Heimir - 24.12.1904, Page 23

Heimir - 24.12.1904, Page 23
II EI M I R 135 ast af fortölum lækna aö fara. Hann sigldi til Vestur-Indía 11. maí um vorið; þaðan fór hann eftir skamma dvöl til Lundúnaog áfram til Rómaborgar. Þar var hann um veturinn. En sjúk- dómur hans ágerðist meir og meir, og er voraði, vildi hann það- an burt. „Eg vil ekki deyja hér", sagði hann, „eg vil ekki bera beinin hér í þessari fyrirlitlegu mold. Eg vil til Florence, og þangað skal eg." Þvert á móti læknisráðum lagöi hann af stað áleiðis þangað með farþegjavagni, er ók þar á milli. Hann var 5 daga á þessari ferð og svo veikur, að hann gat ekki setið uppi. Skömmu eftir aö hann kom til Florence missti hann ráðið. — llonum fannst hann vera kominn til Boston, og talaði um það við konu sína, að hann viidi biðja Clarke (James Freman) að tala yfir sér. „Þeir koma fyrir mína skuld." — En þeir komu ekki. Það var breitt haf niilli Boston og Florence. Fimmtudaginn 10. maí 1860 kom kallið, og æfi hans var öll. Hann var ausinn moldu sunnud. næstan á eftir, og er gröf hans í einu horni protestantiska grafreitsins þar rétt fyrir utan borgina. Fáir \oru viðstaddir greftranina, og útfararathöfnin var mjög óbrotin, að eins nokkur vers lesin úr I'jallræðunni. - Að því búnu var gröfin fyllt og farið burt. Grafaraþankar. j* Já, þið eruð hissa’ að eg harma’ ekki þann, sem hvílir þar nár á fjölum, og að eg ei götva hvern einasta mann með ekka og harmatölum. En oftast mig skifta það engu eg læt, þótt alfaðir missi sauði.— Ef græt eg hinn látna, af að lifa eg græt, því lífsins uppspretta’ er dauði. VlÐAR.

x

Heimir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.