Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1968, Blaðsíða 24

Heimilisblaðið - 01.11.1968, Blaðsíða 24
Mágkona hans Eftir ALEX STTJART Laidlaw ofursti og frú lians voru mjög þakklát Nin fyrir að hafa talið Cathrine á að liverfa aftur heim til Guise, og þau vildu eindregið, að þau drykkju saman te, áður en lagt yrði af stað. Endirinn var sá, að undirbúin var stórfengleg máltíð, sem hvorki Ninian né Cathrine liöfðu rænu á að snerta svo nokltru nam. Loks var svo allt afstaðið, og Ninian A'ar setztur undir stýri í litla mílnum sem Cath- rine hafði farið í heiman frá Guise. Cath- rine sat þögul og kyrr við hlið lians. Honum var illa við þessa kyrrð og þögn, og hann reyndi að halda uppi samræðum; á sama hátt reyndi hún allt til að taka undir orð hans. Þau ræddu um skipið hans, sem hafði farizt, um hlutverk þess, um Guise, um ömmu gömlu, og um vini og nágranna sem hann hafði ekkert samband haft við um svo langt skeið. Það var sem þegjandi samkomulag, að þau minntust ekki á pessónu- lega hluti, og Ninian fann fyrir því. Það voru hundruð spurninga, sem hann langaði til að spyrja, og þær hringsnerust í höfði hans. En hann spurði einskis af því tagi, því að honum var Ijóst, að ef hann gerði það væri leikurinn á enda — þetta áætlaða sjónar- spil, sem í rauninni var snara fest um háls þeirra beggja. Sól var gengin að viði þegar þau komu auga á Lorne-vatn. Tvær endur flugu upp af lireiðrum sínum hátt í loft, þegar þau óku framhjá róðrinu, þar sem hann og Jill höfðu fengið sér snarlið fyrr um daginn. Þær virtust kolsvartar þar sem þær bar við sólarlagið. Lygn vatnsflöturinn virtist settur ótal hringjum, og Ninian minntist allra kvöldanna þegar hann og Cathrine höfðu leiðzt saman við þetta vatn og farið til fiskj- ar. Þau höfðu borið veiðistengurnar sínar um öxl, áhyggjulaus og ljómandi af gagn- kvæmri ást, og svo örugg — svo barnalega örugg — um framtíðina. En nú áttu þau enga sameiginlega framtíð meir. Aðeins for- tíð; fortíð, sem bezt væri fyrir þau bæði að geta gleymt. Nú var Cathrine orðin mjög óróleg, og Ninian gerði enga tilraun til að ónáða hana í þögulli hugsun hennar. Hann gat sér þess til, að hugur hennar væri jafn órólegur og lians eigin. Og þar sem sólin hneig gullin að viði, neyddi hann sig til að hugsa um Jill. Hann rifjaði upp, hvernig bjart andlit hennar hafði ljómað þegar hún kom fyrst auga á þetta lygna og fagra fjallavatn. Jill var yndisleg stúlka, en ... Hann and- varpaði; hann fann fyrir samvizkubiti. Um morguninn liafði samkomulag þeirra ekki virzt svo lieimskulegt þegar á var litið — það hafði beinlínis virzt vera skynsamleg lausn á málunum, að minnsta kosti til bráða- birgða. En eftir það var hann búinn að hitta Cathrine aftur, og það liafði öllu breytt- Cathrine var líkt og lionum í blóð borin. Ef hann hafði efazt um það fyrr, þá þurfti haun ekki að efast lengur. Allt í einu fannst hon- um það nánast óhugsandi, að hann gæti gifU Jill. Yegna þess, að það myndi verða samvizku hans og þolinmæði ofraun að leyna nokkru fyrir Cathrine. En ekki þýddi neitt annað en halda leiknum og leyndinni áfram, nema því aðeins að liann gæti fengið bróður sinn til þess að hverfa eitthvað á brott með Cath- rine — þennan sex vikna tíma sem levfi hans varaði og hann þurfti að dveljast að Guise- 7. KAPLI Klukkuna á mælaborðinu vantaði finun mínútur í sex, þegar Jill tók síðustu beygj' una og kom auga á turnspíru St. Andrew- kirkjunnar, sem umkringd var grænum hús- þökunum í Lorne. Henni fannst sjálfri hún hafa ekið all- hratt, en þó ekki um of. Þetta hafði verið skemmtileg ferð um fagurt og áður óþekkt 244 H E IM ILI S B L A Ð I í>

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.