Heimir - 24.12.1904, Síða 17

Heimir - 24.12.1904, Síða 17
H E I M I R 129 Theodore Parker. Theodore Parker var fæddur 24. ágúst í Lexington í Massa- cliusetts ríkinu áriö 1818. Fæöingarbær hans er þorp eitt lítið skarnrnt vestur af Boston, og er aðallega frægt fyrir að vera sá staöur, sem frelsisstrrð Bandaríkjanna hófst frá 1775. Parker var kominn af einni elztu og k^msælustu ættinni þar í landi; langfaðir hans hafði flutzt þangaö árið 1635. Þar bjuggu þeir Parker-arnir mann fram af manni, og áttu jafnan góöan þátt í öllum þeim málum, er nýlendu- mönnum stóð heill og hagur af.— Margir höfðu þeir veriö hermenn og nokkrir hershöföingjar. Þann- ig voru tveir afabræöur Parkers í franska stríðinu (1754—'63), er Englendingar og Frakkar háöu um yfirráö Canada, Og afi Parkers, Jón Parker, var sá, er stýrði bændafiokknum, er háöi fyrstu orustuna í frelsisstríöinu; og eftir honum eru orðin höfð, er síðar urðu fræg, „Fyrst þaö á aö kosta strfö, þá látum þaö byrja hér." Theodore Parker var yngstur ellefu systkina, hiö elzta var 25 ára, er hann fæddist, og hið yngsta 5 vetra. Foreldrar hans voru mjög fátæk, og ólst hann upp hjá þeim, þar til hann var nærri fulloröinn. Sökuin þess aö hann var yngsta barnið og var svo lengi í heirnahúsum, varö hann eftirlæti þeirra; enda minnt- ist hann þess oft á sínum seinni árum, hversu þau hefði veriö sér ástrík og góö. í ræöu, er hann fiutti 1844, segir hann: „þaö- an eru mörgum manni hans beztu fræöi komin, er hún, sem nú er gengin til hvíldar, lagöi hendur sínar í höfuö honum og bless- aði yfir hann og vakti hjá honum meövitundina um guö, um réttlætið og samvizkuna, og beindi huga hans til hæöa." Móöir hans var mjög trúrík kona og samvizkusöm. Hið púrítaniska lyndiseinkenni var mjög sterkt hjá henni. Aftur á móti var faðir

x

Heimir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.