Morgunblaðið - 08.08.1964, Síða 1

Morgunblaðið - 08.08.1964, Síða 1
24 síður, Tyrkir gera loft- árás á Kýpur Harðir bardagar á eyjunni undanfarna tvo daga Nicosía, Kýpur, 7. ágúst. — (AP-NTB) — HARÐIR bardagar geisuðu á norð-vesturhluta Kýpur í kvöld, og segir talsmaður SÞ á eyjunni að ástandið sé mjög alvarlegt. Einnig skiptust grískir og tyrkneskir menn á skotum í Nicosíu eftir að tyrknesk-ættaðir menn hand- tóku þrjá menn í Tyrkja- hverfi borgarinnar. Sögðu Tyrkir að tveir mannanna væru herforingjar frá Grikk- landi. í kvöld tilkynnti Kýpur- stjórn að fjórar orustuþotur | úr tyrkneska flughernum hafi ráðizt með vélbyssuskothríð á höfnina í borginni Polis, og hafi ítalskt flutningaskip þar orðið fyrir skothríðinni. í tilkynningu stjórnarinnar, sem skipuð er grísk-ættuðum ! mönnum, segir að loftárásin hafi verið gerð skömmu eftir kl. 6 síðdegis (ísl. tími). Sagði tals- maður stjórnarinnar að tyrk- nesku stjórninni hafi þegar verið send mótmælaorðsending, og að stjórnin hefði í hyggju að kæra árásina fyrir Öryggisráði Sam- einuðu þjóðanna. Bardagarnir a norð-vesturhluta Kýpur hafa staðið í tvo daga, og eru bardagarnir harðastir við hafnarbæinn Kokkina. Hafa Líkir Grænlandi v/ð Angola Danir mótmæla Lissabon, 7. ágúst (NTB). UTANRÍKISRÁÐIIERRA Portú- gaJs, Alberto Franco Nogueira, átti í dag fund með fréttamönn- um. Á fundi þessum gagnrýndi hann afstöðu fuiltrúa Danmerk- ur hjá Sameinuðu þjóðunum varðandi nýlendustefnu Portú- (ah. Nogueira sagði að danski full- trúinn í nefnd þeirri á vegum SÞ, sem fjallað hefur um að- gerðir Portúgal í AngO'la og öðr- um nýlendum hafi, lýst því yfir að danska stjórnin væri andvíg stefnu Portúgalsstjórnar. — Ég vil nota þetta tækifæri, Framhald á bls. 2 stjórnarliðar sent þangað fall- byssubáta, sem halda uppi skot- hríð á lið tyrkneskra manna. — Einnig var fjöldi grískra bryn- varðra bifreiða á leið til Kokk- ina í dag. i NAUlliÚLSVÍK f GÆR var bezti sumardagur- inn á árinu í Reykjavík, og kunnu bæjarbúar sýnilega vel að meta hann. Ýmis fyrirtæki lokuðu og gáfu sólarfrí, svo starfsfólkið gæti notið góð- viðrisins. Hvarvetna mátti líka sjá léttklædda krakka og fullorðna í görðum, á götunni ©g við sundlaugamar. Úti i Nauthólsvíkinni var krökt af fólki, taldist baðverðinum svo til að þar væru staddir á þriðja þúsund baðgestir, er hann reyndi að kasta tölu á hóp- inn. Þessa mynd tók ljósmynd ari blaðsins, Sveinn Þorm., úti í Nauthólsvík í gær. Alþingi samþykkti skattalögin með samhljóða atkvæðum Framsóknérmenn og kommún istar bera því fulla ábyrgð á framkvæmd þeirra Framsóknarmenn og komm- únistar þykjast nú allt í einu vera sjálfkjömir verndarar almennings gegn háum skött- um og útsvörum. Þetta sting- ur mjög í stúf við fyrri reynslu þjóðarinnar af stefnu þessara flokka í skattamálum. Öll þjóðin veit að núverandi stjómarandstöðuflokkar hafa alltaf verið fremstir í flokki, þegar um hefir verið að ræða hækkaða skatta og álögur á almenning. Sannaðist það ekki hvað sízt á tímum vinstri stjórnarinnar sálugu. En vegna þess að Framsókn- armenn og kommúnistar ráð- aSt nú sérstaklega á skattlaga breytingar þær sem gerðar voru á síðasta Alþingi, er rétt að þjóðin viti, að bæði komm- únistar og Framsóknarmenn greiddu atkvæði með breyt- ingum þeim, sem gerðar vom á lögunum um tekju- og eigna skatt og lögunum um tekju- stofna sveitaféiaga á síðasta þingi. Breytingarnar á þess- um lögum voru samþykktar með samhljóða atkvæðum bæði í Efri deild og Neðri deild. f Neðri deild voru breyt ingarnar á lögunum um tekju- skatt og eignaskatt t.d. sam- þykktar sem lög með 31 sam- hljóða atkvæði. Það kom einnig greinilega fram í umræðunum um þessi lög að stjórnarandstæðingar töldu þau vera til verulegra bóta. Það er líka staðreynd sem ekki hefir verið mótmælt að ef þessi lagabreyting hefði ekki verið gerð á síðasta þingi hefði skattaálagningin nú orð- ið öllum almenningi miklum mun óhagstæðari, vegna mjög hækkaðra tekna á s.l. ári. Það er sú velmegun og tekjuaukning, sem orðið hefir hjá öllum þorra landsmanna, sem er megin orsök þess að opinber gjöld hækka nú á mörgum gjaldþegnum. Samþykkt miðstjórnar Fram sóknarflokksins um skatta- málin verður áreiðanlega naumast tekin alvarlega af öllum þorra landsmanna. Framsóknarflokkurinn hefir ævinlega fylgt hreinni skatt- píningarstefnu þegar hann liefur ráðið. Leiðtogar hans hafa aldrei séð annað úrræði í efnahagsmálum en hækkun skatta og toUa á almenningi, Þegar þeir hafa farið með völd. Það er hinsvegar staðreynd, Framhald á bls 2

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.