Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1975, Qupperneq 2

Heimilisblaðið - 01.03.1975, Qupperneq 2
Sumartískan á að vera kyrtill og buxur, hvortveggja í sama lit. Stúlkan heitir Didi og er frá Suður-Afríku, en starfar nú við að sýna skartgripi í einni dýrustu skartgripaverslun í Lundúnum. Skartgripirnir sem hún er með þarna á myndinni eru metnir á mjög háar upp- hæðir. Nú er komið hátt á fimmta ár síðan spánska stjórnin lokaði landleiðinni til Gíbraltar- klettsins, til að leggja áherslu á að Bretar skiluðu klettinum aftur, og margir Bretar eru því hlintir að ná einhverju samkomulagi við Spán um klettinn. Á myndinni má sjá spánska hermenn á vakt á veginum til lands. Margir Islendingar hafa kom- ið til Parísarborgar á undan- förnum árum, og ef til vill tekið eftir styttunni af franska hermanninum sem stóð á ein- um af d’Almas stólpum og borgarbúar notuðu sem vatns- hæðarmælir í Signu. Nú hef- ur verið byggð ný brú á ána og styttan sett á hana. Mýnd- in sýnir þegar höfuðið var sett á styttuna. Þessi sýnishorn á myndinni af sumai-fuglum eru úr nátt- úrugripasafni rússneska list- málarans Maríu Sibylli Meri- an, sem var uppi fyrir um það bil 300 árum. Á hinu friðaða „Afríska svæði“ við Siegen í Frakk- landi eru dýrin frjáls að flakka um en þó er þessi 31 2 metra langi krókódíll hafður í girðingu til öryggis. HEIMILISBLAÐIÐ kemur út annan hvern mánuð, tvö blöð saman, er 5. júní Utanáskrift: Heimilisblaðið, Bel' 36 bls. Verð árgangsins er kr. 350,00. Gjalddagi staðastræti 27. Pósthólf 304. Sími 14200.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.