Morgunblaðið - 08.08.1964, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 08.08.1964, Qupperneq 3
Laugardagur 8. ágflst 1984 MORCUNBLAÐIÐ 3 „ÞEGAR ég hafði nýlokið prófi úr Verzlunarskólanum og var búin að setja á stofn kjólaverzlunina Fix, sem ég á reyndar enn þá, hugsaði ég mest um það að græða pen- inga. Mér fannst furðu sæta, að ailir skyldu ekki vera kaup menn. Ég hef gerbreytt um skoðun. Peningar eru að vísu nauðsynlegir og erfitt án þeirra að vera, en eina auð- legðin, sem getur veitt okkur lífshamingju, er sú, sem býr í okkur sjálfum. Er því mest um vert að rækta með sér alla sína hæfileika, ekki að- eins meðan fólk er ungt, heid ur allt lífið“. Ég var staddur hjá frú Kristínu H. Eyfells, konu Jó- hanns Eyfells. Þau ' hjónin hafa dvalið í Bandaríkjunum um nokkurra ára skeið. Jó- hann vann sem arkitekt í New York og þótt hún hefði ekki Hamingjan hlýzf af innri auð/egð og að ávaxta sitt pund alla œfi Samtal við Eiristínu H. Eyfells B. A. í sálarfræði og fogrum listum setið á skólabekk í 10 ár, þá tók frú Kristín að leggja stund á sálarfræði við Hofstra Coll- ege. Hlaut hún frábærar eink unmr þar, og þegar hjónin fluttust til Gainsville ári síðar, var frúin tekin inn í Háskól- ann í Kaliforníu á námsstyrk. Árið 1962 lauk Kristín B.A. prófi í sálarfræði með mjög hárri einkunn og i desember 1963 B.A. prófi í „fögrum listum“ með einni hæstu eink unn, sem tekin hefur verið við skólann, 3,8 af 4 mögu- legum. Jafnhliða náminu ref ur Kristín stöðugt fengizt við ýmsar greinar myndlistar svo sem málaralist, svartlist, kera mik, og síðast en ekki sízt höggmyndalist. Kristin hefur sýnt verk sín, einkum högg- myndirnar víðs vegar um Florida. Þá var svartlistar- mynd eftir Kristínu eitt af aðeins 100 verkum á árlegri allsherjarsýningu Bandaríkj- anna (National Exhibit) á vatnslita-, svartlistarmyndum og teikningum, sem árið 1963 var haldin í Oklahoma. „Við komumst ekki með nema iítið með okkur hingað. Flest er í geymslu á Florida. Skúlptúrin mín eru svo voða lega fyrírferðarmikil, að ekki Skúlptúr eftir Kristínu var viðlit að flytja neitt af þeim“ segir frú Kristín, er ég licast um í stofu íoreldra hennar, þar sem hún og Jó- hann búa, meðan þau dveljast heima. Á veggjum hanga mál verk eftir Jóhann og Kristínu, þar á meðal andlitsmyndir af foreldvum hennar. „Ég hef eingöngu málað andlitsmynd- ir upp á síðkastið og ætla ekki að sýna önnur málverk á sýn- ingunni, sem við hjónin höld um í Listamannaskálanum í haust. En auðvitað verða lang flest verkin eftir Jóhann.“ „Hvenær fórst þú að fást við myndlist, Kristín?“ „Það var í Hofstra. Ég þurfti að taka eitthert auka- fag ineð sálarfræðinni. Ég hefði náttúrlega aldrei farið að koma nálægt myndlist hefði ég ekki verið gift Jó- hanni Eyfells. Fyrstu vikurn ar hötðum við nakta negra- stúlku til að gera höggmynd af. Mér leið mjög illa, því mér fannst öllum öðrum far- ast miklu betur að gera mynd af módeiinu. Þá kom prófess- orinn okkar á yfirleið. varð starsýnt á það, sem ég var að gera og spurði mig hvar ég hefði fengið svona mikla reynslu í myndlist! Ég kom náttúrlega af fjöllum, en vaið þetta svo til uppörvur.ar, að ég hélt áfram og fékk auðvít að sífellt meiri áhuga og sjális traust“. „Þú tókst B.A. prófin á styttri tíma en venja er til“. „Já, þeir eru nýbyrjaðir á svonefndu trirnester fyrir- komulagi f Gainsville í stað semester Voru því engin h’.é milli námsáfanga. Ég fékk að- eins viku fri eftir prófin þrisv ar á ári. Þegar ég hafði lokið B.A. prófi í sálarfræði og byrj aði á listunum, sótti ég tíma til M A. prófs eingöngu og ætlaði að ljúka því áður en við kæmum heim, en tíminn leyfði það ekki og mér var boðið að þreyta B.A. próf í staðinn, þótt ég hefði ekki verið t.ilskilinn tíma í skólan- um. Ég er staðráðin í því að taka M.A. bæði í sálarfræði og fögrum listum, ef þess er nokkur kostur. Kristin H. Eyfells við afhend ingu B.A. skírteinisins. Jóhann kenndi við listadeild ina siðasta árið í Gainsvibe. Hann heldur sjálfsagt áfram að gera það þar, eða við aðra bandaríska háskóla, þar sém honum hefur verið boðið að kenna. Hins vegar er sá hæng ur á, að ég má ekki samkvæmt lögum flestra skóla taka M.A. próf við deild, þar sem eigin- maður minn er kennari. Ég veit ekki enn, hvernig við ráð um fram úr þessu vandamáli“. „Hefur Jóhann stundað höggmyndalistina mest síð- ustu árin?“ „Næstum eingöngu! Ég gaf honum logsuðutæki í jólagjöf áður en við fórum til Gains- ville og eftir það fór hann að fást við málmskúlptúrinn, sem hann er orðinn svo þekkt ur fyrir og hefur tekið mest af hans tíma upp á síðkastið“. „Hvernig er að bua í Gains ville? ‘ „Alveg prýðilegt. Þar eru aðeins 60—70 þúsund manns og flestir tengdir háskólanum á einhvern hátt. Borgin er mjög falleg og hreinleg. Hún var útnefnd hreinasta borg Bandaríkjanna árið 1962. Enda var það eitt af því fyrsta sem vakti athygli mína. þegar við komum heim núna eftir 3 ára samfellda útivist, hve mikið er af rusli í Reykjavík. Hins vegar halda allir kunn- ingjar okkar Jóhanns, að við liggjum alltaf í sól á bað- strönd eða eitthvað slíkt, af því að við búum í Florida. Það er mesti misskilningur. Við tökum okkur ekki einu sinni jólafrí og eigum oft and vökunætur við vinnu. Aðeins einu sinrii höfum við tekið okkur smáfrí og lagzt í sól. Auk þess er eins og hálfs tíma akstur á baðströnd frá Gains- ville“. „Hvenær farið þið svo utan aftur?“ „Það er óráðið enn þá. Sýn ingin ei í október, svo að það verður þó aldrei fyrr en eftjr það. Annars er ég alltaf í búð inni minni og hef eiginlega alltof lítið nseði til að gera það sem gera þarf fyrir sýn- irguna. Jóhann hefur hins veg ar fengið til afnota skúr inni í Vatnagörðum, þar sem bann getur unnið í friði. Hann barf mikið næði og vinnur alltaf einn“. „Æthð þið kannske að flytj ast alveg til Ameríku?" „Nei, það' kemur aldrei ti) mála. Við verðum alltaf ts- lendingar og hér eigum við heima, en hins vegar getur verið að við eyðum meiri tíma erlendis en heima“. Þegar ég geng út staðnæm- ist ég um hríð og virði fyrir mér ljósmynd af einni högg- mynd Kristínar. „Skúlptúrinn minn er allt öðru vísi en það, sem allir aðrir eru að gera í Gainsville. Hann er allur nonfígúratívur, verður aðeins til í heilanum á mér. Kollegar mínir kalla þetta beinaskúlptúr. Mér finnst þetta ekki vera beina- líkön. En eina skýringin sem mér dettur í hug, er sú, að ég lék mér gjarnan að beinum, þegar ég var lítil“. STAKSIEINAR Skattalög í framkvæmd Alþýðublaðið gerir skatta- og útsvarsmálin að umræðuefni í forustugrein í gær. Er þar beint fjórum spurningum til blaða framsóknarmanna og kommún- ista og óskað undanbragðalausra svara. Forustugreinin er á þessa leið: „Blöð stjórnarandstöðuflokk- anna hafa látið í ljós mikla ó- ánægju yfir því, að Alþýðublaðið skuli leyfa sér að gagnrýna út- svör og skatta, enda þótt Al- þýðuflokkurinn sé aðili að ríkis- stjórn. f þessu sambandi er rétt að minna á, að Alþýðublaðið hefur hiklaust gagnrýnt margt það, sem því þykir betur mega fara hjá ríkisstjórninni. Nú hefur það gerzt, að skattalög hafa í fram- kvæmd reynzt á annan veg en til var ætlazt, og alveg sérstak- Iega hafa Reykjavíkurborg og önnur bæjarfélög þyngt stórlega útsvörin, sem landsmenn verða að greiða“. Spurningar Alþ.bl. „1 tilefni af þeim umræðum, sem spunnizt hafa um útsvars- málin, vill Alþýðublaðið beina eftirfarandi fyrirspurnum til Tímans og Þjóðviljans: 1) Hafa Tíminn og Þjóðviljinn gleymt þvi, að framsóknar- menn og kommúnistar greiddu atkvæði með skatta- og út- svarslögunum, sem afgreidd voru á Alþingi í byrjun maí? 2) Bera framsóknarmenn og kommúnistar enga ábyrgð á lögum, sem þeir samþykkja með atkvæðum sínum á AI- þingi? 3) Hvernig stendur á því, að Tíminn og Þjóðviljinn minnast varla á þau stórkostlegu skatt svik, n Alþýðublaðið hefur gert að umræðuefni? 4) Af hverju var ekki meira gert I baráttunni gegn skattsvik- um öll þau ár, sem Eysteinn Jónsson var fjármálaráð- herra? Æskilegt væri að fá undan- bragðalaus svör við þessum spurn ingum frá Tímanum og Þjóðvilj- anum sem fyrst“. „Þjóðviljinn" kominn til varnar Árásarmennirnir í Norður-Viet- nam og fjárhaldsmenn þeirra í Rauða-Kína eiga hauk í horni hér á íslandi, sem nú er kominn til skjalanna. Kommúnistamál- gagnið ritar um atburðina á Ton- kinflóa í forustugrein í gær og er hreint ekki í vafa um hinn góða málstað. Átökunum þar er líkt við landhelgisdeiluna við Breta og er sú samlíking harla fróðleg, bæði um hliðhylli komm únista við árásaröflin eystra og einnig afstöðu þeirra til land- helgisdeilunnar á sínum tíma. Svo scgir í „Þjóðviljanum" í gær: „Bandaríkin reyna að réttlæta hernaðarárás sína með ágreiningi um það hvað sé alþjóðahaf í þröngum flóa milli Kína og Norður-Víetnam þar sem banda- rísk herskip eiga sízt af 'öllu nokkurt erindi. Málflutningur af því tagi hefur naumast góð áhrif hér á Iandi; ekki eru nema tæp sex ár liðin síðan íslendingar voru sakaðir um að beita ofbeldi á alþjóðahafi og brezkur her var sendur á vettvang til þess að kúga okkur til uppgjafar. Sam- kvæmt hinni bandarísku kenn- ingu hefðu Bretar þá haft rétt til að gera loftárásir á íslenzka bæi, og verður sannarlega fróðlegt að sjá hvort islenzku hernámsblööin gera þær blygðunarlausu of- | beldiskenningar að sínum".

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.