Heimir - 01.05.1914, Qupperneq 2
H E I M I R
254
runiUn. En hvorug ]>essi ástæða er talin góð og gild af þeim, sem
halda fram að allir inannflokkarnir séu skyldir. Mál flokka, sem
hafa flest eða öll sömu líkainlegu einkennin, cru stundum eins ólík
og mál l>eirra, sem eru hver öðrum mjög ólíkir hvað líkamleg ein-
kenni snertir. Þannig skiftast mál Indíána flokkanna, scm bygðu
Jforður-Anieríku á undan hvítum mönnum, í fjölda margamálstofna;
en að öðru leyti voru ílokkarnir allir mjög líkir. Þetta sýnir, að
að málin verði ekki rakin til sömu rótar, eru mannflokkarnir, sem
þau tala, ekki að sjálfsögðu óskildir. Skoðuninni um mismunandi
uppruna fylgja miklu færri nú en gjörðu fyrir nokkrum áratugum.
Ein liclzta sönnunin fyrir því, að mannkynið alt eigi sameigin-
legan uppruna er ]>að talið, að kynblöndun á sér stað milli allra
mannflokka. Kynblöndun hefir átt sér stað afarlengi og hefir farið
vaxandi á síðari tímum; svo að nú á tímum eru engir hreinir og
óblandaðir mannflokkar til, að undanteknum fáeinum smáflokkum
á útkjálkum lieimsins. Ef flokkarnir væru að uppruna til óskyldir,
yrðu afkomendur kynblöndunarinnar ófrjóir með tímanum, sam-
kvæmt skoðunum vísindamannanna.
En livaðan er ]>á mannkynið upprunnið, hvar var vagga þess
í öndverðu.? Um það hafa verið margar tilgátur gjörðar. Því nær
öll meginiönd heimsins hafa af einhverjum verið skoðuð vagga
mannkynsins. Jafnvel norðurheimskautslöiidin, sem nú eru þakin
snjó og ís, hafa fengið ]>ann heiður; og ein tiigátan er, að fyrsti
mannabústaður hafi verið í suður liluta Svíþjóðar. En á síðarl
tímum liafa fleii i fallist á þá skoðun, að elzta ættland mannkynsins
sé sunnan til í Austur-Asíu, ]>ar sem nú er Malakkaskaginn og eyj-
arnar, sem iiggja suður af honum. Þaðan á svo mannkynið að hafa
útbreiðst um alla jörðina.
Þessi skoðun styðst mest við það, að árið 1892 fundust á cynni
Java steinrunninn bein, sem vísindamcnn álíta að séu leifar af
beinagrind úr manni. Beinin, sem fundust, éru: lærleggur, tveir
jaxlar og nokkur hluti hauskúpunnar. Eftir lögun leggsins að
dæma, hefir maður sá, scm hann er úr, gengiö uppréttur; og liaus-
kúpubrotið sýnir, að stærð heilabúsins hefir verið um 1,000 teninga
sentimetrar, sem er liér um bil mitt á milli hæstu apategundanna,
gorilla og orangutan, og hvíta mannflokksins. Þessi forfaöir mann-
kynsins (pithecanthropus erectus, hinn upprétti aparnaður, eins og