Jólakveðja til íslenzkra barna frá dönskum sunnudagaskólabörnum - 24.12.1931, Side 4
o, fagnið Jesú, fjörug börn!
Hann feldi mesta óvin manns,
og hann var besta barnavörn,
hann bjó til ríki kærleikans.
ó, biðjið Jesú, börnin smá,
og biðjið ósköp beitt og vel,
að ykkur sje hann ætíð hjá,
en einkum þegar kemur hel.
ó, elskið Jesúm allra mesl,
og altaf haldið trygð við hann,
og geymið Jesú boðin best,
og breytið rjett við sjerhvern mann.
G u ð m u n d u r H j a 11 a s o n.
Smávaxinn vinur og broshýr mær.
Viljið þið setjast hjá mjer ofurlitla
stund, þegar þið hafið skoðað jólagjaf-
irnar og horft á jólaljós? Mig langar
til að segja ykkur sögu, fegurstu sö-
guna, sem jeg þekki. Þið hafið áður
heyrt talsvert af henni, hafið lesið í
biblíunni eða Lúkasarguðspjalli um
litla drenginn, sem fæddist í Betlehcm
austur á Gyðingalandi forðum, og mu-
nið eftir englunum, sem sungu fyrir
hjarðmennina kippkorn frá þorpinu.
Ef þið gætuð flogið þangað austur á
aðfangadag jóla, munduð þið sjá stóran
hóp manna úr þorpinu og ganga austur
af hæðinni, sem Betlehem stendur á.
Það er fagur gróður í hlíðinni vor og
sumar, fíkjutrje og möndlutrje, vín-
viður og blómin óteljandi. En á að-
fangadaginn er ekki verið að svijiast að
blómum. Förinni er heitið ’kippkorn
austur á grundirnar, þar eru rústir
gamallar kirkju og hellir hjá. Segja
menn að þar hafi hjarðmennirnir setið,
er heyrðu fyrsta jólasönginn.
Þar byrja Betlehemsbúar enn í dag
jólasöngvana og ganga siðan til kirkju
inni í bænum. — Ef þú værir í hóp-
num, þætti þjer líklcga einkennilegt að
sjá stjörnu yfir mörgurn húsdyrum
bæjarins. Það þarf víst ekki að segja
þjer af hverju kristnu heimilin í Bet-
lehem unna því merki.
En jólasöngvar hljóma víða i kvöld.
Ef þú hefðir verulega góð útvarpstæki
gætir þú hlustað á jólasálma á fjöl-
mörgum tungumálum, því að nú er
fagnaðarerindið flutt á flestum tungu-
málum jarðarbúa og ef þú hefðir speg-
il, er endurspeglaði fjarlæga viðburði,
eins vel og útvarpstækin endurflytja
hljómana, þá mundir þú sjá fleiri
kirkjur, en fólk er á íslandi og margt
fólk i þeim flestum, og óteljandi hei-
mili, þar sem fólkið er að lesa cða
syngja um frelsarann.
Þannig hcfir það verið liðnar aldir
og þannig mun það verða, meðan nok-
kur tunga má sig hræra. Og það er
sagan besta, að Jesú á gleði og krafta,
hjálpræði og eilífðarvonir lianda öllum
þeim sem ákalla hann í einlægni, hvar
sem þeir búa og hvernig sem öðrum
högum þeirra er háttað. Hann man eft-
ir þjer og cr þjer nálægur i kvöld og
vill hjálpa þjer til að verða stór og
sterkur og góður og stoð fyrir föður
og móður, alveg eins og liann hjálpar
fullorðnum lærisveinum sínum í öllum
efnum. læstu um hann og talaðu við
hann og þakkaðu honum i orði og
verki fyrir að þú hefir fengið að alast
upp i kristnu landi, þar sem haldin eru
heilög jól í Jesú nafni.
S. G.