Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1975, Síða 30

Heimilisblaðið - 01.03.1975, Síða 30
Uglupabbi í klípu BARNASAGA EFTIR POVL HAMMER í skóginum ríkti nær algjör kyrrð, því aö ,svo áliöið var snmars, að fug'larn- ir voru hættir að syngja og farnir að sinna alvarlegum verkefnum. í hverju hreiðri voru þetla fimm eða sex soltnir ungar, sem stöðugt glenntu upp litlu munnana sína og skríktu -eftir mat — og þess vegna strituðu foreldrar þeh’ra við frá sólarupprás til sólarlags, uns aft- ur var failiið á myrkur í skóginum. Ekki var þó fullkomin þögn þarna í myrkviðnum. Ef maðrn’ var sjálfur hljóður og stóð grafkyrr, þá gat mað- ur heyrt hvar skrjáfaði hér og þar. í skógarbotninum gaf að líta svartþresti og brúnþresti róta með nefinu i visið laufið í leit að oimum og ihfum, sem áttu sér ból í efsta iagi rakrar moldar- innar; inn á milli trjágreinanna mátti líka heryra ofurlítið tíst smáfugla, sem stukku um eins og mýs frammi á end- um greinanna í leit að skordýrum. Á- þekkar veiðar stunduðu líka músvit- amir, bláigðurnar og gráigðurnar á kvistóttum berki gömlu trjánna, þar sem þau boruðu grönnum nefjunum í græna mosaþófana sem huldu bolinn. En hæst uppi í limi stærstu beyki- og eikartrjánna heyrðist lágt högg öðru hverju — þar var spætan á ferð, sem með löngu og oddhvössu nefi sínu hjó börkinn burtu til þess að komast að lirfum þeim, sem nærðust á greinum trjánna innanverðum. Ef við hefðum þessa síðdegisstund rakið götuslóðann utan frá enginu, gegnum gerðið, inn á milli grenitrjánna og síðan lengra inn í skóginn, þá heifð- um við upplifað margt og merkilegt. Vænan spöl inni í skóginum átti sér nefnilega stað furðulegur gauragangui’. Raddir margra og ólíkra fugla kváðu við, allar í einu, og það mátti greinilega heyra, að annað hvort voru þessir fugl' ar æfareiðir eða dauðskelkaðir, nema hvorttveggja væri. Ef við hefðum þá nálgast af varfærni, hefðum við komist að raun um, að hvað svo sem um var aö ræða þá átti það sér stað hátt fyrii’ ofan okkur, því að hljóðin bárust ofan úr háu beykiki’ónunum álengdar. Auðvelt var að þekkja raddir margra þessara fugla. Þarna hljómaði hih skarpa rödd svartþrastarins: Pink-pinik- pink, hás hlátur skjórins, og nöldurs- legur tónninn í músvitranum. En þarna var lika um margar aðrar fuglsraddir að ræða. Ef við heföum komist enn nær, án þess að hvekkja fuglana eða láta heyr- ast um of í fölnuðum laufdyngjunum undir fótum okkar og trjágreinununm alls staðar umhverfis, þá hefðum við get- að gægst fram milli heslikjarrgreinanna og getað séð, hvað um var að vera. Uppi í stóra beykitrénu, þar sem göm- ul, stór og þykk grein, skagaði langt fram ásamt fjölda hliðargreina, sat furðuleg, grábrún vera, nokkuð mikil að fyrirferð samanborið við aðra fugla- Auðfundið var, að nærvera hennar vai’ einmitt það, sem oili öllum ósköpunum meðal hinna fuglanna — því að þeú’ voru ekki svo fáir, sem nú höfðu safn- ast hér saman. Þarna voru tveir svart- þrestir, einn skjór, nokkrir músvitrai* og bókfinkur, fáeinar skógardúfur og' svo fjöldi annarra fugla sem erfitt vai' að greina, því að þeir sátu svo hátt uppi. Og hvað þeir gátu allir verið reiðir og æstir! 66 heimilisblaðið

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.