Kirkjuritið - 01.07.1957, Síða 7
HEILINDJ OG HUGSjÓNARLIF
293
undir bláhvelfingu himins. ísland guðsríki. íslendingar hæfir ti'
Guðs ríkis. Vinnan hvar sem er á að stíga upp eins og lof-
söngur til hans.
Guðs ríkið á að vera hér — ríkið, þar sem vilji Guðs ræður,
í verkahring vorum og lífi, liug og hjarta. Því fylgir endurnýj-
un og endurfæðing, eldmóður og ótæmandi þróttur. Heilindi
í starfi og hugsjónalíf fari saman.
A þessu virðist einnig háskólarektorinn, sem ég nefndi áðan,
hafa átt nokkurn skilning. Hann lætur sér ekki nægja alls kostar
að nefna heilræðið: Vinn, heldur nefnir sagnirnar báðar, sem
upphaflega áttu þar saman: Ora et labora. Þú átt að biðja og
iðja. Þ. e. a. s. þú átt að biðja um leiðsögn Guðs og hjálp og
starfa að vilja hans og ráði. Vinnan ein út af fyrir sig verður
aðeins strit, ef aldrei leggur birtu yfir hana að ofan, svo að
mikill sannleikur felst í því, er spekingurinn mælti: „Jafnvel
fyrir þetta líf eru þeir dánir, sem ekki trúa á annað.“ Starf
vort allt á jörðu á að helgast af því, að eilífur himinn Guðs
ljómi yfir. Þá fyrst standa verkin hér í fullu gildi og greiða
Guðs ríki veginn.
Einn af helztu forystumönnum Ungmennafélaganna dreymdi
fyrir nokkru fagran draum ,sem hafði mikil áhrif á liann. Hon-
um þótti sem þessi orð væru sögð við sig: „Líkaminn deyr.
En kærleikurinn og sannleikurinn lifir.“
Heilindi í starfi og hugsjónarlíf eiga að vera blessun og styrk-
ur æsku íslands og Ungmennafélögum. Hver sem vinnur af al-
hug til gagnsemdar landi sínu, verður snortinn af heilögum
anda kærleikans. Það er rétt og satt, er skáldið kveður:
En sá, sem heitast ættjörð sinni ann
mun einnig leita Guðs og nálgast hann.
Ár eftir ár sjáum vér unga plita og stúlkur ganga upp að
altari Drottins í hvítum klæðum, ímynd hreinleikans og feg-
urðarinnar, og lýsa því yfir, að þau vilji hafa frelsarann Jesú
Krist að leiðtoga Hfs síns.
Þá er framtíð Ungmennafélaganna vissulega borgið um kom-