Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1943, Blaðsíða 42

Heimilisblaðið - 01.03.1943, Blaðsíða 42
82 HEIMILISBLAÐIÐ „Já, það er nú einmitt það, sem enginn veit“. „Ef lnin er dáin, þá segið mer það undir eins“. „Nei, ég veit ekki til þess, að hún sé dauð“. „En hvar er hún þá? 1 Guðs nafni segið mér það, sem þið vitið um liana?“ „Hún er horfin!“ „Horfin, hvernig iiorfin?“ „Það er mánuður síðan, að hún hvarf, og síðan höfum við hvorki heyrt frá henni eða séð hana“. Ég var nærri dottinn um koll, en ég stillti mig samt, gekk fast að föður mínuin með því fasi, að hann hörfaði óttaslegimi aftur á hak. „Þú ætlar þó ekki að berja föður þinn?“ sagði hann. „Nei“, sagði ég, „en ég vil fá að vita sann- leikann. Hvar er Annita, hvað liafið þið gert af henni? Hefurðu drepið hana?“ „Eins og ég hefi sagt þér, þá livarf hún fyrir mánuði og enginn veit hvað af lienni hefir orðið“. „Faðir minn, það er ekki satt. Þú lýgur að syni þínum, þú leynir þessu fyrir ntér, en ég vil vita sannleikann, jafnvel þó ég þyrfti að pína hann út úr síðasta blóðdropa þínum”. „Þú gerir það, sem þér þóknast”. „Hafið þið látið leita að henni?”. „Já, móðir þín og þjónarnir hafa leitað að henni”. ? „Og enga vitneskju fengið um hana?” „Nei, ekki svo ég viti”. Ég fór aftur á fund móður minnar og leit- aði frétta lijá henni, en hún tók guð til vitnis um, að hún vissi ekkert. Ég hljóp til allra þjónanna og spurði þá um Annitu, en allstaðar fékk ég sama svarið, að hún væri horfin, og jafnframt, að enginn vissi neitt um, hvemig hvarf hennar he.fði að borið. Ég hljóp upp á herbergi hennar, en allt stóð þar óhreyft og óbreytt eins og liún væri nýgengin út. Gat það verið að villidýr hefði ráðist á liana á skemtigöngu eða liafði liún verið drepin eða liafði lienni verið rænt? Ég svaf ekkert um nóttina. Kveljandi kvíði og hugarangur liélt mér vakandi. Morguninn eftir lá mér við vitfirringu. Ég æddi niður í sveitaþorpið og spurði alla um Annitu, en enginn vissi neitt aimað en að hún væri horf- in. Ég fór aftur lieim og spurði eftir Anton ökumanni, sem ég ennþá ekki hafði séð. Ég fékk það svar, að liann væri líka horfinn- Ég æddi inn til föður míns og var í svo ógurlegu skapi, að það lá við að ég tæki u® háls honum og keyrði liann niður til þess að fá liann til að segja satt. „Leggðu nú hcndur á föður þinn”, sagði hann, „svo að það sjáist, að þú sért sannar- legur sonur!” Ég stilti mig. „Ef þú hefur. framið svívirðilegan glæp, faðir minn“, hrópaði ég, „þá er bezt fyrir þig að játa það hreinskilnislega, annars veit ég ekki, hvað ég kann að gera við þig eða mig“- „Ég hefi reynt að. hlífa þér“, sagði faðir minn, „en þar eð þú æðir svona áfrarn með hótunum og ofbeldi, þá er ekki annað hæg* en að láta þig vita það, sem skeð hdfir. Mál- ið er í fám orðum þannig vaxið, að Anuita og Anton ökumaður hurfu sörnu nóttina. Mér þykir fyrir að verða að segja þér þetta. En stúlkan var af lélegum uppruna, og Anton liefur notað tíman vel, meðan þú varst fjar- verandi til að vinna hina auövirðilegu ást hennar. Hann var snotur maður og samlandi hennar, og þú hugsa ég, að það liafi verið hægarleikur fyrir betlistelpuna að fá hann til að flýja með sér heim aftur til villutrúar- landsins”. „Það er ekki satt”, sagði ég, „það er níð- ingsleg lygi,'og ég trúi því ekki. Ef það væn satt, mundi ég fara á eftir þeim og mvrða þau bæði, en það er ekki satt”. Framh.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.