Morgunblaðið - 08.08.1964, Side 6

Morgunblaðið - 08.08.1964, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 8. ágúst 1964 ÚTVARP REYKJAVÍK A SUNNUDAGSMORGUN, 26. júlí, var útvarpað ágætri messu séra Óskars J. Þorlákssonar úr dómkirkjunni. Organleikari var dr. Páll ísólfsson. Um kvöldið stjörnuðu þeir Andrés Indriða- son og Tómas Zoega þættinum „A faraldsfætr'. Áttu þeir meðal annars viðtöl við tvo stúdenta, nýkomna af stúdentamóti á Nýja-Sjálandi. Greindu þeir frá mörgu skringilegu úr ferð sinni. Er þeir fóru um Thailand urðu þeir t.d. að undirskrifa yfirlýs- ingu um, að þeir afsöluðu sér hugsanlegum skaðabótakrofu- rétti vegna kóieru, er geisaði þar. Þeir félagar töldu of mikið gert úr vanþekkingu útlendinga gagnvart íslandi. Flestir, er þeir ræddu við, höfðu heyrt landsins getið, þótt þeir vissu reyndar lítið úm málefni þess. Vilhjálmur S. Vilhjálmsson, rithöfundur, talaði um daginn og veginn á mánudagskvöldið. Hann vék fyrst að hinu rysjótta veðurfari, sem verið hefur hér sunnanlands undanfarið. Fólk hefði flúið norður og austur á land. Hann sagði, að súgþurrkun hjá bændum hefði að nokkru brugðizt þeim vonum, sem við hana voru tengdar, enda væru heyþurrkunar horfur nú all iskyggilegar hjá bændum sunnan lands. Svo brá við, að daginn eftir að Vilhjálmur flutti erindi sitt, var kominn brakandi þurrk- ur, 'svo að líklega hefur einhver mér hærrá settur hlustað á út- varpið þetta kvöld. Vilhjálmur hafði eftir þekktum skólamanni, að ungt fólk nú á jjdögum væri frá- Ibærlega duglegt, (svel menntað og fyrirhyggju- ? samt. Það ætti í metnað og stolt. Þá sagði Vil- ihjálmur, að það iværi slæmt, þeg _____ [ar blöð og frétta Vilhjálmur S. stofnanir blésu Vilhjálmsson “* vandræðr folks. Blaða- mönnum hætti til að líta eink- um á þáð versta, þar sem þeir teldu það fréttnæmast. Þannig taldi hann, að nokkuð mikið hefði verið gert úr ólátunum við Hreðavatn á dögunum. Hann sagði, að oft væri verið að næra og magna ósómann með því að breiða hann út í fréttum. Vilhjálmur er sjálfur blaða- maður og ætti því að vera gleggri en' ella á aðskiljanlegar náttúrur blaðamannastéttarinnar. En hvað sem blaðamönnum líður, þá mun það staðreynd, að fpll- orðnu fólki hættir til að misskilja og mikla fyrir sér þau ærsli, sem verða, þegar stóruip skará ung- menna af báðum kynjum lýstur saman úti í guðsgrænni náttúr- unni. Það má ekki afgreiða slíkt mál án umhugsunar imeð einu orði drykkjulæti. Æskufólkið ræður stundum blátt áfram ekki við hamingju sína, hina fjaðrandi lífshamingju, sem fullorðna fólkið er að meira éða minna leyti vaxið upp úr. „Það er hæg- ara um að tala en í að komast“ að vera ungur. Síðar um kvöldið opnaði Gísli J. Ástþórsson bréf frá hlústend- um. Hann furðaði sig á því, hve fólkið úti á landsbyggðinni hefði úr Reykjavík. Hann las síðan upp varpinu, megnið af bréfunum var úr Rvík. Hann las síðan upp 2—3 bréf. í einu bréfanna var þess getið, að vegfarendur í New York hefðu horft aðgerða- lausir á er ung stúlkaa var myrt á götu úti og ekkert gert henni til hjálpar. Bréfritari taldi, að svona lagið gæti ekki gerzt hér. Benti hann í því sambandi á dæmi þess, er strætisvagnsbíl- stjóri í vesturbænum hefði feng- izt til að stoppa, til að huga að sjúkum manni, er á vegi hans varð. Það er nú svo. En hvernig var það með fólk- ið, sem tók sér far með strætis- vagninum, til að horfa á kross- festinguna á Valhúsahæðinni? Þetta kvöld var lýst landsleik í knattspyrnu, sem íslendingar háðu við Skota á Laugardals- vellinum. Var nú kominn nýr maður í stað Sigurðar Sigurðs- sonar. Nefndist sá Sigurgeir Guðmannsson. Ekki tókst honum að feta að fullu í fótspor Sigurð- ar, hvað lifandi lýsingu áhrærði. Var þess ekki von. Hitt var öllu lakara, að hann var svo hlut- drægur í umsögnum um leikinn að til stórra lýta var, og sam- rýmist það heldur illa hinni heimsfrægu íslenzku gestrisni. — Skotar unnu þennan lélega landsleik á slysamarki sagði lýs- andinn að leikslokum. Maður má víst þakka guði fyrir meðan þeir fara ekki að sigra — eða falla — á voðaskotum þarna inn á Laugardalsvellinum. Dr. Áskell Löve, prófessor í Montreal, flutti fyrri hiuta er- indis um heiminn og tilveruna á þriðjudagskvöldið. Nefndi hann þann hluta: „í upphafi var efn- ið“. Hann taldi meðal annars, að lífið hefði orðið til fyrir til- viljun fyrir a.m.k. 2000 milljón- um ára. Lögmál hins illa, nánar tiltekið úrvalskenningin, hefði stjórnað þróun lífsins. Þá kom hann að hinu klassiska vanda- máli, hvað væri sál, en hann sagði, að hugtakið sál væri mjög á reiki. Hann sagðist ganga út frá því í erindi sínu, að þeir ein- ir hefðu sál, sem gætu talað, en dýrin kvað hann ekki geta talað. Áskell sagði, að frummaðurinn hefði líkzt dýrum að því leyti, að hann hefði hugsað mest um og hvíld- Marga fleiri fróðleiksmola mætti tína til úr þessu gagn- orða erindi. Lík- lega eru ekki allir sammála flutningsmanni, Eínkum mun sú kenning, að al- heimíirinn og lífið hafi orðið til fyrir hend- Dr. Áskell Löve ingu, sæta gagnrýni. Þá- virðist sú kenning einnig nokkuð tor- melt, að þeir einir hafi sál, sem geta látið hugsanir sínar í ljós í orðum. Hún hefur að vísu þann kost að takmarka veru- lega sálnafjöldann í heiminum, en brýtur hins vegar í bág við viðteknar hugmyndir margra um sambýlinga okkar, dýrin. „Þeir eru báðir með eilífum sálum, þó andann þeir lofi á tveimur málum“ .... segir Einar Benediktsson t.d. um knapann og hest hans í kvæðinu „Fákar“. Á miðvikudagskvöld var dag- skrá, helguð þjóðhátíð Færey- eyinga. Stefán Jónsson, frétta- maður, sá um hana með aðstoð Pouls Karbech Mouritzen, rit- stjóra í Þorshöfn. Gekk þar á með færeyskum sögnum, þjóð- kvæðum og dönsum, svo að un- un var á að hlýða. Því næst komu 5 kvæði, valin af Helga Sæ- mundssyni, Þórarinn Guðnason las. Kvæðin voru eftir Stephan G. Stephansson, Jakob Thor- arensen, Örn Arnarson, Guð- mund Inga Kristjánsson og Þor- stein Valdimarsson. Vonandi tekur Helgi nú að kynna eitt- hvað af kvæðum yngri skálda okkar. Á fimmtudagskvöld var lesin merkileg grein eftir Albert Ros- enfeld, í þýðingu Málfríðar Ein- arsdóttur. Nefndist hún: „Furðu frétt utan úr geimnum". Þar var getið um „ofursólir" úti í geimn- um, gífurlega orkumiklar, sem senda frá sér útvarpsbylgjur. Þvermál sóla þessara er ca. 10 ljósár, en ljósár er, sem kunnugt er, sú vegalengd, sem ljósið fer á einu ári. Ljóshraðinn er 300.000 km. á sekúundu, og má því ljóst vera, að sólir þessar eru nokkuð plássfrekar. Talið er, að sólir þessar séu í allt að 10.000 millj- óna ljósára fjarlægð. Enn er þetta allt á rannsóknarstigi, en við bíðum í ofvæni. Síðar á fimmtudagskvöld ar þátturinn „Raddir skálda“, í úmsjá Ingólfs Kristjánssonar. Kristján Bender las upp smá- söguna „Hundur" úr smásögu- safni sínu „Undir skuggabjörg- um“. Þá las Gunnar Dal kvæði úr óprentaðri ljóðabók: „Raddir morgunsins", sem kemur vænt- anlega út á veg- um Menningar- sjóðs í haust. Kvæðin eru öll ort á síðastliðn- um vetri í lög- sagnarumdæmi Francos á Spáni. Er ekki ófróð- legt að kynna sér kvæði, þar sem Franco legg ur til þjóðfélag- ið en Gunnar Dal andagiftina. Sýnishorn: (Hin þrjú dæmi eru tekin af handahófi, án inn- byrðis sambands). ......Og land mitt rís úr hafi, eins og hvítur draumur guðs. Eins og bleikur akur undir fölri sigð mánans. Eins og tveir hvítir englar á grænu engi. v > Gunnar notar mjög mikið orða- sambandið eins ovg. Virðist mér hann eiga það sameiginlegt með mörgum yngri skáldum okkar. Það verður gaman að kíkja í bók Gunnars, þá hún kemur út. Á föstudagskvöld flutti séra Árelíus Níelsson erindi, sem hann nefndi „Starfshættir kirkj- unnar í nútímaþjóðfélagi". Setti hann þar fram allmikla gagnrýni á starfsemi kirkjunnar. Sagði hann, að kirkjan virtist enn ekki hafa áttað sig á hinni efnalegu, tæknilegu og félagslegu þróun. Guðsþjónustur væru oft á tíðum eins kbnar „leikhússýning með svartklæddum einleikara“. Ein- leikari þessi talaði orð sem fæst- ir skildu eða tækju til sín. Hann sagði, að kirkjan virtist ekki hafa tök á áð nálgast fjöld- ann. Þó kvað hann íslendinga fjarri því að vera trúlausa og væri athyglisvert, hve fáa guðs- afneitara íslenzka kirkjan ætti við að stríða. Árelíus sagði, að ekkert væri við það að athuga, þótt prestar tækju þátt í veizlum og dansi. Þó yrðu þeir jafnan að koma þar fram á þann hátt, að til fyrirmyndar væri. Hann sagðr, að kristindómurinn væri líf og starf, byggt á fordóma- lausu umburðalyndi og ástúð. Síðdegis á laugardag var út- varpað frá hinni virðulegu at- höfn, er forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, var settur inn í embætti í fjórða sinn. For- seti sagði m.a. í ræðu sinni, að ánægjustundir og áhyggjur skiftust á í forsetastarfi sem i öðrum störfum. Hann minntist þess, að nú væru 40 ár liðin síðan hann var fyrst kosinn á þing, fyrir V-ísfirðinga. Færði hann þeim þakkir, því að hann kvað það uppeldi, sem hann hlaut þar í stjórnmálum, hafa komið að góðu haldi í sínu starfi. Forseti sagði, að þróun atvinnullfsins hefði aukið stéttaskiptingu, en dregið úr stéttamun. Hann bað guð að gefa sér heilsu og réttdæmi í störf- um og lauk máli sínu með hinni gullfallegu alda- mótahvatningu Asgeir Ásgeirsson forseti Hannesar Hafsteins: Starfið er margt, en eitt er bræðrabandið, boðorðið, hvar sem þér í fylking standið hvernig sem stríðið þá og þá er blandið. Það er: að elska, byggja og treysta á landið. Um kvöldið var flutt leikritið „Öldur“ eftir séra Jakob Jóns- son. Leikstjóri Ævar Kvaran, en leikendur: Þorsteinn Ö. Stephensen, Anna Guðmunds- dóttir, Gísli Alfreðsson, Krist- Framh. á bls. 16. Umferðin við Laiidakotsspítala Kona, sem lá nýverið á Landa kotsspítala, kom að rnali við Velvakanda. Sagði hún það vera mjög bagalegt fyrir sjúkl- ihga, að hætt var að banna næt- urumferð bifreiða um Túngötu milli Ægisgötu annars vegar og Hrannarstígs og Hofsvallagötu hins vegar, þegar nýja spítala,- húsið var tekið í notkun. Bíla- umferð var áðvir bönnuð á nótt- unni fyrir framan sjúkrahúsin og götunni lokað um kl. 20 eða 21. Þegar flutt var í nýja sjúkra húsið og hið gamla, sem stóð nær götunni, var rifið, þótti ekki ástæða til að banna nætur umferð, þar að nýja húsið stæði svo langt frá götunni. Konan sagði Velvakanda, að þetta ylli miklu ónæði á spítal- anum, og væru sjúklingarnir, systurnar og læknarnir öll óá- nægð með þetta. Hún kvaðst hafa verið andvaka fram eftir nóttu vegna umferðarhávaða, og einu sinni hefði hún talið fjörutíu bíla, sem óku fram hjá sjúkrahúsinu á fimmtán mínút- um á fyrsta tímanum. Umferðin væri mikil um þessa miklu um ferðargötu fram undir kí. eitt á nóttunni, en minnkaði þá. Hér væri einnig um rútubíla og þunga vörubíla að ræða.' Al- gengt væri, að fólk gæti ekki sofnað fýrr en eftir kl. tvö á nóttunni vegna háváða. Kvaðst konan örugglega mæla fyrir munn allra sjúkJ- inga á Landakotsspítala, þegar, hún færi fram á, að umferðar- bannið yrði aftur tekið upp á nóttunni fyrir framan sjúkra- húsin. Ábyrgðarleysi innflytjenda og þjónustuleysi við almenning Maður éinn hitti Velvakánda á förnum vegi fyrir nökkrum dögum og sagði sínar farir ekki 'sléttar. Fyrir tveimur árum hafði hann keypt ljósakrónu í 4 raftækjaverzlun nálægt Mið- bænum fyrir á þriðja þúsund krónur. Krónan var með sex ljósahjálmum, og nú vildi það óhapp til fyrir nokkru, að einn hjálmurinn brotnaði. Maðurinn fór í verzlunina og ætlaði að kaupa nýjan hjálm. Bjóst hann við, að, hann mundi kosta 100 til 200 krónur. Honum var þá sagt umbúðalaust, að útilokað væri að útvega nýjan hjálm á ljósakrónuna. Maðurinn verður því annað hvort að fleygja hinum dýra lampa, eða láta hann hanga gallaðan í stofunni. Þetta er því miður ekkert eins dæmi. Allt óf margir inn- flytjendur virðast trassa þá sjálf sögðu þjónustu að tryggja sér vara'hluti í vörur þær, sem þeir selja, Ættu kauþendur að gera sér það að reglu að ganga örugg lega úr skugga um, að kaup- maðurinn eigi næga varahluti í þann hlut, sem þeir kaupa. Ella ættu þeir ekki að kaupa hlutinn. ELDAVÉLAR ELDAVÉLASETT GRILL Sjálfvirkt hita- og timaval. A E G - umboðið Söluumboð: HÚSPRÝÐI HF. Sími 20440 og 20441.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.