Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1943, Blaðsíða 6

Heimilisblaðið - 01.03.1943, Blaðsíða 6
46 HEIMILlSBLATÐIt) og svipt lionum burt til að bæuheyra Rögn- vald, sem linnti ekki brennheitum hænum. Rögnvaldur efndi líka loforð sitt og ári síð- ar var hymingarsteinn lagður að dóinkirkju St. Magnúsar. Biskup er venjulega þar, sem dómkirkja er, og hér liggja líka rústirnar biskupshallarinnar andspænis kirkjunni. Hennar ægilegi, sívali turn setur allhernaðar- legan svip á kirkjuhirðisheimili þetta, sem menn eiga hægra með að skilja, þegar þess er getið, að á 15; öld bar biskupi auk kirkju- legra skyldna að liafa ábyrgð á allri stjórn eyjanna, eftir að þær gengu undir konunga Skotlands. Norski vísindamaðurinn, Dr. Cristian 0st- berg segir um bæinn Kirkwall, að „hinar þröngu steintigluðu götur lians og stræti hafi geymt upphaflega norræna mótið rniklu bet- ur en nokkur norskur bær. Aðalgöturnar eru á sumum stöðum svo þröngar, að fótgang- andi menn verði að forða sér í búðardyr, komi vagn eftir götunni“. I Kirkwall eru enn til einstök hús, sem bafa haldið uppliaflegu, frumlegu útliti sínu og byggingarformi nokkurn veginn óbrjáluðu jafnvel þó liresst hafi verið upp á þau. Mark- verðust af þeim er víst Tankemess House, nálægt dómkirkjunni, með porthvelfing yfir inngangshurð, og steintigluðum garði, forn- um, yddum göflum og fögrum gömlum ald- ingarði. Um vfirráð Norðmanna á eyjunum má víst segja að þar réð eitt lögmál öllum öðrum lögum: „Vald er réttur“. — Sú þjóðfélags- skipan er vægðarlaus við minni máttar, því að þeir verða að liita í lægra haldi; en víst er enginn vafi á því, að þeir, sem koina lífs af undau þeirri meðferð, þroskast af lienni til að gerast stinnir menn, hraustir og ráðkænir. Eftir að Orkneyjar voru afsalaðar Skot- landi, þ. e. a. s. prins lávarði Robert Stuart og nfðjum hans, fengu þeir nýju drottnar góð- an sluðning, þar sem eyjaskeggjar vom, því» að þeir voru stinnir og vanir að fara eftir eigin geðþótta án þess að spyrja um leyfi, og stjórnarsetrið, Edinhorg var svo langt í burtu eftir firðarreikningi þeirra tíma, að ekki þurfti að kvíða því, að nokkur áreiðan- leg frétt bærist þangað og óspekti skozka þingið um hag evjanna og alliafnir drottna þeirra. Borg Roberts jarls á Birsey var byggð með kvaðavinnu: „án matar og drykkjar og kaups“ og Patrick jarl, 6onur Roberts, lét byggja sér tvær borgir á sömu fjárhags vísu, aðra við Scalloway, liina í Kirkwall. Eldstæð- ið í eldhúsi Kirkwall-hallarinnar er stærsta eldstæði Skotlands, og þegar það er skoðað, er auðskilið, að hægðarleikur hafi verið að steikja uxa í lieilu líki á prjóni við annan eins útbúnað. Við hliðina á þessu volduga eldstæði er mjó glufa, er liggur ofan í kjall- araholu neðanjarðar. Er sagt að fangar væru setlir þangað til að þola hungursdauða, jafn- framt því sem megnasta eldhússilm legði nið- ur til þeirra um glufuna í múrnum! Slíkt má þó víst kalla viðbjóðslega grimmd. Patrick jarl var óefað lítt þokkaður mað- ur, en öllum söguriturum ber sainan um að annála hann fyrir byggingarfræðigáfu hans. Honum liefir verið gefið glöggt skyn á feg- urð bæði í heild og smálilutum. — Hallii lians bera vitni um það. Hann hefir líka átt skilning á hagbærum tilhögunum. Það sanna lileramir, sem liann tók fyrstur upp í eld- liúss- og matstofuveggjuin, svo að mat mætti reiða þar fram og sitja rokheitan á borðið'! Hann liafði líka séð um að taka brunn í halb argarðinum gegn því, að ófrið kvnni að bera að. , Um hríð gekk vel. Robert jarl og Patrick, sonur hans, fóru sínu fram eftir eigin geð- þótta og undu vafalaust prýðilega því u»> líku frjálsræði. En smám saman kvisuðust fréttir og komu til eyrna konungi í Edin- borg — fréttir, sem engin stjórn getur látið afskijitalausar, af jarli, sem kallaði sig kon- ung oe einvalda á Orkneyjum. AfleiðingH1 varð sú, að her var húinn lit og sendur til eyjanna til að halda uppi valdi liins lög' mæta konungs. Konungsliðinu tókst að vin»a jarl og son hans eftir mánaðar ófrið. ÞeU' feðgar voru handteknir og dæmdir til dauða- Sagt er, að dóm annars þeirra væri frestað 5 daga til, svo að fanginn gæli fengið tí»ia til að læra Faðir vorið. Lengi voru eyjaskeggj' ar að ná sér eftir áþjánina. En Orkneying' ar eru að eðlisfari harðir af sér og nægj11' samir og kunna snemma að hafa ofan af fyr' ir sér, sumpart með jarðyrkju og sumpaH með fiskiveiðuin. Flugbjörgin. sem eru alveg óvenju stot'

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.