Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1943, Blaðsíða 15

Heimilisblaðið - 01.03.1943, Blaðsíða 15
HElMILISBLAtílÐ 55 þegar fjallaþokan var þykk eins og múr. Húsbóndans hjarta ei hrœrði bœn né tár, varnarlaus hann varS aS þola vandarhöggin sár. Aldrei lagSV ’hann þokunni áimœli neitt; brellur hennar gátu ei til brceSi hann reitt. Glaður vegna þokunnar þoldi’ ’hann hverja raun, lifSi œ í voninni um vegleg sigurlaun. TamiS hafSV ’hann tungu sína á tuttugasta ár, göfgaS hafði viðleitnin vonir hans og þráir. „Óðum fœkkar dögum að úrslitastund!(‘ — Sigurvonin gerði hann glaðan í lund. Svo fór hann með ánum hinn síðasta dag. — Nú var marki náð við hið nœsta sólarlag! Þá féll yfir þoka svo þykk að hvergi sá. Hjörðinni með tölu týndi smalinn þá. Leitaði hann búsmalans árangurs án. Hverri kind að týna var herfileg smán! Bergmáluðu klettarnir brœðiorðin hans: „Bannsett farðu þoka úr byggðum þessa lands! Bölvuð sértu þoka, er byrgir mér sýn! Réttmœt eru œvagömlu álögin þín!“ Þá var eins og þokunni þyrlað vœri frá. — Var sem upp af vondum draumi vaknað hefði’ ’hann þá. Hvað var það, sem hafði hann í reiði sagt? Viðjar höfðu orð hans á veika konu lagt. Hafði’ ’hann ekki heitið að hemja sína lund, og leysa hana’ úr álögum á örlaga stund? Turnaborg er hlóð ’hann í tuttugu ár með þrá hrundi nú sem hrófatildur augnabliki á. „Lagt mér hefði dagurinn lýsigull í mund, ef efnt ég hefði eið minn á úrslitastund**. Grét hann þar í kyrrðinni gœfulausan dag. — Ærnar rak hann harmþrunginn heim um sólarlag \

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.