Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1975, Page 8

Heimilisblaðið - 01.03.1975, Page 8
„Kæra, góða vinkona", segir hann, „hver hefur skenkt yður þetta málverk? Hvei'nig er það hingað komið?“ „Vinur minn, þetta er gjöf; gjöf sem hefur orðið mér til ólýsanlegrar gleði. Paðir yðar gaf mér þetta málverk“. „Fa. . . faðir minn?“ hrópar ungi mað- urinn — og fellur um koll, án þess að fá svo mikið sem tíma til að blikna eða blána. En jafnframt fær hann svo heift- arlega blóðspýju, að föt hans verða öll útötuð. Greifafrúin lætur bera hann tii hvílu, sendir heim til hans eftir öðrum klæðnaði og annast hann sem best hún getur, eins og hann væri hennar eigin sonur. Þegar hann hefur jafnað sig að nokkru, gefur hann skýringu á þessu. Greifafrúin endursegh’ hana í frem- ur stuttu máli. „Þið vitið“, segir hún, „hve flókin trúnaðarmálin geta verið, þegar ungir elskendur eiga í hlut. Smá- atriðin eru óendanleg, og óþarfi er að rekja þau, því þau eru að flestu leyti lík því sem gengur og gerist í öllum ástarsögum”. Við munum líka stytta frásögnina enn meira, því að enda þótt markgreifa- frúin grípi hvað eftir annað fram í fyrir unga manninum og hvetji hann til að falla jiekki í þunglyndi eða imglingslegar heimspekigriliur, þá þekkir hann auð- sjáanlega ekkert til þeirrar listar að tak- marka sig. Við hlaupum þess vegna yf- ir lýsingar hans á einmanalegum upp- vexti hans í höll föður hans, barnaleg- um löngunum, óttablandinni ást og virðmgu á ströngum föður o.þ.h., en nemum staðar þar sem hann er orðinn fjórtán ára gamall, dulur og fáskiptinn á reiki um skógana í grennd við höilina og situr á kletti við Thymerale og horfir á só’larlagið. Þá er það að hann kemur auga á forkunnarfagra jafnöldru sina, sem kemur arkandi með geit í eftirdragi eða öllu heldur geitin dró stúlkuna. Sú fyrrnefnda var nefnilega sterkari en hin síðarnefnda, enda fór það svo, þegai' stúlkan vildi ekki sleppa reipinu, að geitin hrat henni um koll svo að hún fékk svöðusár á ennið. Pilturinn hljóp til og þurrkaði af henni blóðið með vasa- klútnum sínum. Hún brosti gegnum tár- in. Þau ná í geitina, en þar sem reip' ið hafði slitnað, notast þau þess í stað við silkihálsbindi piitsins og fara þannig með óþekktina í eftirdragi heim í fá- tæklegt hreysi stúlkunnar. Ekki væri þessi frásögn í stíl við tíð- arandann nema móðirin á heimilinu væri látin vera fátæk og munaðarlaus ekkja, haldin sígildum sjúkdómi þein'a tíma: brjóstveikinni. Unglingurinn læst vera sendur frá móður sinni til þess að bæta eitrhvað úr fátæktinni í hreyS' inu og skilur eftir gullmola. Er svo ekki að orðlengja það, að sumariangt hitt- ast þessi failegu ungmenni úti á klett- unum, reisa sér laufskála, flétta kransa úr blómum merkurinnar. . . Og frá þeim tíma geymir ungi maðurinn í minjaskríni sínu fölnuð rósablöð, ásamt bæn til heilags Lúðvíks, flís úr krossi Krists, perluarmband og mynd móðui' sinnar. Alit þetta eru minjar um hina ungu vinkonu hans, þá fyrstu og einu sönnu, hina fögru Genevieve. Októberdag nokkurn beið hann Gen- evieve árangurslaust inni á klettununu og þjáður af eirðarleysi laumast hann að næturlagi út um einn hallargiugg' ann og reikar um í grennd við kofa móðm’ hennar. Þar logar kertaljós; grip' inn ótta læðist hann að glugganum og skimar inn. Móðirin liggur þar að dauð& komin, en dóttirin liiggur á knjánuiU við rúmstokkinn og biðst fyrir. Við sleppum því að lýsa dauðastríð' inu og frómum orðum prestsins, seiu sóttur er. Ungi pilturinn fellur á bseU ásamt prestinum og Genevive við dáh' arbeðinn, og sver við hlið hinnar látnu'- „Ég skal kvænast dóttur þhmi, minn» 44 H E I M I L I S B L A Ð I P

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.