg skal gera það sem eg get, ungfrú,
yðar vegna! Það væri máske eklti óhugs-
andí að koma mætti svo ungum manni að
við verzlun vora, en eg þori þó ekki að
lofa neinu ákveðnu um það«.
»Presturinn er hér á ferð út af þessu;
eg mætti niáske ségja honum, að hann
megi koma til yðar á morgun um þetta
leyti«.
»Já, gjarna«.
»Þá þakka eg yður«, sagði Lára og stóð
upp.
»Ó, sitjið þér lengur, ungfrú, mér finst
vera svo langt um liðið, síðan við höfum
talað saman og þér vitið ekki, ungfrú —«.
»Þér hafið alveg yfirgefið foreldra mína
og þau sakna yðar verulega«,
»Eg á svo annrikt«.
»Hafið þér ekki átt það fyíri?«
»Jú, að sönnn, en eg er nú kominn að
sérstakri trúnaðarstöðu við verzlunina með
háum launum —«.
»Nei, hr. Möller, við skulum tala í alhi
hreinskilni — það er siðan þér fóruð að
heimsækja mig á jólunum«.
Möller spratt upp af stólnum.
»Já, það var svo eftirtakanleg breyting
orðin á yður, að allir hlutu að sjá það —
alt frá þeirri stundu, er ungfrú Krog bar
yður fyrir augu«. Fmmu.
Ný rit.
»Ársril hins íslenzka Garðyrkjufélags« fyrir
árið 1921 er nú komið út. í því eru tvær
ritgerðir. Hin fyrri um »íslenzkar jurtir«,
eftir Hannes Thorsteinsson; mjög itarleg og
fróðleg ritgerð. Hin heitir »Kartöflusýkin«,
eftir Einar Halgason.
Ársrit Garðyrkjufélagsins ættu allir búend-
ur að kaupa; það kostar lítið fé, en margar
dýrmætar leiðbeiningar eru i því, og alt lýt-
ur að því sama, að gera veruna vistlegri og
hlýrri i landinu okkar með aukinni þekk-
ingu á framleiðslumöguleikunum.
»Sundbók fyrir hvern mann«, 1. hefti, hefir
íþróttasamband íslands gefið út. Pessi bók
er alveg ómissandi fyrir þá, sem sundíþrótt
vilja iðka og vonandi eru þeir margir meðal
hinna ungu. Hún er lika ómissandi til þess
að vekja áhuga fyrir þessari þörfu og fögru
list.
Bókin hlýtur að fá mikla útbreiðslu, því
fáar hafa lienni þarfari komið út á liðna
árinu. Von er á áframhaldi, segja útgef. í
formálanum. Bókin er prýdd myndum til
skýringar og glöggvunar.
SPAKMÆLI.
Blindur ákafi er aðeins til skaða.
Ástarþrá er eigingjörn.
Kærleikurinn gengur i ljósinu.
Hægara er að sigra óvin en sjálfan sig.
Sólin ein dylur fyrir oss miljónir stjarna.
Sá, sem sparar 1 eyri, hefir áunnið tvo.
Lítilsvirtu ekki smámuni.
Ileimurinn er harðstjóri. Þrælarnir þjóna
honum.
Ánægja nærir. Óánægja lærir.
Móðurtiygð eldisl aldrei.
»Karakter« er þroskaður vilji.