Heimilisblaðið - 01.06.1921, Blaðsíða 8
HtelMILISBLAÐÍi)
48
Skuggsjá.
Meutunarskortur indverskra kvenna er tal-
inn að vera einhver hin alvarlegasta hindr-
un fyrir því að björtustu framtiðardraumar
þjóðarinnar rætist. Nýlega heíir indverskur
fursti einn geíið 1,500,000 sterlingspunda til
þess að koma á fót uppeldis- og menta-
stofnun fyrir konur. Indverskt blað segir:
»Uppeldi hinnar indversku konu hetir meiri
þýðingu til andlegrar viðreisnar hins
indverska heimilis en uppeldi mannsins, eins
og það er þó þýðingarmikið«.
Norska biblíufélagið lét prenta 80,000 bibl-
íur og biblíuhluta, árið 1919 og kostaði það
750,000 krónur.
Begar K. F. U. M. i Kína var 25 ára gamalt,
voru þar mikil hátíðahöld. Þar voru mættir
1271 fulltrúar, frá hinum ýmsu landshlutum,
og er þetta hin stærsta kristilega samkoma,
sem haldin hefir verið í Kína. Þar eru nú
170 lcristileg stúdentafélög, sem telja 13,000
félaga. Félögin, sem i borgum og bæjum
starfa telja 32,659 félaga. Af 387 forstöðu-
mönnum félaganna eru fyllilega tveir þriðju
hlutar Kinverjar.
Britisk Museum geymir margar merkilegar
fornleifar, þar á meðal bækur, sem skrifaðar
eru á tígulsteina, hnútur, fílabein, blý, járn,
sauðskinn og pálmablöð.
Mjög er það mismunandi, hvað hinar
ýmsu dýrategundir ná háum aldri. Sagt
er að svanurinn geti lífað í 300 ár, hrafninn
Í 200 ár, sumir segja miklu lengur, fálkinn
í 160 ár, hundar geta náð 20 ára aldri, en
vanalegast eru þeir orðnir hrumir 15—16 ára.
Úlfs aldur er 20 ár, refs aldur 14—16 ár,
lcattar meðalaldur er 15 ár, héra aldur og
ikorna 7—8 ár. Fílar hafa náð 400 ára aldri
og úlfaldar verða stundum 100 ára gamlir.
Hirtir geta orðið næstum 40 ára, dádýr alt
að 20 ára. Sauðkind verður sjaldan yfir 10
ára gömul og kýr ná 15 ára aldri. Meðal-
aldur hests eru 25—30 ár, en dæmi eru til
þess, að hestur hefir orðið 72 ára gamall.
Örninn getur orðið yfir 100 ára og skel-
paddan 190 ára gömul.
SKRÍTLU R.
Skipstjórinn: Hefirðu varpað akkerinu,
Hannes?
Hannes: Já.
Skipstj.: Það má merkilegt heita og þó
skríður skipið áfram með fullri ferð.
Hannes: Það er náttúrlega af þvi að
akkerið var festarlaust.
Frúin: Eg vil ekki hafa það, María, að
þér séuð að standa frammi í anddyri á
kvöldin hjá þessum kærasta yðar.
María: Sjálfsagt, frú, eg skal víst muna
eflir að bjóða honum inn í stofuna næst.
A. Hvor heldur þú að sé ánægðari, sá sem
á 100,000 krónur eða hinn, sem á 6 dætur?
B. Auðvitað sá, sem á 6 dætur. því sá, sem
á 100,000 krónur vill bæta við upphæðina,
en hinum finst hann eiga nóg.
Kanpendixi'nii* eru vinsamlegast
ámintir um að finna mig ekki í prentsmiðj-
una víðvíkjandi blaðinu, og þar tek eg alls
ekki á móti borgun fyrir blaðið. — Mig er
að hitta heima kl. 12—1 og eftir kl. 5 síðd.
í Bergstaðastrœti 27. Útgef.
Kanpendur blaðsins austanfjalls borgi
til Andrésar Jónssonar, kaupm. á Eyrarbakka,
þar sem ekki eru innheimtumenn í hrepp-
unum fyrir blaðið.
Húnvetningar eru beðnir, eins og að and-
anförnu, að greiða andvirði blaðsins til herra
Kristófers Kristóferssonar á Blönduósi. — Hjá
honum geta þeir fengið blöð, sem þá vanta,
■ ' 1 ’ *
Útgefandi: Jón Helgason, prentari.
Prentsmiðjan Gutenberg.