Heimir - 24.12.1904, Blaðsíða 10

Heimir - 24.12.1904, Blaðsíða 10
J 22 HEIMIR in með nokkurri löggjöf, hversu öfug sem hún kann að vera, nema því að eins að náttúriilöginálinu sjálfu verði hrundið. Þeir sýndu fram á, hversu þessi réttindi voru fótum troðin, og hvaða lagfæringu menn ættu fulla heimtingu á. En það var að eins heimspekingum, er leiðst að tala þann- ig, og almúgamaðurinn hvorki þorði að hugsa né hugsaði svo hátt. Að guð hefði skapað alla menn jafna, var að eins fögur hugsjón. Þar við sat. Því ef svo hefði verið, hvað varð þá úr aðalsstéttinni og konungaættunum, er komnar voru frá guðun- um ? Það var fyrst, er nýlendubúar á vesturströnd Atlantshafsins fóru að hafa njósnir af þessum nýju frelsis orðum, að þau urðu meira en hugsjónir. Það var enginn betur fær um að meta þau en einmitt þeir. Þeir komu að óbyggðu landi. Þeir höfðu myndað þjóð, og þótt misjafnt væri skift verkum meðal einstak- linga þeirrar þjóðar, þá höfðu þó allir byrjað líkt, haft við svip- uð kjör að búa, verið sama eðlis og af sama berginu brotnir.-- Stéttaskipunin, verkaskiftingin— hvorttveggja var til orðið fyrir fólksins náð, eins og öll stéttaskipun hefir ætíö í fyrstu til orðið. I einu orði sagt, það var svo skammt liðið frá landnámstfð, aö þeir gátu hæglega horft til baka og séð á því, hvernig þjóðirnar verða til, að það er að eins aldurinn og tímalengdin, er helgar það, sem kemst í hefð og tízku — í fyrstu vegna nauðsynlegrar verkaskiftingar— en ekki nein órjúfandi lög. Hold og blóð er ætíð það sama, hvað öðru líkt, og að eins hold og blóð. Þessar skoðanir áttu því fyrst gengi meðal þeirra. Og þær voru gjörðar að meiru en skoðunum, þær voru gjörðar að virki- legum og áþreifanlegum sannleika. Bandaríkjamenn opinberuðu heiminum fyrstir þann sann- leika, að allir menn væri jafningjar í því, að þeir ætti allir sama rétt til lífs og lima, að enginn þjóðhöfðingi, hversu voldugur sem hann væri, væri „konungur fyrir guðs náð", heldur væri veldi hans og ríkdómur tilbúinn af mönnum, og þann sem mennirnir hefði upphafið, þann gæti þeir og lítillækkað, strax og hann not- aði vald sitt til þess að aftra velmegun lands og þjóðar. Það er sagt, að Grikkland hafi fyrst opinberað heiminum listina, Róm lögspekina, og á sama hátt mætti segja, að Banda-

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.