Heimir - 24.12.1904, Qupperneq 24
136
H E I M I R
Dr. Charles William Eliot.
Dr. Charles William Eliot, forseti Harvard háskólans er
fæddur í Boston í Massachusetts 20. marz áriö 1834. Hann er
kominn af einni elztu ættinni og merkustu þar í landi. Lang-
feðgar hans allir, hver fram af öðrum, voru hámentaðir menn,
og hafa jafnan staðið framarla í kyrkju og menntamálum lands-
ins. Það var á landnámstíð nýja Englands, að einn Eliotanna
sneri biblíunni yfir á mállísku
Indiánaflokks þess, er fyr meir
bjó þar í landi, og er sú þýðing
næstum þær einu menjar alls
þess mikla tungumála bálks
villimanna, er bjuggu í Austur-
ríkjunum.
Charles W. Eliot var mjög
snemma settur til náms, og 19
ára gamall útskrifaðist hann frá
Harvard, árið 1833. Síðan hef-
ir hann verið sæmdur doktors-
nafnbót af ýmsum háskólum,
enskum og amerískum.
í fjögur ár, 1854—’58, var
hann undirkennari í stærðfræði
og efnafræði við háskólann, og frá 1858—63 var hann aðstoðar-
professor í sömu greinum. Um þetta leyti kvongaðist hann, og
tók þá köllun frá Mass. Institute of Technology sem professor í
efnafræði (analytic Chemistry). Við þann skóla kenndi hann
þar til 1869, að forsetasæti Harvard háskólans var autt, og hon-
um var boðið að taka það. Því embætti hefir hann haldið síðan.
Fyrst framan af mætti hann megnri mótspyrnu frá hálfu
samverkamanna sinna. Sumpart var það af öfundsýki, sumpart
vegna þess, að þeir undu illa breytingum þeim, er gjörðar voru
þá á stjórn skólans. Um leið og Eliot var skipaður forseti, voru
allar deildir háskólans sameinaðar undir eina yfirstjórn, er hann
var forseti yfir. Áður hafði það verið þannig, að forsetinn hafði