Heimir - 24.12.1904, Qupperneq 25

Heimir - 24.12.1904, Qupperneq 25
H E I M I R 137 lítið yfir ööru að segja en deild lærða skólans (College). Forseta var og einnig falið á hendur, að segja fyrir um alla tilhögun kennslunnar. Hann átti að hafa eftirlit með [öllu, en sjálfur hafði hann enga kennslu á hendi. Skjótt, eftir að Eliot tók við stjórninni, voru ýmiskonar gömul ákvæði afnumin, er skólanum stóðu bæði fyrir áliti og þrifum. Þaö hafði verið mikið stríð með að skylda alla nem- endur að ganga til bæna á hverjum morgni, og kyrkjuganga var heimtuð, en hann smá rýmkaði um það, unz hann afnam það algjörlega, að piltar væri skyldaöir til þess, fram yfir það, sem þeirn bezt líkaði sjálfum. Hann tók og upp, að leyfa nemendum að velja um svo og svo margar greinar, án þess að vera skuld- bundnir til að taka þær fram yfir það sem þeim sýndist. Og er nú komið svo, aö hver einasta grein, sem kennd er, er kjörgrein í stað þess, að áðnr var allt skyldunám, og piltar höfðu um ekk- ert að velja. Ef inntökuskilyrðunum er fullnægt nú, þá má nemandinn velja sér sinn eiginn veg gegnum skólann. Þetta voru nýmæli mikil fyrst, er hann innleiddi þetta nýja fyrirkomulag. Og til þessa hefir það verið mikið deiluefni með- al fræðimanna, en þó hafa fiestir orðið á, eitt mál sáttir um á- gæti þess. Dr. Eliot hefir ekki skrifað margar bækur, en þrátt fyrir það er hann álitinn fremstur allra menntamálafræðimanna þess- arar álfu. Hann hefir flutt fjölda fyrirlestra, og svo að segja hamrað skoðanir sínar inn í amerísku þjóðina. I öllum sínum opinberu ræðurn segir hann mönnum hik- laust, að hann byggi allar sínar skoðanir í kennslumálum á trú- arbrögðum sínum. Fyrirkomulag og kennsluaðferð er sú, að lofa þeim, er komnir eru til vits og ára, að velja fyrir sig sjálfa. Og hann segir það bregðist sjaldan, að maðurinn velji það, sem bezt eigi við og honunr sé fyrir beztu; og gjöri hann það ekki, þá inuni að minnsta kosti ekki aðrir gjöra það. Þetta segir hann að veki hjá nemanda meðvitund fyrir á- byrgð, er hann verði sjálfur að bera, og um leið dragi fram það bezta, sem hjá honum býr. Ábyrgðarlausum og siðferðislausum skólakálfuin hefir engin þjóð gagn eða gæfu af. Hann segist þess vegna vilja lofa því góða í manninum að

x

Heimir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.