Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1943, Blaðsíða 44

Heimilisblaðið - 01.03.1943, Blaðsíða 44
84 HEÍMILISBLAÐIÐ Hún beið við borðstokkinn. með reiddan hnífinn, ef einhver kæmi upp á þilfar. Hinar reglulegu hrot- ur frammi á þilfarinu gáfu til kynna að þau þyrftu ekki að óttast Balu. Þegar Símon kom ofan í bát- inn, varð svo mikið skvaldur, að Helena hélt, að allir myndu vakna á skipinu. En allt var hljótt, nerna hrotur Balus. Helena vatt sér þá yfir borð- stokkinn og niður í bátinn. Hún skar á kaðalfesti bátsins og þau voru laus. Straumurinn bar bátinn frá skipinu. Þau sátu bæði kyrr á þóftunni. Helena gladdist, þegar hún sá að straumurinn bar þau að landi. En þó fannst henni heil eilífð, þangað til þau voru komin svo langt, að óhætt var að hreyfa árarnar. Loks vogaði hún að taka þær og leggja þær út. »Þetta get ég gert«, heyrði hún Símon segja, og hann tók af henni árarnar og fór að róa til lands, með öruggum áratökum. Bráðlega steytti báturinn á kóralrifinu, en hann festist ekki. Þau komust enn dálítinn spöl en svo kenndi hann aftur grunns, og stóð kyrr. Án þess að segja nokkurt orð stukku þau útbyrð- is og óðu í land. Ströndin var svo þéttvaxin trjám að niðamyrkur var í kringum þau. Þau leiddust inn í myrkrið, og hún þreifaði fyrir sér með annari hendinni, og starði út í myrkrið, ef þar kynni að leynast hættur, en engar hættur á landi gátu jafnast á við þá hættu, sem skipið geymdi. Aðeins að hún gæti fundið frænda sinn Carson konung. Allt virtist benda á, að hann mundi dvelja hér á eyjunni. Hún þurfti að finna hann og segja honum l'rá hættunni, og fá vernd hans. Áfram héldu þau. Iiún hélt stöðugt um hönd Sím- onar. Eldflugur suðuðu í myrkrinu. Þau duttu um lurka og flæktu sig í vafningsjurtum. Ofur litlir fuglar kvökuðu syfjulega í kringum þau, og páfa- gaukar skræktu reiðir yfir því að vera vaktir um miðja nótt. »Mér er svo illt í höfðinu«, stundi Símon, »eig- um við ekki að hvíla okltur ofurlítið«. Þau höfðu numið staðar í litlu rjóðri, þar sem lítil tjörn speglaði stjörnurnar í skyggndu yfirborði sínu. Helena var að hníga niður af þreytu. Hvert skref olli henni þjáningum. »Við megum ekki hvílast«, sagði hún, »um, að gera að komast sem lengst frá ströndinni«. En fæturnir vildu ekki bera hana lengur, og hún hneig niður í mjúkan mosa undir stóru tré. Sírnon datt líka. Hvorugt þeirra gat staðið upp aftur. Hel- ar og fjarlægðin milli oddanna hér um bil 15 metrar. Sumatra- nashyrningurinn hefir framúr- skarandi næma lyktar- og heyru- arskynjun. Við livern krók á etignum sínum nemur hann stað- ar og hlustar, hvort nokkur hætta sé á ferðum, og heldur svo áfram aleinu á leið sinni og rífur með sér hlöð og plöntur. Um fjöru er hann alveg út við ströndina, en lieldur sig hærra um flæði. og sjórinn máir spor hans. Eins og áður er getið, fá nas- hyrningarnir oftast að vera í friði- En þó ber það við, að menniniir vilja hætta á að leggja þetta sjaldgæfa dýr að' velli. En þótt maður sé vopnaður með byssu, er þó engan veginn hættulaust að fara á nashyrningaveiðar. Hin þykka húðbrynja ver hann gegn þungum kúlum, og eigi að lánast að vinna Iiann, verður að hitta í húðfellingarnar milli brynju- skjaldanna. Von G. vinur minn var ástríðu- fullur veiðimaður og lenti ekki sjaldan í æfintýrum á tígrisdýra- veiðum. Hann var duglegur veiði- maður, en J)ó hristu menn höfuð- in undrandi, Jiegar lionum datt í hug að fara á nashvrningaveiðar. Það var álitið ganga sjálfsmorði næ6t. En allar tilraunir til þess að aftra honuin urðu árangurs- lausar. Og dag nokkurn sendi hanu innlenda njósnara til þess að skyggnast um eftir nashyrninguni- Nokkrum dögum síðar, þegar hann liggur mókandi á svöluni liúss síns, koma Malajarnir flaum- ósa og segja frá því, mjög æstir, að nú hafi þeir fundið stíg í kjarr- inu og ófreskjan muni vera þar nærri. Von G. hugsar sig ekki lengi um. Að vörmu spori er liann kont- inn út í völundarhús fenjakjarrs- ins, með riffil á bakinu. Hann

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.